04.05.1966
Neðri deild: 88. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2452 í B-deild Alþingistíðinda. (1662)
195. mál, kísilgúrverksmiðja við Mývatn
Frsm. 1. minni hl. (Lúðvík Jósefsson):
Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. hefur fjhn. d. ekki orðið sammála um afgreiðslu málsins. Ég hef skilað nál. á þskj. 678 og legg til, að frv. verði fellt. Meginástæðurnar fyrir því, að ég legg til, að frv. verði fellt, eru þær, að þetta frv. felur í sér þannig breytingar á gildandi l. um kísilgúrverksmiðjuna við Mývatn, að ríkisstj. fengi samkv. þessu frv. svo víðtækar heimildir til þess að semja við erlendan aðila um byggingu verksmiðjunnar og rekstur hennar og um sölu á framleiðslunni, að ég tel, að það sé ekki rétt að veita slíka heimild á meðan jafnmikið skortir á um upplýsingar um það, hvernig sá samningur yrði endanlega, sem ríkisstj. gerði við þennan erlenda aðila. Ég tel líka, að það sé gert ráð fyrir því að heimila hinum erlenda aðila allt og mikla þátttöku í þessu rekstrarfélagi og það sé gert ráð fyrir því að veita honum allt of sterka aðstöðu í sambandi við rekstur fyrirtækisins. Nokkrar upplýsingar hafa verið veittar um málið, eins og það liggur nú fyrir, og skal ég minnast hér á nokkur þau atriði, sem fram komu á fundi fjhn. og máli varða.
Upplýst er, að nú sé gert ráð fyrir því, að stofnkostnaður þessarar verksmiðju verði 145–150 millj. kr. Ráðgert er, að þessi stofnkostnaður fáist með þeim hætti, að í fyrsta lagi sé um að ræða hlutafé, sem nemur 60 millj. kr., vörukaupalán frá Export-lmport bankanum, sem nemur 28 millj. kr., og lán frá hinum erlenda aðila, sem á að verða þátttakandi í verksmiðjufélaginu, 34 millj. kr. og auk þess síðan nokkur smærri erlend lán, þannig að heildarstofnkostnaðurinn fengizt eða í kringum 145 millj. kr. Það er því ljóst af þessu, að ríkissjóður mundi þurfa að taka á sig talsverðar lánsútveganir fyrir fyrirtækið og veita þó nokkrar ríkisábyrgðir, vegna þess að talsvert af þessum lánum, sem fyrirhugað er að taka, er til tiltölulega stutts tíma, til 7–10 ára. Upplýsingar voru gefnar um það, að talsverð óvissa ríkti um rekstur þessa fyrirtækis, og þar skipti að sjálfsögðu mestu máli um verð á framleiðsluvöru verksmiðjunnar, en mér sýnist á þeim upplýsingum, sem gefnar voru, að allmikil hætta sé á því, að um nokkurn taprekstur kunni að vera að ræða nokkur fyrstu árin. Þó gæti orðið um hagstæðan rekstur að ræða, ef verðið á framleiðslunni væri í hámarki þess, sem kunnugt er nú um, að þessi framleiðsluvara seljist á.
Sá erlendi aðili, sem hér er gert ráð fyrir, að verði þátttakandi í byggingu verksmiðjunnar og fái einkasöluumboð á framleiðsluvörum hennar, mun vera einn stærsti framleiðandi í þessari grein í heiminum og ábyggilega sá, sem hefur mest af þessari vöru til sölumeðferðar af öllum aðilum. Upplýst er, að hann hafi haft með höndum um 65% af sölu á slíkri framleiðslu sem þessari af því magni, sem selt hefur verið í Vestur-Evrópu að undanförnu. Það er því enginn vafi á því, að hér er fyrirhugað að gera samning við mjög voldugan aðila og mér sýnist, að hann eigi að fá hér ákaflega sterk tök, þar sem hann á að eiga í framleiðslufélaginu minnst 39% af hlutafénu, en beinlínis er gert ráð fyrir því, að hann geti átt allt að 49%, ef sveitarfélögin á Norðurlandi notuðu sér ekki sinn rétt til þess að eiga 10% af hlutafénu, því að upplýst var, að hringurinn væri tilbúinn að bæta við sig hlutafé til viðbótar við þessi 39%. Mér sýnist því, að þessi voldugi hringur komi til með að verða mjög stór aðili að sjálfu framleiðslufélaginu, en fái síðan alger yfirráð varðandi sölu á framleiðsluvörum verksmiðjunnar. Upplýst hefur verið, að sölufélagið eigi að fá í sölulaun 10% af verði miðað við 3000 tonna sölu á ári, 12% miðað við 6 þús. tonna sölu á ári, 15%, ef salan verður 9 þús. tonn, 18%, ef salan verður 12 þús. tonn, 21% sölulaun, ef salan verður 20 þús. tonn, 24% sölulaun, ef salan verður 24 þús. tonn, sem gert er ráð fyrir, að geti verið hámarksframleiðsluafköst verksmiðjunnar á ári, en 31%, ef sölumagnið fer yfir 24 þús. tonn á ári, sem gæti að sjálfsögðu verið, ef nokkur framleiðsla hefði safnazt fyrir og ekki selzt á fyrra árinu, en full framleiðsluafköst hefðu svo aftur orðið á því síðara.
Manni kemur þetta þannig fyrir sjónir, að þessi söluþóknun sé gífurlega há, en það er að vísu ekki gott að gera sér fulla grein fyrir því, hvað sanngjörn sölulaun ættu að vera, vegna þess að maður veit of lítið um það, hvernig sala á þessari vöru fer fram og hversu kostnaðarsöm sölumeðferðin er. En það hefur jafnframt komið fram, að nokkur hluti eða talsverður hluti af þessari söluþóknun eigi raunverulega að skila sér aftur til Íslendinga vegna þess að sölufélagið eigi að greiða skatt, sem numið geti 45% af hagnaði sölufélagsins, en meginhlutinn af söluumboðslaununum yrði einmitt talinn sem hreinar tekjur sölufélagsins eða að mestu leyti, svo að þó nokkur hluti af þessum háu sölulaunum kæmi til með að renna til Íslendinga í gegnum skattgreiðslur. Þá er einnig upplýst, að hinn erlendi aðili eigi að fá 6% miðað við framleiðsluandvirði verksmiðjunnar á ári hverju vegna tækniupplýsinga og leiðbeininga í sambandi við stjórn og rekstur. Mér sýnist því, að hinn erlendi aðili, sem vonlegt var um þennan volduga hring, tryggi sig býsna vel, hann fær 6% örugglega í sinn hlut á hverju ári af framleiðsluandvirði verksmiðjunnar vegna þessara upplýsinga, sem hann lætur í té, og síðan fær hann þessi gífurlega háu sölulaun og hefur einkaumboð varðandi alla söluna. Hér er að vísu ekki um ýkja stórt fyrirtæki að ræða. Upplýst var, að í verksmiðjunni mundu vinna í kringum 30 manns, og kann það þó að verða eitthvað nokkru meira, þegar hún er komin alveg í fulla stærð. Ég er ekki alveg viss um það. En hvort heldur sem litið er á stofnkostnað verksmiðjufyrirtækisins eða litið er til þess mannafla, sem gert er ráð fyrir, að vinni við verksmiðjuna, er ekki hægt að ætla, að hér sé um ýkja stórt fyrirtæki að ræða, ekki einu sinni á íslenzkan mælikvarða. Mér þykir því býsna hart í sambandi við stofnsetningu þessa fyrirtækis, að það skuli þurfa að fara þá leið í þessu, sem fyrirhuguð er, að hinn erlendi aðili, jafnsterkur og hann er á þessu sviði, eigi að fá svona gífurlega sterk tök eins og hann fær óumdeilanlega á þessu fyrirtæki, að maður ekki segi, að þetta verði hans fyrirtæki að langsamlega mestu leyti.
Með hliðsjón af þessu, sem ég hef sagt um ýmis ákvæði, sem felast í frv. um fyrirkomulag á rekstri verksmiðjunnar og mjög svo víðtæku heimildir, sem í því felast til handa ríkisstj. til þess að semja við erlendan auðhring um byggingu og rekstur fyrirtækis hér í landinu, verð ég á móti því, að þetta frv. verði samþ., og tel, að það ætti að fella frv. og þá stæðu að sjálfsögðu eftir 1. um kísilgúrverksmiðju, eins og þau eru nú, og ætti þá ríkisstj. að vinna áfram að því að reyna að leysa málið á þeim grundvelli, sem þau gera ráð fyrir og heimila. Það er að vísu sjálfsagt, að það getur orðið um að ræða meira eða minna samstarf og samninga við erlenda aðila í sambandi við uppkomu slíkrar verksmiðju, eins og hér um ræðir, og rekstur hennar, en samstarf eða samblöndun á þann hátt, sem gert er ráð fyrir með þessu frv. og þeim upplýsingum, sem hér hafa verið lagðar fram, getum við Alþb.-menn ekki fallizt á og leggjum því til, að frv. verði fellt.