02.05.1966
Neðri deild: 85. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2426 í B-deild Alþingistíðinda. (1623)

188. mál, landshöfn í Þorlákshöfn

Frsm. (Birgir Finnsson):

Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. sjútvn. á þskj. 649, hefur n. orðið sammála um, að óhjákvæmilegt sé, að þetta frv. nái fram að ganga. Það hefur komið í ljós, að þau tvö sýslufélög, sem áttu frumkvæðið að hafnargerðinni í Þorlákshöfn, rísa ekki undir verkinu fjárhagslega og verður ekki hjá því komizt, að ríkissjóður taki á sig þær skuldir, sem til hefur verið stofnað, og sjái um áframhald verksins, eftir því sem tiltækilegt er og nauðsynlegt verður talið. N. fellst á, að ekki verði hjá þessu komizt, en hins vegar kom það fram í n., að menn töldu, að ekki væri ástæða til að fara geyst í framkvæmdirnar við Þorlákshöfn umfram það, sem nauðsynlegt er til þess að ljúka þeim áföngum, sem þegar hefur verið byrjað á, og tryggja það, að þeir komi að sem mestu gagni.

N. ber fram breyt. við 4. gr. frv., sem er um stjórn hafnarinnar. Sú gr. er þannig í frv., eins og það kom frá hv. Ed., að í stjórn hafnarinnar skuli eiga sæti 7 menn, kosnir af sameinuðu Alþ., og ráðh. sá, sem fer með hafnarmál, skipi formann hafnarstjórnarinnar úr hópi stjórnarmanna. N. leggur til, að kjörtímabil stjórnarinnar verði ákveðið 4 ár í senn, eins og fram kemur í brtt. n. á þskj. 649. Enn fremur var rætt um það í n., að ástæða mundi vera til að kjósa jafnmarga varamenn, en líklega er það mín sök, að sú till. hefur ekki verið tekin upp í brtt. n., og verð ég því að flytja hér skriflega brtt. hvað þetta snertir. Leyfi ég mér fyrir hönd sjútvn. að leggja til svo hljóðandi breyt. við 4. gr.: „Á eftir orðunum „7 menn“ komi: og jafnmargir varamenn“. Ég fer þess á leit við hæstv. forseta, að hann leiti afbrigða fyrir þessari till.

Rætt var um það í sjútvn., að mjög væri æskilegt, að þeirri endurskoðun á l. um hafnargerðir, sem lengi hefur staðið til, yrði lokið sem allra fyrst, og fögnuðu menn því, að hæstv. sjútvmrh. skyldi lýsa því yfir við 1. umr., að hann mundi beita sér fyrir nýrri lagasetningu um þetta atriði fyrir næsta þing.

Það er augljóst, að menn eru ekki allt of hrifnir af því að fjölga landshöfnum, þegar hugtakið landshöfn hefur ekki lengur aðra þýðingu en þá, að ríkið borgi allan kostnað við landshafnirnar. Með því móti, að fáeinar hafnir í landinu njóti slíkra forréttinda umfram aðrar, má gera ráð fyrir því, að af ráðstöfunarfé, sem fyrir hendi er á hverjum tíma, fari verulegur hluti til landshafnanna, en hinar hafnirnar fái ekki eins mikið í sinn hlut af ráðstöfunarfénu. Þannig er á fjárl. yfirstandandi árs veitt, ef ég man rétt, til 58 hafna framlag úr ríkissjóði 16.6 millj. kr., en afborganir af hafnalánum vegna landshafna og Þorlákshafnar eru 16.8 millj. kr., eða heldur hærri upphæð. Þetta er augljós hlutur. Hitt má svo aftur segja, að mjög hafi greitt fyrir hafnargerðum í landinu sá háttur, sem upp hefur verið tekinn á síðustu árum, að ríkisvaldið beiti sér fyrir lánsfjárútvegunum til hafnanna, og það er auðvitað mjög þýðingarmikið atriði. En einnig er augljóst, að mjög margar hafnir fá ekki risið undir öllum stofnkostnaðinum, sem á þeim hvílir, og ríkið verður þá að greiða vegna þeirra í gegnum Ríkisábyrgðasjóð. Það má segja, að það væri betri regla á þessu að ákveða þegar í byrjun, að ríkissjóðsframlagið skuli vera hærra, og fyrir því hygg ég, að sé almennur þingvilji.