17.02.1966
Neðri deild: 42. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2489 í B-deild Alþingistíðinda. (1736)
88. mál, sala eyðijarðarinnar Efri-Vallar í Gaulverjabæjarhreppi
Frsm. (Ágúst Þorvaldsson):
Herra forseti. Landbn. hefur haft þetta mál til athugunar og mælir einróma með því, að frv. verði samþ. N. sendi frv. til umsagnar tveggja embættismanna, landnámsstjóra og forstöðumanns jarðeignadeildar ríkisins, og ég vil með leyfi hæstv. forseta hv. þm. til frekari skýringar lesa þessar umsagnir, sem borizt hafa frá þessum embættismönnum. Þá er það í fyrsta lagi umsögn frá forstöðumanni jarðeignadeildarinnar, Sveinbirni Dagfinnssyni:
„Ráðun. hefur borizt til umsagnar frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til að selja eyðijörðina Efri-Völl í Gaulverjabæjarhreppi. Vegna þessa skal eftirfarandi tekið fram:
Jörðin Efri-Völlur fór í eyði árið 1964, en þangað til hafði verið rekinn þar nokkur búrekstur. Jörð þessi er landlítil, húsakostur allur lélegur, girðingar ónýtar og ræktun léleg og lítil. Það er skoðun d., að rangt væri að verja fé í mannvirkjagerð á jörðinni til að endurreisa þar búskap. Jörðin er það lítil, að þar er aldrei hægt að búa með þá bústærð, sem þörf krefði vegna fjárhagsafkomu búsins. Engir sérstakir hagsmunir eru tengdir því, að ríkið eigi áfram þessa jörð. Ráðun. getur því vel fallizt á, að jörðin verði seld Stefáni Jasonarsyni, en lönd hans jarðar, Vorsabæjar, og Efri-Vallar liggja saman, og munu kaup á Efri-Velli bæta til muna búrekstraraðstöðu í Vorsabæ.“
Þetta var umsögn Sveinbjörns Dagfinnssonar. Þá kemur hér umsögn landnámsstjóra, Pálma Einarssonar:
„Með bréfi dags. hinn 14. des. 1965 fer hv. landbn. Nd. Alþ. fram á, að umsögn sé gefin um mál nr. 88 á þskj. 148, frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til að selja jörðina Efri-Völl í Gaulverjabæjarhreppi til herra hreppstjóra Stefáns Jasonarsonar, Vorsabæ í sama hreppi. Jörð þessi féll úr ábúð vorið 1964 og byggðist ekki aftur. Áður hafði þessi jörð fallið úr ábúð fardagaárið 1949–1950, og þeir 7 ábúendur, er á jörðinni hafa búið allt frá 1915, hafa haft fremur erfiðan búhag, enda nær engar umbætur af þeim gerðar á jörð þessari. Tún er 4.65 ha, og véltækt af því er um 3 ha. Engjar eru þýfðir móarimar með vélfærum dælum á milli, sem þó skást nytjast til slægna í þurrkatíð. Land jarðarinnar er að mestu ræktanlegt og framræsuaðstaða sæmileg. Jörðin er hlunnindalaus, og skilyrði til vetrarbeitar eru léleg. Akfær vegur er til verzlunarstaðar, ca. 15 km leið að Selfossi, en ca. l km vantar til að akfært sé heim að bænum: Húsakostur jarðarinnar er íbúðarhús úr timbri, 6.4x6.4 m að flatarmáli, 1 hæð með lágu risi, byggt 1937. Skort hefur eðlilegt viðhald á húsinu, og eins og er telst það ekki íbúðarhæft. Fjós er úr torfi og grjóti með járni á þaki, en tyrft yfir járnið, rúmar 14 gripi, ónothæft fyrir gripi til mjólkurframleiðslu, þröngur flór, engir fóðurgangar, þakið lekur. Fjárhús eru yfir 28 kindur, lítt nothæf, hey- og áburðargeymslur eru engar nothæfar. Þó er uppistandandi 90 teningsmetra votheysgryfja, sem vatn gengur upp í. Geymsluskúr við íbúðarhúsið, allsæmileg bygging. Ljóst er, að útilokað er, að jörð þessi verði tekin í ábúð, eins og hún er. Þótt land hennar gæti með ræktun og framræslu framfleytt nokkru búi, kostar mikið fé að gera jörðina búhæfa, sem telja má litlar líkur til, að leiguliði fengist til að kosta. Allt land jarðarinnar er í sameign við Vallarhjáleigu, sem er í ábúð. Ekki eru líkur til, að hreppsfélagið missi mikils, þótt sala færi fram á jörð þessari. Hins vegar má telja nokkrar líkur til, að væntanlegur kaupandi geti styrkt og eflt búrekstur sinn, eignist hann jörðina. Samkv. því verður ekki séð, að neitt mæli gegn því, að sala fari fram á jörð þessari, og mæli ég því með samþykkt þessa frv.
Pálmi Einarsson.“
Ég hef þá lesið þessar umsagnir téðra embættismanna, til þess að þm. fengju um það nánari hugmynd en áður hefur verið gefin hér í umr. um þetta mál, hvernig ástand þessarar jarðar er. En eins og ég sagði áðan, mælir landbn. eindregið með, að frv. verði samþ., og er álit hennar á þskj. 230.