04.05.1966
Neðri deild: 88. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2476 í B-deild Alþingistíðinda. (1674)

195. mál, kísilgúrverksmiðja við Mývatn

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég ætla að leyfa mér að gera svolítið, að umtalsefni þá afstöðu, sem lýst hefur verið hér af hálfu fulltrúa Framsfl. í þeirri n., sem fjallaði um þetta mál, og hv. l. þm. Norðurl. v. gerði grein fyrir áðan. Hann sagði, að Framsfl. hefði verið með löggjöfinni um kísilgúrverksmiðju á sínum tíma og væri það enn. Það væri ekki það, en hann vildi bara með sinni afstöðu og þá þessir tveir nm. fyrst og fremst, sem hafa gert grein fyrir sinni afstöðu í nál. og rökstuddu dagskránni, hindra ríkisstj. í því að færa dómsvaldið út úr landinu. Ég veit, að það hafa margir furðað sig á þeim tilbrigðum, sem fram hafa komið í sambandi við afstöðu Framsfl. eða fulltrúa hans, þm. hans, sem talað hafa fyrir honum, og nm. og annarra í þessu máli, og ég hef ekki séð ástæðu til að víkja neitt frekar að því, nema vegna þessarar sérstöku yfirlýsingar hv. l. þm. Norðurl. v. áðan. Ég held, að það sé alveg rétt, að hv. þm. geri sér alveg grein fyrir því, til hvers hefur verið ætlazt af mér af þessum þm. til þess að þeir gætu fylgt málinu, og menn sjá þá svona svolítið, hver efnisleg afstaða manna er eða hvort hún er kannske bara hégómleg eða eitthvað annað og á rætur sínar að rekja til annarlegra sjónarmiða. Það er ætlazt til þess af mér, að ég lýsi því yfir, að ríkisstj. muni aldrei semja um það, að hlutlaus, erlendur dómstóll kæmi til með að fjalla um deilumál þessara aðila. Ég gerði þá grein fyrir afstöðu minni í Ed., að slíka yfirlýsingu vildi ég ekki gefa. Í fyrsta lagi væri það óeðlilegt, að ég væri að gefa slíka yfirlýsingu, því að hún mundi ekki binda síðari ríkisstj. á neinn hátt, og um það geta menn auðvitað haft skiptar skoðanir, en auk þess var mín skoðun og er, að ég tel það, að vel gæti svo farið, að það væri hagsmunamál ríkisstj. en ekki í þessu tilfelli Johns Manville, að milli þessara tveggja aðila gæti samizt um það að láta hlutlausan erlendan gerðardóm Alþjóðabankans fjalla um deilumál, sem kynnu að rísa, fremur en íslenzka dómstóla og ekki vegna neins vanmats á íslenzkum dómstólum. Þá hugsa ég mér það, að það sé fyrst og fremst íslenzka ríkisstj., sem hefði fjárkröfu á hendur sölufélaginu, sem er staðsett á Húsavík. Það er gert ráð fyrir, að um 2–3 menn séu í þjónustu þess fyrirtækis, og það er kannske ein skrifstofa með einhverjum skrifstofuhúsgögnum, og ef hér væri um háa og verulega dómkröfu að ræða, þyrfti kannske að framfylgja þeim dómi á erlendri grund, þar sem eigandi fyrirtækisins er, Johns Manville, og það er ekki alveg búið í einu vetfangi að fá þar aðfararhæfan dóm fyrir þessari kröfu, þó að íslenzkur dómstóli hafi fellt þann úrskurð, að svo skuli vera. Það er þess vegna, eins og eðli þessa máls er, ekkert ósennilegt, að það gætu skapazt þær kringumstæður, að þetta væri fyrst og fremst hagsmunamál ríkisstj., að hún vildi þetta heldur og teldi það auðvelda sína málsmeðferð og gera hana sterkari til þess að fá fullnægt sínum dómsúrskurði um réttmætar fjárkröfur sínar á hendur slíku fyrirtæki. Og ég benti á það, að þegar væri orðin að l., sem Alþ. hefur nú afgreitt, heimild fyrir ríkisstj. til þess að gerast aðili að alþjóðasamningi um lausn fjárfestingardeilna milli ríkja og þegna annarra ríkja, og væri það því samkv. íslenzkum l., að ríkisstj. semdi um það við fyrirtækið, ef hún óskaði sjálf eftir því, að slík yrði málsmeðferð á milli þessara tveggja deiluaðila. En samkv. þeirri samþykkt er það háð samþykki aðilanna hverju sinni, eins og kunnugt er, hvort þannig yrði farið að. En að gefa yfirlýsingu, sem útilokaði okkur frá því, ef hún ætti að vera bindandi, að hagnýta okkur nokkum tíma þetta og vilja ekki meta það miðað við þær kringumstæður, sem þá væru fyrir hendi, það teldi ég ákaflega óskynsamlegt. Ég gaf hins vegar jafnhliða þessu þá yfirlýsingu, að ég mundi ekki beita mér á neinn hátt fyrir því, að tekin væri inn í samningsgerðina núna nein skuldbinding í eitt skipti fyrir öll um það, að slíkar deilur skyldu fara fyrir þennan alþjóðlega gerðardóm. Því lýsti ég yfir í Ed., og það kom fram í ræðu minni hér í Nd. á laugardaginn var eða þegar þetta mál var rætt hér. Og þá lá það fyrir í yfirlýsingu hæstv. fjmrh., að það væri ekki gert ráð fyrir að semja um annað en íslenzka dómstóla og íslenzka gerð, sem væri í því fólgin, að hvor aðilinn nefndi sinn aðilann og kæmi sér saman um oddamanninn, og ef þeir ekki næðu samkomulagi, þá Hæstiréttur. Og þar við bættist yfirlýsing hv. 1. þm. Norðurl. e., Karls Kristjánssonar, sem ég vitnaði í. Hann lýsti því yfir vegna síns kunnugleika og veru í samninganefndinni, að erlendi aðilinn gerði enga kröfu um slíkt. Mér finnst þess vegna með öllu óskiljanleg afstaða þeirra manna í Framsfl., sem setja þetta fyrir sig.

Það kom fram í ræðu hv. 3. þm. Reykv. hér áðan, að það gæti vel verið, að það yrði lagzt með þunga á íslenzka málsaðilann af sendiráði Bandaríkjanna hér, sem sendiráði þess ríkis, sem þessi aðili er frá, lagzt af þunga á íslenzka aðilann og íslenzka ríkið í deilum, sem við hann stæðu hérna. En það er einmitt eitt atriði í alþjóðabankasamþykktinni, sem ég kallaði svo, að ríki viðkomandi einkaaðila má ekki blanda sér í deiluna, ef búið er að semja um að láta hana fara til úrlausnar samkv. þessari samþykkt. En þar segir svo í 27. gr. samþykktarinnar;

„Ekkert aðildarríki skal veita diplómatiska vernd eða gera alþjóðlega kröfu varðandi deilu, sem einn af þegnum þess og annað aðildarríki hafa samþykkt að vísa eða hafa þegar vísað til gerðar samkv. samningi þessum.“

Að þessu leyti væri það kannske einnig hagræði að reka málið eftir þessum leiðum, en það fer hins vegar, eins og ég segi, eftir mati ríkisstj. á hverjum tíma, og það er áreiðanlega ekki skynsamlegt af neinni ríkisstj. að vera að gefa neinar yfirlýsingar fram í tímann um það, sem við skulum segja, að eðlis málsins samkv. ætti þá að binda viðkomandi ríkisstj. svo lengi, sem hún væri, en getur með engu móti bundið aðrar ríkisstj. að mínum dómi.

Hér hefur hlaupið einhver kökkur í þetta mál hjá hv. framsóknarmönnum, enda hafa þeir ekki samstöðu um þetta eins og skiljanlegt er. Þetta vildi ég benda mönnum á, svo að mönnum væri ljóst, hver afstaða mín hefur verið og af hverju ég hef færzt undan að vilja gefa yfirlýsingar, sem mér finnst óráðlegar og óskynsamlegar og hafa enga efnislega þýðingu í sambandi við afstöðu til þessa máls.