30.04.1966
Neðri deild: 84. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2443 í B-deild Alþingistíðinda. (1655)
195. mál, kísilgúrverksmiðja við Mývatn
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég átti nú ekki von á því, að þetta mál yrði hér til umr. í dag. Það var ekki á þeirri dagskrá, sem fyrir þessum fundi lá, og ég hafði fengið upplýsingar um það, að það yrði aðeins stuttur fundur í d. nú að þessu sinni. En svo hefur verið horfið að því ráði að setja hér aukafund og taka þetta mál hér fyrir, sem er óneitanlega stórt mál. Mér þykja þetta heldur óeðlileg vinnubrögð, og ég held, að það verði ekki til þess að flýta afgreiðslu þessa máls að taka það hér fyrir á þennan hátt, að ekki geti farið hér fram eðlileg l. umr. um málið. Upplýsingar varðandi þetta mál eru sáralitlar gefnar í grg. frv., og þær komu hér nánast engar fram hjá hæstv. ráðh. í sambandi við framsögu hans með málinu.
Með þessu frv. er farið fram á mjög víðtækar heimildir til handa ríkisstj. til samninga við erlendan aðila um framkvæmdir í þessum efnum. En hins vegar er engin grein gerð fyrir því, hvernig þessir samningar við erlenda aðila eiga að vera í meginatriðum. Þetta tel ég, að nái vitanlega engri átt, að leggja slíkt stórmál sem þetta fyrir þingið, án þess að full grein sé þá gerð fyrir því, hvernig þeir samningar eiga að vera í meginatriðum, sem verið er að biðja um heimild til þess að gera. Ég hefði t.d. viljað fá upplýsingar um það eftir alla þá undirbúningsvinnu, sem átt hefur sér stað í sambandi við þetta mál, hvað er áætlað, að stofnkostnaður verksmiðjubyggingarinnar verði miðað við nýjustu áætlun. Og ég vildi gjarnan fá það einnig upplýst, hvernig er hugsað að afla fjár til þessara framkvæmda. Þó að ákveðnar upplýsingar hafi verið gefnar í þessum efnum, þegar l. um kísilgúrverksmiðju við Mývatn voru samþ. hér fyrir alllöngu síðan, tel ég víst, að á því hafi orðið mikil breyting, og það er vitanlega sjálfsagt að skýra Alþ. frá því, hvernig þessi mál standa nú. Ég vil einnig fá upplýsingar um það, hvernig verður háttað hlutdeild sveitarfélaga í því hlutafélagi, sem gert er ráð fyrir að setja á fót um byggingu verksmiðjunnar og rekstur verksmiðjunnar. Svo langt er um liðið, síðan l. um kísilgúrverksmiðju voru sett, að það hlýtur að liggja orðið fyrir í meginatriðum, hver sé vilji sveitarfélaga í þessum efnum, og hvort það sé líklegt, að sveitarfélögin á Norðurlandi gerist hér hluthafar í þessu félagi, sem nemur 10%. Þetta skiptir miklu máli, vegna þess að þetta frv. er þannig byggt upp, að hinn erlendi aðili, sem gert er ráð fyrir, að eigi a.m.k. 39% af hlutafé fyrirtækisins, getur, ef sveitarfélögin ekki notfæra sér sinn rétt um það að eignast 10% þá getur hann orðið eigandi að allt að 49% hlutafjárins. Um þetta hljóta að vera til upplýsingar og eiga vitanlega að koma hér fram á hv. Alþ., þegar þetta mál er hér til 1. umr. Þá efast ég ekki um, að það hljóti að hafa verið gerðar áætlanir um rekstur þessa fyrirtækis. Enginn fer út í það að efna til fyrirtækis, sem kostar jafnvel nokkur hundruð millj. kr. eða nokkuð yfir 100 millj. kr., án þess að gerðar hafi verið rekstursáætlanir. Og það er full ástæða til þess að upplýsa hér um það, hvernig þessum áætlunum er farið.
Nú er gert ráð fyrir því samkv. þessu frv., að nýr erlendur aðili eigi að koma hér til. Það á ekki að vera hið hollenzka fyrirtæki, sem á að verða meðeigandi í framleiðslufélaginu eða hafa með höndum sölu á framleiðslu verksmiðjunnar, heldur er þar um amerískt félag að ræða samkv. þessu frv. Ég vildi fá upplýsingar um það, af því að talsverðar viðræður hafa átt sér stað við þetta ameríska fyrirtæki, sem nú er gert ráð fyrir, að taki að sér einkasölurétt til þess að selja framleiðslu verksmiðjunnar, hvað á að greiða þessu erlenda fyrirtæki há sölulaun? Það er eflaust búið að ræða um það. Ég vil gjarnan fá það upplýst um leið og verið er að gefa tilteknum aðila einkaumboðsrétt til þess að fara með söluna, hvaða þóknun hann á að fá í meginatriðum fyrir sitt starf.
Þá er gert ráð fyrir í þessu frv., að framleiðslufélagið, sem á þó að vera íslenzkt félag að meiri hl. til, þar sem ríkið á að eiga 51% hlutafjárins, skuli skattlagt eftir sérstökum reglum, en ekki eins og innlent fyrirtæki. Ég spyr um það, hvers vegna nauðsynlegt sé að setja slíkar sérreglur um þetta félag. Hvað er það, sem kallar á það að skattleggja þetta félag eftir öðrum reglum en önnur innlend félög? Er þetta krafa frá hinum erlenda aðila, sem á að vera hluthafi í félaginu, og hvaða ástæður liggja til þess arna?
Ég verð að segja það fyrir mitt leyti, að mér þykir í rauninni alveg furðulegt, að farið skuli fram á jafnvíðtækar heimildir til þess að semja við erlendan aðila, eins og gert er ráð fyrir í þessu frv., um jafnstórt mál og hér er um að ræða, án þess að það sé gerð hér allítarleg grein fyrir því, hvernig þessir samningar séu fyrirhugaðir í öllum meginatriðum. Ég hefði talið miklu eðlilegra, að þegar þannig stendur á, að það þykir rétt að semja við erlenda aðila um mál eins og þetta, væru beinlínis lögð fyrir Alþ. til staðfestingar þau drög að samkomulagi, sem gerð hafa verið, svoleiðis að þar færi ekkert á milli mála. Mörg önnur atriði koma svo auðvitað inn í þetta mál. Væntanlega verður hægt að fá eitthvað upplýst um málið í þeirri n., sem kemur til með að fjalla um það. En ég hefði kunnað miklu betur við það, að hæstv. ráðh. hefði gert hér nánari grein fyrir því, hvað á bak við þetta stendur en hann hefur gert hér í sinni framsögu, og ég lýsi hér óánægju minni yfir því, að þetta mál skuli vera tekið hér fyrir á þann hátt, sem gert er hér nú á þessum aukafundi, án þess að nokkur vitneskja hafi verið gefin um það, að þetta mál yrði tekið til umr. nú í dag.