04.11.1965
Neðri deild: 11. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2501 í B-deild Alþingistíðinda. (1815)
38. mál, nauðungaruppboð
Frsm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Um þetta mál gildir hið sama og málið, er var til umr. hér á undan. Frv. er flutt að ósk hæstv. samgmrh. af samgmn., og hafa einstakir nm. óbundnar hendur um flutning og fylgi við brtt. við frv. Það var flutt á síðasta Alþ. sem stjfrv., en varð ekki útrætt, enda þótt þessi hv. þd. afgreiddi málið. Frv. er undirbúið með sama hætti og önnur frv. um loftferðamál. Það miðar að því að veita ákvæðum Genfarsáttmálans frá 1948 um uppboð á loftförum lagagildi. Ákvæðin eru þó ekki takmörkuð við sáttmálaríki, þar sem þau þykja eiga við um önnur loftför. Sáttmáli um alþjóða viðurkenningu á réttindum í loftförum gerður í Genf 19. júní 1948 er fskj. með frv. til I. um skrásetningu réttinda í loftförum, sem afgreitt var við I. umr. hér í hv. þd. fyrir skömmu.
Ég legg til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. Að sjálfsögðu mun samgmn. taka bæði þetta frv. og frv. um skrásetningu réttinda í loftförum til frekari meðferðar á milli umr.