26.10.1965
Neðri deild: 7. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2486 í B-deild Alþingistíðinda. (1719)

34. mál, sala eyðijarðarinnar Hálshúsa í Reykjarfjarðarhreppi

Flm. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Yfirleitt er ég andvígur því, að ríkið selji þær bújarðir, sem eru í eigu þess. Ég fæ ekki séð, að það sé neitt vit í því, að bóndi byrji á því að kaupa bújörð, sem ríkið á, standi síðan í því stríði að ljúka þeim skuldum, beri vaxtabyrði af andvirði jarðarinnar, og þegar þeim leik er svo lokið hjá honum og næsti ábúandi tekur við, byrji hann aftur að standa í sama skuldastríðinu og fyrirrennarinn, og þannig kynslóð eftir kynslóð er alltaf verið að standa undir skuldabagga af andvirði jarðarinnar. Hjá þessu er vitanlega hægt að komast með því, að ríkið sé eigandi jarðarinnar, samfélagið skili jörðinni, bújörðinni, sem samfélagseign til þess, sem notar hana hverju sinni. Þetta tel ég vera hagkvæmara og vitlegra fyrirkomulag, þegar hægt er að koma því við. Hins vegar hef ég þó, þegar svo hefur staðið á, að hér hafa verið flutt frv. á Alþ. um að selja ríkisjarðir, sem ekki hafa getað talizt frambúðarbújarðir og ekki haft skilyrði til þess að framfleyta fjölskyldu, en hins vegar í nágrenni þeirra verið sjálfseignarbóndi, sem hefur skort landrými, annaðhvort til beitar eða ræktunaraðgerða, þá hef ég ekki séð, að annað væri hagkvæmara en að viðkomandi bóndi, ef hann óskaði þess, fengi ríkisjörð, sem svona stæði á um, keypta, og hef ég greitt slíkum málum atkv.

Nú verð ég hér ásamt tveim öðrum þm. Vestf. flm. að frv. um, að ríkið selji kotið Hálshús í Reykjarfjarðarhreppi í Norður-Ísafjarðarsýslu bóndanum að Þúfum í sama hreppi. Þarna stendur þannig á, að bújörðin Þúfur er vafalaust framtíðarbýli, hefur gnægð beitarlands, en land til ræktunar takmarkað. Ríkisjörðin, eyðijörðin Hálshús liggur þarna rétt hjá Þúfum, löndin liggja saman, hefur hún verið í eyði allmörg ár, hús eru þar öll fallin. Fyrrv. ábúandi í Þúfum hefur haft kotið á leigu frá ríkinu, og núv. eigandi Þúfna, Ásgeir Svanbergsson, hefur einnig leiguafnot af kotinu Hálshúsum. Nú hefur hann óskað þess að fá þetta kot keypt til þess að bæta úr ræktunarmöguleikum eignarjarðar hans, Þúfna. Hann hefur leitað umsagnar hreppsnefndar Reykjarfjarðarhrepps og hreppsnefndin tekið hans erindi fyrir og gert ályktun, sem er á þessa leið: „Hreppsnefndin samþykkir í einu hljóði að mæla með þessari beiðni.“ Enn fremur hefur bóndinn í Þúfum, sem vill fá Hálshúsin keypt, leitað umsagnar héraðsráðunautarins í Norður-Ísafjarðarsýslu, Jóns Guðjónssonar, og fengið efnislega þessa umsögn frá honum: Hann telur búrekstrargildi Hálshúsa vera það lítið, að fráleitt sé að mæla með því, að þau endurbyggist. Þau hafi sem sagt ekki búrekstrarskilyrði sem sjálfstætt býli. Og í framhaldi af þessu segir ráðun.: Með tilliti til nærliggjandi byggðar er hagstæðast og eðlilegast, að Hálshús falli undir Þúfur, sem sökum ónógra landgæða er vafasamt sem framtíðarbýli. Þó að Þúfur eigi gott beitarland, vegur það mikið á móti því, sem jörðina vantar af ræktanlegu landi til túnauka í framtíðinni. En þar mundu Hálshús geta orðið til allgóðrar uppfyllingar. Ég held því, að hér standi þannig á, að þessi jörð, eyðijörð í eigu ríkisins, verði með engu móti talin hafa skilyrði til sjálfstæðs búrekstrar og geti þannig ekki orðið framtíðarbýli, en jörðin Þúfur verður framtíðarbýli og skortir land til túnræktar, og því eðlilegt, þar sem löndin liggja saman, að túnrækt í Hálshúsum verði sem sagt framkvæmd af eiganda og ábúanda Þúfna.

Að sjálfsögðu mundi sú n., sem þetta mál fer til, leita umsagnar landnámsstjóra, Pálma Einarssonar, og jarðeignadeildar ríkisins og efa ég ekki, að þessar stofnanir munu fallast á þau rök, sem hér eru fram færð að ósk bóndans í Þúfum, fyrir því, að Hálshús verði seld eiganda Þúfna.

Ég legg svo til, herra forseti, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. landbn.