29.04.1966
Efri deild: 75. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2438 í B-deild Alþingistíðinda. (1641)

195. mál, kísilgúrverksmiðja við Mývatn

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Það voru tvö atriði í sambandi við ræðu hv. þm., sem ég vildi víkja að. Í fyrsta lagi kom hér fram nokkur misskilningur í ræðu hv. 4. þm. Norðurl. e. í sambandi við þau svör, sem af minni hálfu höfðu verið gefin í fsp.-tíma í Sþ. í vetur í sambandi við kísilgúrverksmiðjuna vegna spurninga frá Birni Jónssyni, hv. 4. þm. Norðurl. e. Ein spurningin eða 2. spurning hans var eftirfarandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Er fyrirhugað að leggja samninga, ef gerðir verða við aðra aðila og á öðrum grundvelli en ráð var fyrir gert í grg. ríkisstj. með frv., til l. um kísilgúrverksmiðju við Mývatn, fyrir Alþ.?“

Þessu svaraði ég á eftirfarandi hátt: L. um kísilgúrverksmiðju við Mývatn nr. 22 frá 1964 veita almennan rétt til samvinnu við erlendan aðila um framleiðslu,og sölu kísilgúrsins, og takmarkast l. því ekki við hollenzka félagið AIME og samvinnu við það. Ég tel hins vegar rétt, að Alþ. verði gerð grein fyrir málinu til hlítar, ef og þegar fyrir liggja hugsanlegar breytingar frá því, sem áður var ráðgert við afgreiðslu málsins í þinginu. Að svo miklu leyti sem aðstöðubreytingar kynnu að leiða til þess, að nauðsyn væri breytinga í löggjöf, verður að sjálfsögðu ekki hjá því komizt, að málið komi að nýju fyrir Alþ. Ég gaf engin fyrirheit, eins og fram kom hjá hv. þm., um að samningar yrðu lagðir fyrir þingið, og það hlýtur að byggjast á einhverjum misskilningi á þessu svari mínu. Það hefur því í einu og öllu verið uppfyllt.

Hv. 6. þm. Sunnl. vildi vita um viðhorf ríkisstj. eða ráðh. til nokkurra atriða — var það ekki gildistíminn? (HB: Rétt var það.) Já, og um að íslenzkir tæknimenn séu hafðir með í stjórn við framleiðsluna, eins og frekast er kostur. Um gildistímann hefur verið gert ráð fyrir og mér tjáð af þeim mönnum, sem í samningum hafa staðið, að milli þeirra og hins erlenda fyrirtækis sem væntanlegs þátttakanda í verksmiðjufélaginu og eiganda sölufélags hafi verið talað um 20 ár. Um það hefur verið, eins og hv. 1. þm. Norðurl. e. gerði grein fyrir, alveg fullt samkomulag milli þeirra aðila, sem að málinu hafa unnið, og ég hef enga ástæðu til og hef ekki í hyggju að beita mér fyrir neinum breytingum á því atriði. Hinu tel ég alveg sjálfsagt að vinna að, sem vikið var að um íslenzka tæknimenn.

Um það, að sölufélagið, sem er eign erlends fyrirtækis, lúti í einu og öllu íslenzkri löggjöf, er ég reiðubúinn til að gefa þá yfirlýsingu mína, að það tel ég, að rétt sé, og það muni að sínu leyti verða alveg eins og álbræðslufyrirtækið í Straumsvík, lúta í einu og öllu íslenzkri löggjöf. Ég vil ekki binda mig við neinar yfirlýsingar um það, að ríkisstj. í framtíðinni kunni ekki að vilja skjóta ágreiningi í sambandi við Johns Manville, þetta ameríska fyrirtæki, út af sölufélaginu og fjárkröfum, sem kynnu að skapast þar, undir erlendan gerðardóm eða alþjóðlegan gerðardóm eða hvað við eigum nú að kalla það. Eins og kunnugt er, er hér fyrir þinginu nú mál, sem við getum kallað samþykkt Alþjóðabankans, sem gerir ráð fyrir gerðardómi á milli ríkja og einkafyrirtækja, og ef það nær samþykki Alþ. er það að sjálfsögðu í samræmi við íslenzka löggjöf, ef íslenzk ríkisstj. síðar meir teldi henta að fara þá leið að skjóta ágreiningi við Johns Manville til gerðar samkv. þeirri samþykkt. Það gæti vel svo farið, að það væri hreint og beint hagsmunamál ríkisstj., en ekki Johns Manville, að þessi leið væri farin og hún liti þá svo á, að það að fara að ákvæðum þessarar samþykktar og skjóta málinu til þeirrar gerðar, sem þar er gert ráð fyrir, mundi kannske auðvelda henni að ná þeim árangri, sem hún ætlar sér í sambandi við fjárkröfur á hendur Johns Manville.

Annað var það ekki, held ég, sem ég þurfti að taka fram í sambandi við þetta.