25.10.1965
Efri deild: 6. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2496 í B-deild Alþingistíðinda. (1780)
30. mál, aðför
Flm. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Í frv. því, sem hér liggur fyrir, er um tvær breytingar að ræða frá núgildandi l. Í fyrsta lagi þá breytingu, að hækkaðar eru þær undanþágufjárhæðir, sem þar er um að tefla, og í öðru lagi þá breytingu, að þær undanþáguheimildir eiga einnig að gilda við innheimtu skatta og annarra opinberra gjalda, en samkv. núgildandi I. gildir ekki undanþágan, þegar um innheimtu þvílíkra gjalda er að tefla.
Í l. um aðför var upphaflega ákveðið, 1887, að skuldunautur mætti undanþiggja nauðsynjamuni fjárnámi að upphæð 20 kr. eða 120 kr., ef hann ætti fyrir heimili að sjá. Arið 1932 var þessum fjárhæðum breytt á þá lund, að skuldunaut var heimilað að undanskilja fjárnámi nauðsynjar að verðmæti 100 kr., ef um einstakling var að tefla, 500 kr., ef hann átti fyrir heimili að sjá, og að auki 100 kr. fyrir hvert barn. Þessar upphæðir, sem gilda þannig samkv. l. nú, eru vegna þeirra verðbreytinga, sem orðið hafa á síðari tímum, orðnar algerlega úreltar, þannig að í raun og veru er ómögulegt eftir þeim að fara lengur. Í framkvæmdinni mun þó ekki hafa verið gengið jafnnærri skuldunaut eins og þó hefði e.t.v. mátt gera eftir orðanna hljóðan, vegna þess að matinu á þeim nauðsynjum, sem undanþegnar hafa verið, mun nú hafa verið hagað á þá lund, að allra nauðsynlegustu munir hafa verið undanþegnir. En það virðist sjálfsagt að breyta þessum fjárhæðum eins og. reyndar svo mörgum öðrum í samræmi við breyttar aðstæður, í samræmi við breytt verðgildi peninga og í samræmi við breytta dýrtíð, og hér er það lagt til, að þessum fjárhæðum sé nú breytt, þannig að í staðinn fyrir 100 kr. í núgildandi l. komi 1000 kr. og í staðinn fyrir 500 kr. í núgildandi l. komi 5000 kr. Ég held, að það sé ekki óvarlega farið í sakirnar að gera ráð fyrir þessum fjárhæðum. Þetta er fyrri breytingin, og tel ég hana eðlilega og aðeins til samræmis við breyttar aðstæður.
Hin breytingin er svo sú, sem ég drap á, að í núgildandi l., og hefur reyndar svo verið frá því að aðfararl. voru sett 1887, er gert ráð fyrir því, að þessi undanþáguheimild, sem hér er um að tefla, gildi ekki, þegar verið er að innheimta skatta og önnur opinber gjöld, þannig að eftir lögunum mætti hið opinbera, þegar það er að innheimta þau gjöld, ganga eitthvað nær skuldunaut og mætti rýja hann alveg inn að skyrtunni. Ég er nú ekki að segja, að það sé framkvæmt á þá lund, en mér finnst eiginlega hálf ósæmilegt, að hið opinbera gangi þannig eða áskilji sér rétt til þess að ganga nær skuldunaut heldur en öðrum kröfuhöfum er heimilt. Þetta hefur kannske þótt eðlilegt á sínum tíma, þegar þessi ákvæði voru sett, en ég held, að það samrýmist naumast réttarvitund almennings nú á dögum, að hið opinbera megi áskilja sér að þessu leyti þvílík forréttindi, og ég álít eðlilegast, að þessi undanþáguheimild gildi alveg jafnt, hvort sem um er að ræða innheimtu skatta eða annarra opinberra gjalda eða fjárskuldbindingar almennt. Ég vænti þess, að menn geti fallizt á það, að þessar breytingar séu eðlilegar. Það er ekki haggað við öðrum ákvæðum aðfararl. heldur en þessum, en ég tel, að það sé vel hægt að gera þessar breytingar einstaklega, þó að önnur ákvæði aðfararl. haldist, enda var þegar á sínum tíma með I. frá 1932 breytt fjárhæðunum, eins og ég hef drepið á.
Ég leyfi mér svo, herra forseti, að leggja til, að þessu frv. sé að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.