25.04.1966
Efri deild: 71. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2420 í B-deild Alþingistíðinda. (1614)

188. mál, landshöfn í Þorlákshöfn

Gils Guðmundsson:

Herra forseti. Ég áttí sæti í þeirri n., sem fjallaði um þetta mál, og hef ásamt meðnm. mínum skrifað undir nál. og mælt með því, að frv. verði samþ. Ég get þó ekki látið hjá líða að láta fylgja þeirri afstöðu minni örfáar aths. í sambandi við þetta mál. Það, sem ég vil sérstaklega leggja áherzlu á, er það, að ég tel það fyllilega upplýst, að því er þetta hafnarmál í Þorlákshöfn varðar, að þar hefur á ýmsan hátt verið um að ræða helzt til lítinn undirbúning undir svo stórar og dýrar framkvæmdir eins og þar er verið að vinna að. Eins og hv. frsm. n. greindi frá, hefur það gerzt hvort tveggja, að þetta verk hefur orðið miklu dýrara en áætlað var, og jafnframt, sem ekki er síður bagalegt, að verkið hefur gengið miklu seinna og komið miklu síðar í gagnið en áætlað var og við mátti búast samkv. þeim samningum, sem gerðir voru á sínum tíma um framkvæmdina. Og í sambandi við það er ekkert á móti því, að það komi fram, að ákveðin framkvæmd, hafnargarður, sem átti að vera fulltilbúinn um síðustu áramót, verður samkv. þeim áætlunum, sem nú liggja fyrir, ekki tilbúinn fyrr en eftir 21/2—3 ár. Ég vildi vekja athygli á þessu, að þarna hefur á ýmsan veg ekki tekizt eins vel til og skyldi um undirbúning þessa stóra máls. Hins vegar er það ljóst, að þau sveitar- og sýslufélög, sem hér eiga hlut að máli og eiga þetta mannvirki og hafa staðið að nokkru leyti straum af því, þó með mjög verulegum fjárframlögum frá ríkissjóði, það er þessum sýslufélögum algerlega um megn að standa undir þeim framkvæmdum, sem enn er ólokið við þessa hafnargerð, og hitt liggur jafnframt fyrir, að hér er um mikið nauðsynjamál að ræða að fá þarna sem fyrst góða og vel búna höfn. Þess vegna er það, að sjútvn. varð sammála um að mæla með samþykkt frv., en ég vil leggja á það áherzlu, að í sambandi við slík stórmál sem þetta þarf vissulega í framtíðinni að hafa betri gát á í upphafi um það, að frumrannsóknir og undirbúningur að slíkri mannvirkjagerð, sem kostar mikið fé og er mikilvæg, sé góður og fullnægjandi.

Það liggur að vísu ekki fyllilega ljóst fyrir af þeim upplýsingum, sem ég hef fengið, hverjum er um að kenna, að þetta verk hefur hæði orðið helmingi dýrara eða litur út fyrir, að það verði helmingi dýrara en áætlað var og það tekur miklu lengri tíma að ljúka því en gert var ráð fyrir og samningar voru gerðir um. Það virðist svo, að vita- og hafnarmálaskrifstofan annars vegar og verktakinn hins vegar ýtist dálítið á um þetta, og ég skal ekki fella neinn dóm um það, hvor aðilinn beri meiri ábyrgð á því, að þannig hefur til tekizt, að verkið hefur orðið miklu dýrara og seinunnara en ráðgert var. E.t.v. eiga báðir þar nokkra sök, en það er ljóst, að þarna hefur verið um ónógan undirbúning að ræða. En í þessu efni er komið sem komið er, og til þess eru vitin að varast þau.

Að lokum vil ég aðeins endurtaka það, að ég tel rétt, eins og málum er háttað, að þessi höfn í Þorlákshöfn, sem vafalaust á eftir að koma að miklum notum og það fleiri aðilum en þeim, sem byggja nálægar sveitir, verði gerð að landshöfn og verði sem fyrst gerð, henni verði komið til fullra nota, eins og til hefur staðið, allt frá því að hafnar voru framkvæmdir við þetta mannvirki.