04.05.1966
Neðri deild: 88. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2478 í B-deild Alþingistíðinda. (1676)

195. mál, kísilgúrverksmiðja við Mývatn

Ingvar Gíslason:

Herra forseti. Fyrir tveimur árum voru samþ. einróma l. um kísilgúrverksmiðju við Mývatn. Í umr. um málið tóku til máls þm. úr öllum þingflokkum. Var ekki annað að heyra en allir eða a.m.k. flestir fögnuðu þeim framkvæmdum, sem fyrirhugaðar væru í Mývatnssveit. Sérstaklega var því fagnað, að ný verksmiðja væri staðsett í dreifbýlinu. Að vísu hefur sumt farið á annan veg í þessu máli en vænzt var fyrir tveimur árum, og ber vissulega að harma það. Ekki tel ég þessi atriði þó stórvægileg, og fyrir mér kemur samanburður á þessu máli og álbræðslumálinu ekki til greina. Ég tel brýna nauðsyn bera til að hraða sem mest byggingu kísilgúrverksmiðjunnar við Mývatn og tryggja sölu á afurðum hennar. Að því miða þeir samningar, sem leitað er heimilda fyrir í þessu frv., og í trausti þess, að ekki verði samið um erlendan gerðardóm né nein önnur afbrigði frá íslenzkum I. en greinir í þessu frv., segi ég nei.