04.05.1966
Neðri deild: 88. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2458 í B-deild Alþingistíðinda. (1666)

195. mál, kísilgúrverksmiðja við Mývatn

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Hv. frsm. meiri hl. n. gaf okkur þær upplýsingar, að það hollenzka fyrirtæki hefði ekki haft fjárhagslegt bolmagn — ég held, að ég hafi heyrt það rétt — til að halda áfram því starfi, sem það hafði tekið að sér. Þegar frv. um að hefja kísilgúrverksmiðjuna við Mývatn lá fyrir síðast,var sagt um þetta fyrirtæki, fyrirtækið AIME, eða hvernig sem á að bera það fram: „Framleiðslufyrirtæki, verzlunarfyrirtæki með efnavörur ýmiss konar. Hefur fyrirtækið gott dreifingarkerfi með slíkar vörur og traust viðskiptasambönd.“ Og svo, með leyfi hæstv. forseta: „Samvinna þess þykir bezt tryggð með því, að hið erlenda fyrirtæki hætti sjálft fjármagni í kísilgúrverksmiðjuna.“ M.ö.o., okkur var sagt hér á Alþ., að þetta fyrirtæki, sem þarna væri verið að semja við og þetta allt saman ætti að byggjast á, væri mjög traust fyrirtæki og hefði mjög góð viðskiptasambönd í Evrópu. Nú allt í einu er sagt við okkur: Þetta fyríttæki hefur ekki fjárhagslegt bolmagn. Megum við ekki fá dálítið betri upplýsingar um þetta? Ég þykist alveg hreint vita fyrir víst; að það var ekki verið að blekkja okkur neitt þegar hitt frv. var lagt fyrir. Hæstv. ríkisstj. hafi verið búin að ganga úr skugga um það, að þetta hafi verið mjög tryggt fyrirtæki, sem þarna var. Hvað hefur breytzt í millibilinu? Það langar mig til að fá að vita.

Ég kastaði því hér fram við 1. umr. þessa máls, að við ættum að fá það upplýst, sem ég held, að hafi breytzt, þ.e. hvort Johns Manville hafði hótað þessu fyrirtæki vissum hlutum, ef þeir væru að skipta sér af þessu, og mér þætti vænt um að vita, hvort hæstv. ríkisstj. hefur einhverja hugmynd um slíkt. Ef þetta fyrirtæki hefur ekki allt í einu orðið hálffallít, beðið eitthvert stórt fjárhagslegt tjón eða eitthvað annað slíkt, hefur það sama fjárhagslegt bolmagn til að leggja í þetta tiltölulega litla fyrirtæki fyrir norðan, eins og það hafði fyrir 2 árum. Það hlýtur eitthvað að vera rangt hér í, nema þá að það hafi komið þarna til, að þessi stóri aðili hafi sagt: Vert þú ekki að skipta þér af þessu. Og það er það, sem ég held, að hafi gerzt. Við erum búnir að verða varir við þetta áður. Það var áður búið að leita til eins ákveðins fyrirtækis, ef ég man rétt, var það ekki, ég held það hafi verið þýzkt fyrirtæki, það hafi verið athugað um þetta nokkurn tíma, en síðan kippti þetta fyrirtæki að sér hendinni. Mig langar að fá upplýsingar um þetta, vegna þess að ég kann ekki við, að það sé verið með feimnismál hér í þessum efnum.

Hæstv. ríkisstj. hefur haft þann hátt undanfarið að reyna að telja okkur trú um, að það væri einhver frjáls samkeppni ríkjandi í heiminum, og ég vil fá það fram hjá þessari hæstv. ríkisstj., að þetta séu ósannindi, það sé ekki nein frjáls samkeppni ríkjandi í heiminum í þessum hlutum, það, sem sé ríkjandi í heiminum, sé drottnun ákveðinna einokunarhringa á þessum sviðum, voldugra einokunarhringa, sem skipi fyrir, hvað gera skuli. Ef menn hafa farið eins og börn út í þetta upphaflega, hafandi ekki hugmynd um, að heimurinn væri þannig í kringum þá, þá er kominn tími til þess, að þeir opni augun. Og ég held, að það sé það, sem hefur gerzt þarna. Hæstv. ríkisstj. hefur ekki gert sér það ljóst, að það eru allmargir áratugir síðan nokkrir einokunarhringir lögðu yfirleitt undir sig markaði og sölumöguleika á ákveðnum sviðum iðnaðar í veröldinni, og þegar maður er að reyna að pota sér áfram af áhuga en litlum auði, verður maður fyrir því, að þessir hringir vilja fá að ráða og vilja fá að segja fyrir verkum. Við ætluðum að vera voða hraustir eins og víkingar, Íslendingar og berjast fyrir að koma út kísilgúr. Vafalaust hefur verið talað við allar dönsku bjórverksmiðjurnar og þær þýzku til að athuga, hvort þær vildu kaupa þetta, vegna þess að þær eru einn höfuðkaupandi í þessum hlutum, svo að það eru þarna vinir okkar og frændur, sem nota þetta. Vafalaust hefur verið unnið að því, og það hefur verið fengið fyrirtæki, sem er tiltölulega traust sölu fyrirtæki, til að starfa að þessu. En svo bara kemur allt í einu upp, að þetta er allt blekking. Menn reka sig á það, að allt í einu ræður þetta fyrirtæki ekki við neitt. Markaðurinn er einokaður. Það er einn voldugur aðili sagður vera með 65% af framleiðslunni og sölu kannske á svo og svo miklum hluta af hinu. Hann segir: Hingað og ekki lengra. Hvað ætlið þið að fara að flækjast út í þetta? Kippið að ykkur hendinni.

Það er bezt, að við fáum að vita, hvað gerist í þessum frumskógi villidýranna, þar sem nokkur ljón rífa til sín ljónspartinn af þessu öllu saman, nokkrir einokunarhringir, sem vilja fá að ráða og segja við menn, ef þeir fara að flækjast út í þetta, eins og við hérna heima með eitt lítið hollenzkt fyrirtæki til að vinna fyrir okkur: Hættið þið þessu. Svo kemur hæstv. fjmrh. hér og segir við okkur: Ja, af einhverjum lítt skiljanlegum ástæðum hefur stjórnarandstaðan að miklu leyti breytt um skoðun. Ég held, að ég hafi það rétt eftir honum: af lítt skiljanlegum ástæðum. Við skulum fyrst tala um þær lítt skiljanlegu ástæður, sem valda því, að það skuli hafa verið lagt frv. fyrir Alþ. fyrir tveimur árum, sem er búið að gerbreyta núna í það öfuga við það, sem það var. Hvað var það, sem við ætluðum að gera fyrir tveimur árum? Við Íslendingar ætluðum að taka í okkar þjónustu erlent félag til að láta þetta félag selja fyrir okkur kísilgúr úti í Evrópu. Við sögðum við þetta félag: Það er gott, að þú leggir 10% í þetta framleiðsluhlutafélag okkar. Ríkið sem sé átti að eiga þetta framleiðsluhlutafélag, en við gátum vel hugsað til þess, að þeir ættu þarna 10%, kannske upp undir 20%, það hafði litla þýðingu svo að segja, það var bara eins og eins konar trygging, svo að þeir hefðu einhverja dálitla hagsmuni af því. Við höfðum öll völd og ráð þar. Nú og við ætluðum enn fremur að hafa full tök á þessu sölufélagi líka. Við ætluðum sjálfir að eiga 40% af hlutafénu. Þar með vorum við Íslendingar að taka erlendan aðila í okkar þjónustu til að vinna að því að útbreiða vöru, sem íslenzka ríkið ætlaði að framleiða í íslenzkri ríkisverksmiðju. Hvað er það, sem hefur breytzt? Það, sem hefur breytzt, er, að nú kemur frv., þar sem erlendur einokunarhringur býðst til að taka okkur í sína þjónustu, taka kísilgúrverksmiðjuna íslenzku svo að segja undir sína stjórn. Hann skuli eiga milli 39–49% af hlutafénu í framleiðslufélaginu og hann skuli fá alls konar sérréttindi hér heima í sambandi við þetta framleiðsluhlutafélag og þá eign, sem hann á í því, og í sambandi við sölufélagið, sem hann á aleinn. M.ö.o., málinu er gersamlega snúið við. Okkar hraustu íslenzku víkingum, sem áttu að herja á meginland Evrópu til að útvega þar markað fyrir kísilgúr, er sagt: Verið þið ekki að fást við þetta, þið skulið puða við Mývatn, ég skal taka það, sem mér þóknast að taka. Það er sá ameríski einokunarhringur, sem er kominn þarna í spilið og ætlar nú að fara að ráða.

Við heyrðum á hæstv. fjmrh., að hann sagði: Ja, það dugar nú ekki fyrir okkur að vera að hugsa neitt sérstaklega mikið um þetta. Við verðum að flýta okkur. Johns Manville liggur á. Ef hann ekki fær svar núna, — það er náttúrlega hægt með einu símtali að segja nei, — er það búið að vera. Ég veit, að þetta mun hæstv. fjmrh. segja algerlega satt. Ég efast ekki um, að það sé alveg hárrétt hjá honum. Þessir karlar segja við menn: Hvað eruð þið litlir karlar þarna úti á Íslandi að flækjast í þessu? Hérna er tilboð, ef þið takið því. Það er mikið, að þeir skyldu ekki setja 24 klst. úrslitafrest, við vorum nú vanastir því frá Bandaríkjamönnum þannig. Það er vafalaust hárrétt, að ef við ætlum að fara eitthvað að hugsa í þessum málum, þá er þetta búið, og ég held, að það sé gott, að við hugsum.

Nú er lagt til, að í staðinn fyrir, að við Íslendingar reynum sjálfir að vinna að framleiðslu kísilgúrs og hafa ítök í sölu hans, ofurseljum við okkur amerískum einokunarhring, sem hvort sem er drottnar svo að segja yfir þessum markaði. Og svo finnst hæstv. fjmrh. það vera af lítt skiljanlegum ástæðum, að við séum núna á móti því, sem við gátum vel hugsað okkur áður. Það er alveg gerólíkt, tvennt ólíkt, sem þarna er um að ræða. Annað var sjálfstæð íslenzk starfsemi, hitt er að gerast aftur þjónn einokunarhringa, eins og í gamla daga. Í þetta skipti er það ekki brennisteinninn, þetta er kísilgúr við Mývatn. En einokunarhringurinn, sem í hlut á, eða einokunarkóngurinn, hann er áreiðanlega eins sterkur og þeir gömlu Danakonungar voru, sem höfðu brennisteinseinokun á sínum tíma.

Þegar hæstv. ríkisstj. lagði alúminsamninginn fyrir Alþ., lét hún fylgja með upplýsingar um Alusuisse, mjög greinilegar upplýsingar, og það var eins og ýmislegt fleira í þeim upplýsingum, sem gefnar voru, þær voru mjög góðra gjalda verðar, það var ekki verið að reyna að stinga neinu undir stólinn, heldur þvert á móti, það var sagt satt og rétt frá. Af hverju er ekki núna upplýst alveg hreint til fullnustu um Johns Manville, hvers konar fyrirtæki það er? Það er sagt jú, að það sé stórt fyrirtæki, en það er í raun og veru allt. Það er sagt, að það sé mjög voldugt á þessum markaði, og það er mjög rétt. Það er sagt, að sölumöguleikar séu takmarkaðir, það var sagt hérna áðan. Já, það er alveg rétt. Sölumöguleikar eru að vísu miklir, en þeir eru takmarkaðir af þessum hring, af því að þessi hringur ræður þessu, hann gín yfir þessum markaði. Hann einokar þennan markað, og það er rétt að segja það frá upphafi. Í staðinn fyrir, að við ætluðum að berjast við einokunarhring, erum við núna að ganga undir jarðarmen þess einokunarhrings. Við skulum segja þetta líka. Þetta er sannleikurinn í því. Það var tæpt ofurlítið á því, þegar gamla frv. lá hér fyrir um árið, að það væri mjög voldugur hringur, sem við væri að fást, einmitt Johns Manville, og við þyrftum þess vegna að geta barizt við hann. Ég man ekki betur en það hafi verið sagt, og undir þeim forsendum ætluðum við að hafa þetta samband við þetta hollenzka félag, til að geta barizt þannig. Núna er gefizt upp í þeirri baráttu, og í staðinn er gengið einokunarhringnum á hönd. Og hæstv. fjmrh. finnst ástæða til að segja, að það séu lítt skiljanlegar ástæður, sem valdi því, að maður hafi breytt um skoðun. Ég held, að hæstv. ríkisstj. hefði átt að vera alveg hreinskilin í þessu frá upphafi, hún hefði átt að segja: Jú, við ætluðum að stofna íslenzkt ríkisfyrirtæki, við ætluðum af okkar klókindum að fá duglegt hollenzkt sölufélag til að vinna þarna með okkur, og það var mjög skynsamlegt, en við rákum okkur á það, að þetta félag hafði ekkert bolmagn, ef þessi hringur vildi beita sér, og það var auðséð, að þessi hringur ætlaði að beita sér og þá gafst þetta hollenzka félag upp, og þá stöndum við hér uppi og getum ekki neitt, nema gefizt upp líka og gengið á hönd einokunarhringnum, og það er það, sem þetta frv. fjallar um. Þá lægi þetta alveg hreint fyrir. Við ætluðum áður að berjast og eiga eitthvað á hættu máske í þessu, og það gat verið mjög erfitt fyrir okkur. Nú hins vegar eigum við að vera hornrekur, þegar þessum hring þóknast. Hann á sjálfur mjög mikið af kísilgúrnámum, og það er gefið, að þegar eitthvað bjátar á, lætur hann svona námur eins og hjá okkur sitja á hakanum, ef um það er að ræða, að við verðum hornreka. Hann á slíkar námur víðar en á Íslandi.

Ég hef því miður ekki mjög miklar upplýsingar um þennan hring. Ég hef ekki náð í þau plögg, sem ég hafði von um að fá. Það er nú einu sinni svo með allt, sem snertir slíkar upplýsingar, að það er varla að fá hér í Reykjavík, ekki einu sinni þau tímarit, sem kunnust eru í veröldinni eins og bandaríska tímaritið „Fortune“, helzta business-tímarit Bandaríkjanna. Það, sem ég veit um hringinn, veit ég m.a. úr bók, sem þegar er orðin nokkurra ára gömul, en þá, þegar þær upplýsingar voru gefnar, 1955, hafði Johns Manville Co. sem activan, sem raunverulegan höfuðstól 217 millj. dollara eða á milli 8–9 þús. millj. ísl. kr. Ég býst við, að það muni vera mun meira nú eftir 10 ár, því að ég veit, að þessi hringur hefur vaxið mjög mikið á millibilinu. Ég gizka á, að hans fjármagn sé ekki undir 10–20 þús. millj. ísl. króna. Hann slagar þannig alveg upp í þann svissneska alúminíumhring, sem við vorum að semja við, og þessi hringur stendur heldur ekki neitt einstakur. Hann er einn af hringunum í þeirri samsteypu, sem er kennd við Morgan, einni voldugustu samsteypu, sem nú er til í veröldinni. Hann er einn af þeim iðnaðarhlutafélögum, sem ásamt Coca Cola og United States Steel Company og General Electric og International Business Machines eru í Morgan-samsteypunni. Þannig, að sá aðili, sem við erum þarna að eiga við, er ekki bara eitt félag út af fyrir sig í Bandaríkjunum, Johns Manville & Co. Þetta er önnur voldugasta samsteypan sem til er í veröldinni, Morgan-samsteypan, sem við hliðina á Rockefeller-samsteypunni er sú voldugasta, sem til er í veröldinni. Það er þess vegna vitað mál, að við erum þarna að eiga við aðila, sem er hvað styrkleika, auð og áhrifavald snertir svoleiðis margfalt, margfalt sterkari en við, og ef við lendum í einhverjum deilum við hann út af einhverju, þó að þetta sé lítið fyrirtæki og slíkt, hefur hann áhrifavald á bak við sig, sem við mundum litið ráða við. Þess vegna eiga þessar upplýsingar að liggja fyrir.

Þetta fyrirtæki er ekki bara fyrirtæki í kísilgúr. Þetta fyrirtæki er eitt helzta fyrirtæki í asbestframleiðslu í veröldinni. Ég held, að mér sé óhætt að segja, að meira að segja suður í Suður-Afríku eigi það ítök í stórum námum, og ég man ekki betur en t.d. á Kýpur hafi þetta fyrirtæki líka ítök. Þess fé stendur víða um veröld. Og í sjálfum Bandaríkjunum og raunar líka í Kanada, þar sem það hefur mjög mikil ítök, er þetta eitt helzta fyrirtækið í öllum byggingariðnaði. Þetta fyrirtæki er þannig mjög voldugur hringur í enn þá voldugri hringasamsteypu, og ég skil þess vegna vel, að það tali þannig við hæstv. fjmrh., að annaðhvort þurfi að ganga að þessum hlutum, eða þá, að þetta sé búið. Þeir eru vanir að tala þannig, þessir herrar. En betur hefði ég kunnað við það, ef við hefðum fengið eins miklar upplýsingar og hægt var um þetta fyrirtæki, þannig að við vissum, hvað við erum að eiga við Því var haldið hérna fram af einhverjum í sambandi við umr. um alúminíumverksmiðjuna, ég held, að það hafi áreiðanlega verið einhver af hv. þm. stjórnarliðsins, ég held í útvarpsumr. í gærkvöldi eða fyrrakvöld, að það væri mjög ánægjulegt, að þegar við hefðum nú lagt út í þá vissu áhættu að eiga samninga við erlent fyrirtæki, skyldum við eiga þá við svissneskt fyrirtæki, við svo ágæta lýðræðisþjóð eins og Svisslendingar væru. Og maður skildi svo sem hvað á bak við bjó hjá þeim manni, sem auðsjáanlega hafði hugsað nokkuð um þetta. Hann áleit, að það hefði nú verið svona dálítið varasamt að leggja út í svona hlut, ef í staðinn fyrir svissneska alúminíumhringinn væri t.d. ameríski alúminíumhringurinn eða sá kanadíski, hringur, sem hefði eitthvert stórveldi á bak við sig. En hvað Johns Manville snertir, er einmitt um þetta að ræða. Það er voldugur amerískur einokunarhringur, sem hefur aðra voldugustu einokunarsamsteypu Bandaríkjanna á bak við sig, sem við þarna erum að semja við. Nú erum við að vísu ekki að semja um neitt stórt. Hringurinn verður ekki í krafti þess að setja fjármagn í þetta neinn voldugur aðili hér á Íslandi eins og svissneski hringurinn gæti orðið, en það er hins vegar alveg vert að gera sér ljóst, hvaða aðili það er, sem við erum að semja við, og þau rök, sem notuð voru af sumum þm. stjórnarliðsins í sambandi við alúmínið, að þetta væri svissneskt auðfélag, þau eiga ekki við hér. Hér er það amerískt auðfélag, sem við erum að eiga við, og það ekki af smærra taginu.

Svo er því gerbreytt frá því, sem frv. var, að nú á að setja sérstök ákvæði um skatta. Meðan við vorum að ræða þetta hér áður fyrr, var það ríkið sjálft, sem átti þetta, þó að það væri í hlutafélagsformi. Við þurftum ekki að vera í neinum vandræðum með skatta eða neitt slíkt. Það var allt saman ósköp eðlilegt. Allt í einu kemur alveg nýtt frv., og það er lagt til í þessu frv., í 8. gr., að ríkisstj. skuli ákveða með samningi, hvernig skattarnir skuli greiddir. Ég verð að segja það, hrakspár okkar sumra stjórnarandstæðinga rætast fyrr en maður bjóst við, þ.e. að farið yrði að því fordæmi, sem gefið væri í alúmínsamningnum. Hvað er það, sem var eitt höfuðbaráttumálið á milli þinga og konungsvalds á meðan verið var að berjast fyrir þingræði? Það var að fá að ákveða skattana. Það var það, að konungur gæti ekki sett skattana eins og honum þóknaðist, og það var ekki hvað sízt borgarastéttin sjálf, sem barðist fyrir því, að þing kjörið af almenningi eða a.m.k. af borgarastéttinni fengi að ákveða þá skatta. Um það stóð baráttan öldum saman, og þetta var eitt höfuðátakið, a.m.k. af hálfu borgarastéttarinnar, í því að knýja fram þingræðið. Nú er komið hér til okkar og sagt með þessari 6. gr., sem hér er lögð fyrir okkur: Alþ. á að hætta að ákveða í aðalatriðum skatta. Ríkisstj. á að semja um skatta, og ríkisstj. á að semja um skatta við einstaka aðila til 20 ára jafnvel, það var til 45 ára í sambandi við alúminíumhringinn. M.ö.o., það er farið fram á, að Alþ. Íslendinga eigi að gefa ríkisstj. það vald, sem konungar höfðu hér áður fyrr, meðan þingræðið ekki var. Í næstu 20 ár væri, ef ríkisstj. notaði þær heimildir, sem hún þarna fengi, ekki hægt að breyta þessum ákvæðum. Eftir sem áður væru þeir undanþegnir vissum sköttum, sem hér yrðu lagðir á, og annað slíkt. Næstu 20 ár mætti ekki leggja nýja skatta á þetta fyrirtæki. Í fyrsta lagi, þetta er gerbreyting frá því, sem var áður og er ein af mjög skiljanlegum ástæðum til þess, að menn breyti algerlega um afstöðu til þessa. Það er í öðru lagi önnur ósvífnin til að heimta úr höndum Alþ. og það upp á framtíðina valdið til að ákveða skatta á Íslandi. En það er sem sé auðséð, að um leið og eitt erlent auðfélag er komið þarna inn í, á íslenzkt þingræði ekki lengur að gilda. Ef þetta félag á að staðsetjast hér á landi að einhverju leyti, skal það tryggja sig 20 ár fram í tímann með það, hvers konar skatta það skuli borga. Ef kjósendur á Íslandi breyta um skoðun um næstu eða hinar kosningar og ákveða skattafyrirkomulag á Íslandi öðruvísi en nú er, þá skulu þessir herrar undanþegnir þeim sköttum, og ef farið væri eitthvað á að bjáta, býst ég við, að ameríska sendiráðið fengi sín fyrirmæli frá Morgan & Co. um að sjá um, að ekki yrði farið að ganga á hlut amerískra borgara. Og ef búið væri að segja upp herverndarsamningnum og við komnir út úr Atlantshafsbandalaginu, væri það kannske góð átylla til þess að fara að senda hingað menn til þess að sjá um, að þessir barbarar á Íslandi færu ekki að ganga á rétt amerískra borgara hér. Þetta er hvað snertir heimildirnar um skattinn.

Ég sé, að framsóknarmenn í d. hafa lagt fram rökstudda dagskrá um það, að slíkur samningur skuli fyrst lagður fyrir Alþ. Ég skil það mjög vel, að þeir vilji ekki ganga inn á svona nokkuð óséð. Þetta er að gefa ríkisstj. in blanco heimild með þessum litlu takmörkunum, sem þarna eru í, og það til svona langs tíma. Þetta eru hlutir, sem ekki er hægt að gera, og við verðum að stöðva þetta nú þegar. Hvernig verður haldið áfram?

Okkur var tilkynnt hér í gær, að það kæmu hér fleiri félög. Hæstv. forseti okkar d. tilkynnti okkur, þegar hann talaði hér sem þm., að það mundi vera von á fleiri félögum hér. Hann nefndi þ. á m. eitt félag. Hann nefndi, að það mundi verða farið fram á að koma upp olíuhreinsunarstöð, sem áður hefur reyndar verið stungið upp á og barizt fyrir í Morgunblaðinu. Og við vitum ósköp vel, hverjir standa þar á bak við. Það átti að fara ósköp leynt hér á árunum, þegar maður var sendur hingað til þess að tala hér við menn, og vissir menn í Morgunhlaðinu voru mjög hrifnir af þessu, og við upplýstum það síðan, að um væri að ræða aðallögfræðingasamband Standard Oil. Og það mál var lagt á hilluna, eftir að mönnum varð það ljóst, að það var Standard Oil hringurinn, sem var að fara fram á að koma upp olíuhreinsunarstöð, sem þýddi algera einokun á olíu og benzíni á Íslandi um ófyrirsjáanlega framtíð. En í útvarpsumr. í gær var það upplýst, að þetta væri raunverulega alveg á næstunni. Hvað segir Standard Oil, þegar hann kemur hingað? Hann kemur náttúrlega til með að segja, að hann vilji hafa sams konar réttindi og aðrir aðilar hafa þegar fengið, sams konar réttindi viðvíkjandi sköttum, sams konar réttindi viðvíkjandi dómsaðstöðu, sams konar réttindi um allt slíkt.

Hv. 2. þm. Vestf., hæstv. forseti okkar d., talaði hins vegar í sömu ræðu í gærkvöldi um það, að það mundu koma voldugir fiskiðnaðaraðilar, sem vildu reisa fiskiðnaðarstöðvar úti um allt. Ég þykist alveg vita og hef vitað lengi, að bæði Findus og Unilever og fleiri hafa áhuga, og auðvitað fengju þeir sams konar samninga og aðrir góðir, fínir útlendingar hafa fengið áður. M.ö.o., ef er haldið áfram á þessari braut, á þá að semja til 20–30 ára við fulltrúa Morgans, við fulltrúa Standard Oil, við Findus um að fá sérréttindi hér á Íslandi til 20–40 ára, um skatta og annað slíkt og um að vera undanþegnir íslenzkri lögsögu, og Alþ. sé raunverulega gert vanmegna við að ákveða, hvaða lög og hvaða skattar skuli vera í landinu? Og þessir aðilar væru orðnir meiri hl. í allri íslenzkri iðnaðar- og sjávarútvegsframleiðslu, hvað fjármagn snertir, þegar þeir verða komnir hér.

Ég þykist svo sem alveg vita, hvað á eftir komi. Hv. 4. landsk. þm., Jón Þorsteinsson, sagði nokkurn veginn orðrétt þegar hann talaði hér í fyrrakvöld — ég hef það skrifað hjá mér, — að íslenzkir atvinnurekendur gætu fengið þetta sama og útlendingar. Og nú held ég, að það yrði farið að koma við kaunin á hæstv. fjmrh., svo að nú færi hann kannske að verða mér sammála. Var þetta tilboð, sem hv. 4. landsk. þm. setti fram, að íslenzkir atvinnurekendur gætu auðvitað fengið sams konar kjör og þessir útlendu aðilar hefðu fengið nú þegar, var það sett fram af hálfu einhvers hluta af ríkisstj.? Ég þykist alveg viss um, að það sé ekki hennar athöfn. Eigum við að búast við því á næstunni, að hér komi lagaparagraf í næstu hagræðingarlögum, t.d. um, að það skuli hagræða sköttum á þann hátt á Íslandi, að næstu 45 ár skuli öllum íslenzkum atvinnurekendum, sem stunda þessa og þessa grein, tryggðir skattar svona og svona og Alþ. skuli ekki hafa leyfi til að breyta því? Ég vil bara spyrja. Ég vil spyrja út frá því, hvort menn álitu, að Alþ. gæti samþ. slík lög? Og ég vil sérstaklega beina þeirri fsp. til hæstv. fjmrh., þegar hann hugsar til sinna komandi kollega á næstu áratugum, hvort hann áliti, að Alþ. 1966 gæti samþ. lög, sem ákvæðu skatta til ársins 2000 t.d. fyrir íslenzka atvinnurekendur og ekki mætti breyta þeim. Fyrir mér er þetta spursmál, sem ég álít, að við eigum heimtingu á að fá útkljáð. Er þetta hægt, og eru einhverjir menn hér inni, sem álíta að þetta sé hægt? Að t.d. meiri hl. hér á Alþ., við skulum segja eins atkv. meiri hl. í hvorri d., gæti ákveðið, að t.d. allir íslenzkir atvinnurekendur í sjávarútvegi, iðnaði o.s.frv. skyldu greiða einhvern ákveðinn skatt fram til 2014, næstu 45 ár. Ég vil heyra, hvort menn álíta þetta mögulegt. Kannske vill einhver segja, að ef tekjuskatturinn sé ákveðinn 45%, sé þetta allt í lagi. En ef þeir hafa heimild til þess að samþykkja 45%, hafa þeir líka heimild til þess að samþykkja 35%, 25% og 10%, og ef þeir hafa heimild til þess, hafa þeir líka heimild til þess að samþykkja 2% skatta á þá til þetta langs tíma. Ég vil fá að heyra það frá lærðari mönnum en mér í lögfræði, hvort þetta sé hægt, hvort þetta rekist ekki á við alla stjórnarskrá. En ef þetta er ekki hægt með íslenzka atvinnurekendur, er þetta heldur ekki hægt með útlenda atvinnurekendur. Það er ekki hægt með l. að veita útlendum atvinnurekendum þann rétt, sem þeir neita íslenzkum atvinnurekendum um. Í stjórnarskránni stendur í 40. gr., með leyfi hæstv. forseta:

„Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema með lögum.“

Það þýðir, að Alþ. hefur á hverjum tíma rétt til þess að taka þær ákvarðanir, sem því þóknast, um þetta. Og það er ekki hægt að binda hendur þess. En hins vegar vil ég taka það fram, ef hér koma fram yfirlýsingar um það, að það sé hægt að ákveðaskatta til 20 ára eða til 45 ára gagnvart íslenzkum atvinnurekendum, gagnvart útlendum atvinnurekendum, að þá er líka hægt að gera íslenzka atvinnurekendastétt skattfrjálsa til 45 ára. Ef hægt er að ákveða, að hún skuli greiða 10% skatta aðeins eða 45% skatt aðeins, þá er líka hægt að ákveða, að hún skuli greiða 1% skatt aðeins til 45 ára. Þá er m.ö.o. hægt að innleiða hér það, sem var nú í gömlu stjórnarskránni frá 1974 og átti að hindra, að menn gætu komið hér á aðli. Það stóð og stendur enn í 78. gr., að sérréttindi, er bundin séu við aðal, nafnbætur og lögtign, megi ekki taka í lög. Þessi sérréttindi, það að vera atvinnurekandi, mundu vafalaust ekki skoðast sem lögtign. En með þessu móti væri búið að mynda hér það, sem væri sama sem aðall, það væri að vísu peningaaðall, en ekki furstar og barónar og greifar, en þessi peningaaðall, honum væri búið að tryggja sérréttindi til þess tíma. Ég vil biðja þá menn, sem hér eru betur að sér í 1. en ég, ekki sízt hæstv. forsrh., um að gefa Alþ. alveg ótvíræðar yfirlýsingar um þennan hlut, ekki sízt eftir yfirlýsingar hv. 4. landsk. í fyrrakvöld í útvarpinu, um að íslenzkir atvinnurekendur geti fengið það sama, geti fengið það sama og alúminíumhringurinn hefur fengið. Hann er líka lögfræðingur, ef ég man rétt, Jón Þorsteinsson. Ég vil, að við séum ekki neitt að efast um þessa hluti. Höfum við rétt til þess að skapa hér skattfrjálsa stétt til næstu 100 ára? Eru það lög, sem ætti að respektera? Ég segi það náttúrlega um leið svona sem byltingarseggur, að auðvitað respekterar þjóðin ekki slík lög. Það dettur engum í hug. Allt okkar lýðræði í Evrópu hefur byggzt á frönsku byltingunni, sem afnam öll slík sérréttindi. En þá er líka vert fyrir menn að gera sér það ljóst, að um leið og verið er að setja slík lög, eru menn að segja við þjóðina: Auðvitað brýtur þú þessi lög, þegar þér þóknast. Þú ert ekkert bundin við þetta, þú bara breytir því, þegar þér þóknast. Ef svona lög eru sett, er um leið verið að segja við þjóðina, af því að þetta er í mótsögn við alla réttarvitund hennar, í mótsögn við allt það vald, sem felst í stjórnarskránni, þá er um leið verið að segja við hana: Auðvitað þurfið þið ekki að halda þetta. En ég vil vita það, hvort hæstv. ríkisstj. er að segja það við þjóðina.

Ég hef farið inn á þessi mál svona fræðilega, vegna þess að ég hef enn ekki getað komið inn í minn haus, að þetta þing hafi nokkurn rétt til þess að gera þetta. Ég veit, að ef um er að ræða að gera samning við útlent ríki, er um allt annað að ræða, og um það eru allt aðrir paragrafar í stjórnarskránni. En að ákveða skatta á fyrirtækjum, sem starfa hér á Íslandi, hvort sem þau eru íslenzk eða útlend, ræður Alþ. og Alþ. eitt. Og ef þetta þing gerir eitt í dag, getur þingið, sem næst kemur saman, eða hitt, gert annað.

Þá vildi ég koma að öðru máli í sambandi við þetta. Í 7. gr. þessa frv. stendur, að það skuli gera allar þær varúðarráðstafanir, sem við verður komið, til þess að koma í veg fyrir, að dýralíf og gróður við Mývatn bíði tjón af starfsemi kísilgúrverksmiðjunnar. Ég hef áður komið inn á það, skal ekki fjölyrða neitt um það nú, að ég álít — og það eru fleiri en ég, sem álíta það, — að það stafi veruleg hætta af þessu, og þegar þau l., sem hingað til hafa gilt um þetta, voru samþ., voru menn fullvissaðir um, að svo væri ekki. En því meira sem þarna er farið að gera núna, því meiri hætta sýnist mér á því, að þarna gæti verið voði á ferðum. Og ég álít, að áður en lengra er haldið þarna, þurfum við að hafa algert öryggi um það. Mývatn er eiginlega næst eftir Þingvöllum sá reitur, sem við fyrst og fremst ættum að helga á Íslandi. Ég sá áhuga hjá Morgunblaðinu nýlega fyrir því að benda á náttúrufegurð í Bandaríkjunum, og Johnson forseta var mjög hælt í því sambandi, og Bandaríkin hafa vissulega verið til fyrirmyndar á vissum svæðum þar. Þau hafa haft sinn þjóðgarð, þar sem þau hafa alveg löghelgað, þannig að ekki mætti þar neinu breyta og náttúran fengi að haldast, og ég álít, að við þurfum að vera öruggir um það, áður en við leggjum í þetta smáfyrirtæki þarna, eins og hæstv. fjmrh. segir réttilega, að það spilli engu um náttúrufegurð eða fuglalíf við Mývatn. Þetta fyrirtæki er ekki það stórt, að þó að maður vildi leggja peningamælikvarða á það allt saman, borgar það sig ekki að gera slíkt. Fyrir utan ununina væri líka í framtíðinni miklu meira upp úr því að hafa fyrir þá, sem eingöngu hugsa um peninga, að varðveita Mývatn óskert. Og þetta er náttúrlega ekki okkar stjórnmálamanna eða fjármálamannanna að dæma um, þetta er það, sem Náttúruverndarráð verður að segja til um og taka ábyrgð á. Það duga engin eftirkaup með það. Og ég vil leyfa mér að leggja fram svohljóðandi brtt. við þessa 7. gr., að hún orðist þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Allar framkvæmdir samkv. þessum l. eru því skilyrði bundnar, að Náttúruverndarráð hafi einróma samþykkt og tekið ábyrgð á, að vegna framkvæmda þessara verði engin spjöll á fuglalífi eða náttúrufegurð Mývatnssveitar.“

Það er vafalaust kannske hægt að gera ýmsar framkvæmdir þarna þannig, að seinna meir geti maður rifið þetta, þegar manni þóknast, og náttúran komizt í sinn sama svip, fengið aftur sinn sama svip, ef manni finnst einhverjar byggingar óprýða og annað slíkt. Það var líka talað um það í l., að byggingarnar skyldu vera í sem mestu samræmi við náttúruna, og vafalaust er það hægt, ef góðir menn eru þar að verki. En hitt er aftur aðalatriðið, að hvað framtíðina snertir, sé maður þarna alveg öruggur. Og það er Náttúruverndarráð álít ég, sem verður að taka á sig þá ábyrgð. Því er falið það með l. frá Alþ. að vernda þá reiti, sem sérstaklega séu til varðveizlu fallnir vegna fegurðar, og þess vegna á það að segja til um þetta.

Hæstv. fjmrh. kom hér alveg réttilega inn á það, og er það mjög vel gert af honum, að hvað dómsvald snerti, væri það náttúrlega gefið mál, að þar sem við værum búnir að samþykkja þessa alþjóðasamþykkt um hina erlendu gerðardóma, mundi viðkomandi hringur geta skírskotað til þeirra á þeim svæðum. Það er vafalaust alveg rétt. Til þess hefur Alþjóðabankinn, sem Morgan og þeir eru aðalvaldhafarnir í, látið setja þessa alþjóðlegu samninga að tryggja sér og sínum dómsvald og gerðardómaaðstöðu út um allan heim, þar sem löndin yfirleitt ganga inn á það að afsala sér að einhverju leyti dómsvaldi yfir erlendum mönnum. Það er þess vegna gefið, að Johns Manville fær náttúrlega þá sömu aðstöðu, sem alúminíumhringurinn er þegar búinn að tryggja sér, ef hann kærir sig um. Þetta verður lagt þannig út. Þó að það séu ekki nema fjögur ríki í Afríku og Ísland, sem hafa samþ. þetta af þeim þingum, sem eru skuldunautar, verða hins vegar nokkur lánadrottnaríki, sem samþykkja þetta undir eins, svoleiðis að þetta fær sitt gildi, og þar með er nýlendustefna komin í gang á þessu sviði.

Það hefur verið minnzt á það hér, að það væri þýðingarmikið fyrir Norðlendinga að fá upp þetta fyrirtæki. Ég vil minna á, að í fyrra eða hittiðfyrra, hvenær sem það nú var, það var víst á þinginu 1963–1964, flútti ég brtt. við þessi l. um að setja inn ákvæði til bráðabirgða, sem hljóðaði á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Nú þykir ríkisstj. að rannsökuðu máli tvísýnt að hefja byggingu á kísilgúrverksmiðju og heimilast ríkisstj. þá að taka engu að síður lán allt að 150 millj. kr. og verja því láni sem hér segir: Ríkisstj. kallar saman ráðstefnu fulltrúa bæjarstjórna og sýslufélaga norðanlands. Skal vera einn fulltrúi frá hverju sýslufélagi og hverri bæjarstjórn. Ríkisstj. gefur síðan þessari ráðstefnu kost á að fá handa bæjunum og sýslunum lán alls að upphæð 150 millj. kr. til þess að koma upp nýjum verksmiðjum víða norðanlands samkv. nánari áætlun, er ríkisstj. og þessir aðilar gera í samningnum.“

M.ö.o. ég vildi tryggja, að ef ekkert yrði úr þessum kísilgúr, ef okkar víkingaferð út á markaðinn í Evrópu skyldi mistakast, vegna þess að við allvoldugan keisara væri þar að etja, gætu þó Norðlendingar fengið þetta fjármagn, sem við ætluðum að setja í þetta, til umráða. Ég orðaði þetta þannig, að ef ríkisstj. þætti að rannsökuðu máli tvísýnt, og þá hugsaði ég út frá tvennu. Í fyrsta lagi út frá því fjárhagslega, að ríkisstj. þætti tvísýnt að leggja í þetta. Mér sem sagt hafði dottið í hug, að þessi víking okkar í austurveg kynni að verða eitthvað tvísýn. Mér datt í hug, að það yrði erfiðara að útvega markaðina í Evrópu en ríkisstj. þá trúði á. Og þá áleit ég, að það ætti að taka það ráð að hætta við kísilgúrverksmiðjuna í staðinn fyrir að gefast upp fyrir kísilgúrkeisaranum og verja þessu fé þá á annan hátt til verksmiðjubygginga á Norðurlandi. Það vakti að vísu líka fyrir mér, ef þetta kynni hvað náttúrufegurð og annað slíkt snerti, að vera óheppilegt að áliti ríkisstj., þegar hún fari nánar að athuga þetta allt saman, því að allt voru þetta nú heimildir þá, að hún gæti þá varið þessu fé á annan máta í samráði við Norðlendinga. Ég held, að það hefði verið betra, að sú till. hefði þá verið samþ. Og ég held, að það hefði verið betra, að hæstv. ríkisstj. hefði farið út í það að fara þá að athuga, hvaða verksmiðju væri bezt að setja upp á Norðurlandi, og ég held, að það hefði verið réttara en að fara út í að gefast upp fyrir Johns Manville og afhenda þetta fyrirtæki.

Ég vil svo, herra forseti, leyfa mér að leggja fram þessa brtt. við 7. gr. frv. og biðja þess, að leitað verði afbrigða fyrir henni, af því að hún er bæði skrifleg og of seint fram komin.