28.04.1966
Neðri deild: 80. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2517 í B-deild Alþingistíðinda. (1913)
172. mál, sala eyðijarðarinnar Örlygsstaða í Helgafellssveit
Frsm. (Gunnar Gíslason):
Herra forseti. Þetta er eitt af allmörgum frv. um jarðasölu, sem legið hafa fyrir þessu þingi. Það var flutt í hv. Ed. þetta frv. og felur í sér að heimila ríkisstj. að selja bóndanum á Kársstöðum í Helgafellssveit eyðibýlið Örlygsstaði í sömu sveit. Lönd þessara jarða liggja saman, og er talið, að búsetuskilyrði á Kársstöðum yrðu miklu betri, ef bóndinn þar fengi þetta kot keypt. Landbn. þessarar hv. d. leggur til, að frv. verði samþ.