28.04.1966
Neðri deild: 80. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2424 í B-deild Alþingistíðinda. (1620)

188. mál, landshöfn í Þorlákshöfn

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. Það mun hafa verið árið 1958, að samþykkt var hér á hv. Alþ. svo hljóðandi till. til þál.:

„Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að láta í samráði við vitamálastjóra gera 10 ára áætlun um nauðsynlegustu hafnarframkvæmdir í landinu og sé fyrst og fremst við það miðað, að framkvæmdirnar geti stuðlað að öruggri og aukinni útflutningsframleiðslu. Einnig verði endurskoðuð gildandi lagaákvæði um skiptingu kostnaðar við hafnargerðir milli ríkis og sveitarfélaga, svo og ákvæðin um landshafnir og önnur þau atriði l. um hafnargerðir, er ástæða þykir til að breyta með hliðsjón af fenginni reynslu og til samræmis við aðrar niðurstöður athugunar þessarar. Jafnframt verði endurskoðuð l. um hafnarbótasjóð og athugað, hvort ekki sé tiltækilegt að efla starfsemi hans, svo að hann geti m.a. veitt hagkvæm lán til langs tíma til nýrra hafnarframkvæmda.“

Þessari endurskoðun er nú fyrir alllöngu lokið, og hv. þm. er það öllum kunnugt, að ríkisstj. hefur verið sent frv., sem samið hefur verið á grundvelli þessarar endurskoðunar. Hæstv. ríkisstj. hefur hins vegar að svo vöxnu máli ekki talið sér fært að flytja þetta frv. Með frv. því, sem hér liggur fyrir, er hins vegar lagt til, að I. verði sett um þriðju landshöfnina, þ.e.a.s. um einungis eitt atriðið, sem gert var ráð fyrir, að heildarendurskoðun færi fram á.

Ég skal ekki fara út í það að ræða mikið um landshöfn í Þorlákshöfn og skal raunar ekki andmæla því, að þetta frv. verði samþ. En ég tel þó, að þessi ráðstöfun orki mjög tvímælis af mörgum ástæðum m.a. meðan engri höfn hefur verið veittur slíkur stuðningur á öllu Norðurlandi, Vestfjörðum og Austfjörðum. Mörg ákvæði gildandi hafnarlaga eru löngu úrelt orðin, t.d. ákvæðin um hlutföllin milli framlaga ríkissjóðs og sveitarfélaganna til hafnanna. Mjög nauðsynlegt er einnig að efla hafnarbótasjóð verulega, ef hann á að geta sinnt hlutverki sínu.

Hæstv. sjútvmrh. lýsti því yfir hér í framsöguræðu sinni, að ríkisstj. hefði ákveðið að gera nú gangskör að því að ljúka heildarendurskoðun hafnarlaganna, og fagna ég þeirri yfirlýsingu. En ég vildi nú samt gjarnan fá að heyra öllu meira um það frá hæstv. ráðh., hvað skjótt þessi endurskoðun á að gerast. Mér finnst varla hægt að ætlast til þess af okkur, stuðningsmönnum hæstv. ríkisstj., að við samþykkjum þetta frv., án þess að vita hið minnsta um það, hver eigi að verða örlög hinnar almennu endurskoðunar hafnarlaganna. Ég mundi þess vegna óska þess að fá að heyra nánar um það frá hæstv. sjútvmrh., hvort hann hyggist leggja frv. um þessi efni, almenna endurskoðun hafnarlaganna, fyrir næsta reglulegt Alþ., eða hvort vænta má frekari dráttar á þessari nauðsynlegu endurskoðun. Ég hika ekki við að segja það, að fylgi mitt við þetta frv. fer nokkuð eftir því, hvert svar hæstv. ráðh. verður um þetta atriði.