04.05.1966
Neðri deild: 88. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2454 í B-deild Alþingistíðinda. (1664)

195. mál, kísilgúrverksmiðja við Mývatn

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Ég skal reyna að lengja ekki þessar umr., en ég tel þó alveg nauðsynlegt vegna þeirra minni hl. nál., sem hér hafa komið fram, að segja nokkur orð, svo að mönnum verði það fullkomlega ljóst, hvað hér er um að ræða, hafi þeim ekki verið það áður.

Ég get út af fyrir sig ekki sagt, að mig furði á nál. hv. 5. þm. Austf., vegna þess að þeir, hann og flokksbræður hans, hafa af einhverjum lítt skiljanlegum ástæðum breytt um viðhorf til þessa máls, þannig að það lá ljóst fyrir, þó að ekki lægi ljóst fyrir, af hvaða ástæðum það væri, og skal ég engar getgátur uppi um það hafa. Hann lýsti hér í sínu máli í rauninni efnislega alveg rétt þeim samningum, sem stendur til að gera, og þeim drögum, sem þegar hafa verið gerð að samningum, en mér skildist helzt, að það væri tvennt, sem hann hefði á móti þeim eftir hans ræðu að dæma. Annars vegar væri það, að ríkissjóður tæki á sig áhættu, og hins vegar væri það, að hinn erlendi aðili yrði of sterkur. Varðandi áhættu ríkissjóðs, þá auðvitað verður aldrei fullkomlega um hana vitað, en það má raunar segja, að það hljómi dálítið einkennilega í eyrum hér, þegar sagt er af hálfu aðila, sem hingað til hafa talið og það með réttu, að vel væri gerlegt að ríkissjóður tæki á sig nokkra áhættu til þess að byggja upp atvinnurekstur úti um landsbyggðina, að það sé eitt gundvallaratriðið til andstöðu við málið, að nokkur áhætta verði fyrirríkissjóð að veita þessar ábyrgðir. Ég hygg mig geta alveg fullyrt það, að svo miklu leyti sem nokkuð verður fullyrt, að þessar ábyrgðir, sem hér er um að ræða, séu sannarlega með minnstu áhættuábyrgðum, sem ríkissjóður tekur á sig eða hefur tekið á sig í sambandi við atvinnuuppbyggingu úti um land. Það er að vísu ekki nákvæmlega hægt að segja, hver verður afrakstur þessarar verksmiðju, en það hefur verið kannað bæði það lakasta og það bezta, sem hugsanlegt er, að út úr þeim rekstri komi, og þó að það sé rétt, að það sé líklegt, að það geti orðið halli á rekstri verksmiðjunnar fyrstu árin miðað við það, að allt gangi með því versta, sem við höfum talið, að hugsanlegt væri, jafnast það þegar eftir 3–4 ár og verður úr því mjög verulegur hagnaður.

Hitt atriðið varðandi áhrifavald hins erlenda aðila, þá á það auðvitað heldur ekki við nokkur rök að styðjast. Hér er ekki um stórt fyrirtæki að ræða. Út af fyrir sig má segja, að Íslendingar hefðu auðveldlega ráðið við að byggja þessa verksmiðju sjálfir, en ástæðan til þess, að frá upphafi hefur verið leitað til erlendra aðila og það í rauninni með, að ég hygg, samhljóða stuðningi allra hv. þm. í sambandi við kísilgúrl., þegar þau voru á sínum tíma sett, — ég man ekki til, að nein andstaða væri gegn þeim, — ástæðan er fyrst og fremst sú, að það er talið, og ég er sannfærðari um það eftir því sem ég kynni mér betur þetta mál, — það hefur fallið í minn hlut að leiða þessar umr. og vera stjórnarformaður í kísiliðjunni, — að það væri algert glapræði, að Íslendingar færu sjálfir að ráðast út í að byggja þessa verksmiðju, án þess að geta komizt í samband við aðila, sem gæti tryggt bæði tækniþekkingu og sölu framleiðslunnar að svo miklu leyti, sem auðið er að fá nokkurn til þess formlega að taka á sig slíka algera skuldbindingu.

Það liggur ljóst fyrir og er engin ætlun að breyta því, að íslenzka ríkið verður meiri hl.-eignaraðili að þessari verksmiðju. Og hvort hinn erlendi aðili á 29% eða 39% eða eitthvað þar á milli, það auðvitað skiptir ekki hinu minnsta máli nema að því leyti, að það getur aukið áhuga hans á því að stuðla að sem beztri afkomu verksmiðjunnar eftir því sem hann á meira. En allavega er meiri hl.-aðstaða Íslands tryggð. Þetta er alíslenzkt hlutafélag og lýtur íslenzkum I. að öllu leyti og því ekki um það að ræða, að hér sé verið að veita þessum erlenda aðila, þótt fjársterkur sé, sem hann vissulega er, og ég segi, að það er vel, þá er ekki verið að veita neina sérstöðu hér í landi á neinn minnsta hátt. Hitt er svo sagt í þessu sambandi jafnhliða, sem talað er um, að fyrirtækið sé lítið, og það er rétt, að það er ekki mjög stórt, en getur hins vegar orðið mjög gagnlegt til atvinnuuppbyggingar á þessu landssvæði, að hinn erlendi aðili fái einhverja sterka aðstöðu hér á landi. Það er rétt, að hann ætlar að setja hér upp sölufélag, sem yrði staðsett hér, er það er eingöngu eftir ósk okkar Íslendinga og íslenzku samninganefndarinnar. Við höfum lagt á það mikla áherzlu, að sölufélagið yrði hér staðsett, og það er vegna þess, að þetta félag kemur til með að gefa landinu verulegar tekjur miðað við það samkomulag, sem tekizt hefur að fá um, hvernig það félag verði byggt upp. Útgjöld þess verða hverfandi lítil, þannig að það má segja, að meginhluti þeirra umboðslauna, sem til sölufélagsins renna, verði skattskyld, þannig að 45% af þeim verði eftir í landinu í formi skatta til ríkis og sveitarfélaga. Þetta er að sjálfsögðu mjög mikið hagsmunamál fyrir það bæjarfélag, þar sem sölufélagið yrði staðsett, en það er ætlunin, að verði Húsavík. Það er auðvitað með einu símtali hægt að koma því til leiðar, að þetta sölufélag verði ekki hérlendis. En ég vil ekki bera ábyrgð á því. Það getur verið, að einhverjir hv. þm. vilji gera það. Ég vil það ekki. Ég tel, að það sé ekki verjandi, og ég held, að ég geti talað þar fyrir munn allra meðnm. minna í samninganefndinni við Johns Manville.

Ég vil svo taka það fram, án þess að fara nánar út í þetta mál, að það er skoðun okkar allra í samninganefndinni, að samkomulagshorfur eða samningar þeir, sem nú er nokkuð öruggt að takist að gera við Johns Manville, séu okkur mjög hagstæðir og leggi traustan grundvöll að afkomu þessa fyrirtækis í framtíðinni. Og það væri okkur til mikils tjóns, ef við spiluðum úr höndum okkar þeim möguleika að gera þessa samninga.

Það kann vel að vera, að á grundvelli samninganna um kísilgúrverksmiðju, eins og þeir eru í dag, væri hugsanlegt að finna einhverja erlenda aðila, sem vildu eiga við okkur einhverja samvinnu. Það er búið að athuga það mál víða, eftir að slitnaði upp úr samningum við hið hollenzka fyrirtæki AlME, en ég held, að ekki nokkur af okkur, sem höfum komið nærri þessu máli, mundum telja, að það væri til bóta og í rauninni í því stórfelld áhætta og engar líkur til, að við getum tryggt okkar hagsmuni á líkan hátt og við teljum nú vera auðið að gera.

Menn kunna að spyrja. Má þetta mál ekki engu að síður bíða til næsta þings? Það má ekki bíða til næsta þings af mjög einföldum ástæðum, þeim, að sannleikurinn er sá, að ég mundi ekki vilja fullyrða það, að Johns Manville biði þess tíma. Þeirra áhugi hefur ekkert verið meiri en okkar að ná fram þessu samkomulagi, og í annan stað eru fjárhagsástæður þannig, að okkur er það mikil nauðsyn að fá gengið frá samningum m.a. til þess að fá þau lán, sem eru okkur mjög þýðingarmikil, en Johns Manville ætlar að veita fyrirtækinu 800 þús. dollara lán eins og hv. 5. þm. Austf. upplýsti hér réttilega, og er það veitt með þeim kjörum, að ef erfiðleikar eru hjá verksmiðjunni, þarf ekki að greiða af því láni fyrr en afborganir annarra lána hafa verið greiddar, þannig að hér er að sjálfsögðu um mjög mikið atriði að ræða, auk þess sem er mikilvægt að fá endanlega gengið frá hlutafélaginu og að Johns Manville greiði sitt hlutafé. Framkvæmdir við kísiliðjuna eru í fullum gangi, og það hefði mjög alvarleg áhrif að stöðva þær. Vélar hafa þegar verið pantaðar. Fyrir þessu öllu voru heimildir á sínum tíma í kísillögunum. og það getur valdið okkur ófyrirsjáanlegu tjóni, ef ekki er hægt að halda áfram þessu verki með eðlilegum hætti. Ég tel þess vegna, að það væri til mikils tjóns og raunar ósýnt, hvað slæmar afleiðingar það gæti haft, ef fresta ætti þessu máli nú.

Varðandi það, sem kemur fram í hinni rökstuddu dagskrá hv. fulltrúa Framsfl. í fjhn., get ég ekki annað en lýst nokkurri undrun yfir þeirri afstöðu. Í Ed. var sambærileg afstaða frá hálfu hv. þm. Framsfl. í þeirri d. að undanteknum hv. l. þm. Norðurl. e., Karli Kristjánssyni, sem hefur fylgzt með þessu máli frá upphafi, unnið mjög dyggilega og gott starf í þeirri n., sem að þessu hefur unnið, og á grundvelli sinnar þekkingar og reynslu af því máli markaði hann sína afstöðu. Þar var því hins vegar haldið fram, að ekki hefði komið nægilega skýrt fram, hvað gert væri ráð fyrir, að yrði um deilumál milli Johns Manville og Íslendinga eða hvað yrði í samningnum um þau atriði. Því var í Ed. lýst yfir bæði af mér sem formanni samninganefndarinnar þar og hv. 1. þm. Norðurl. e., Karli Kristjánssyni, hvað gert væri ráð fyrir, að yrði í umræddum samningi eftir þeim viðræðum, sem við hið ameríska fyrirtæki hafa farið fram, og hæstv. iðnmrh. gaf þar almenna yfirlýsingu, sem hann einnig endurtók hér í Nd., og gerði hér einnig, að ég hygg, grein fyrir þeim upplýsingum, sem fram hefðu komið í Ed. um, hvað hugsað væri í þessu sérstaka tilfelli. Ég gerði einnig grein fyrir þessu í fjhn. hv. Nd., þar sem ég mætti eftir ósk formanns n. til að gefa upplýsingar, sem þar var beðið um og að sjálfsögðu var eðlilegt að gefa, og þar skýrði ég enn frá því, að það væri gert ráð fyrir, að í þessum samningi yrði sérstakt ákvæði um, hvernig útkljá skyldi deilumál, þannig að þar yrði að sjálfsögðu dæmt eftir íslenzkum lögum, og ef um deilur yrði að ræða, sem ekki færu fyrir íslenzka dómstóla, þá yrði gerðardómur, sem yrði þannig skipaður, að hvor aðili tilnefndi sinn mann og Hæstiréttur tilnefndi oddamann eins og algeng venja er hér á landi. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar, að það sé gersamlega ómögulegt að gefa yfirlýsingu um það, að í komandi framtíð verði ekki undir neinum kringumstæðum notaðar aðrar aðferðir til að leysa deilumál milli þessara aðila.

Eftir að lögin um gerðardóm Alþjóðabankans hafa verið gerð að lögum þá eru það íslenzk lög, og hv. framsóknarmenn, sem töluðu í Ed., staðfestu það einnig þar, að það væri einnig þeirra skoðun, að að sjálfsögðu væru það orðin íslenzk lög, eftir að Alþ. hefði staðfest þau, og það er auðvitað ekki með nokkru móti mögulegt fyrir ríkisstj. að gefa yfirlýsingu um það, að á einhverjum seinni tíma, seinni stigum máls, eftir mörg ár, kunni ekki þykja henta að nota slíka aðferð í deilu, sem við skulum vona, að ekki rísi, en kynni að rísa milli íslenzka ríkisins og þess aðila, sem hér er um að ræða. Það er auðvitað gersamlega útilokað að gefa slíka yfirlýsingu. Hitt er hægt að gefa yfirlýsingu um, sem liggur ljóst fyrir, að í samningnum sjálfum, eins og hann er, er gert ráð fyrir þessu gerðardómsákvæði, sem ég hef skýrt frá. Að minni hyggju eru það þess vegna einhverjar aðrar ástæður, sem valda því, ef menn eru á móti málinu, eftir að þetta liggur fyrir, sem ég hér hef skýrt frá.

Ég sé ekki ástæðu, herra forseti, til að lengja þessar umr. meira af minni hálfu. Ég taldi rétt, að þetta kæmi fram, þar sem það hefur fallið í minn hlut að bera nokkra ábyrgð á þeim samningum, sem fram hafa farið við hið ameríska fyrirtæki. Ég teldi vera okkur til mikils tjóns, ef það rynni út í sandinn, sem gert hefur verið í þessu máli.