31.03.1966
Neðri deild: 62. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2498 í B-deild Alþingistíðinda. (1791)

30. mál, aðför

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Í gildandi l. um aðför er svo fyrir mælt, að skuldunautur eigi rétt á að undanþiggja fjárnámi nauðsynjar, sem nemi ákveðinni fjárhæð að virðingarverði. Það er orðið nokkuð langt síðan þessi I. voru sett, og vegna mikilla verðlagsbreytinga, sem síðan hafa orðið, þykir nú óhjákvæmilegt að hækka þær fjárhæðir, sem undanþágan er miðuð við, og um þetta eru ákvæðin í frv., sem hér liggur fyrir.

Enn fremur er það nýmæli í frv., að sömu reglur um undanþágur skuli gilda, þegar fjárnám er gert til innheimtu á opinberum gjöldum, en þannig hefur ekki verið áður.

Frv. þetta var flutt í Ed. og er komið þaðan. Allshn. þessarar d. hefur athugað málið og mælir með því, að frv. verði samþ.