18.04.1966
Neðri deild: 71. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2523 í B-deild Alþingistíðinda. (1943)
95. mál, eignarnám lands í Flatey
Frsm. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Landbn. d. hefur fjallað um þetta mál og sent það til umsagnar Sambandi ísl. sveitarfélaga og Flateyjarnefnd, þ.e.a.s. mþn., sem hafði haft það hlutverk að athuga, hvað hægt væri að gera til þess að viðhalda og efla byggð í Flatey á Breiðafirði. Báðar þessar umsagnir eru jákvæðar.
Samband ísl. sveitarfélaga segir: „Stjórnin“ — þ.e.a.s. stjórn sambandsins — „samþykkir að mæla með því, að frv. nái fram að ganga.“
Mþn. um vandamál byggðar í Flatey sendi einnig umsögn, og vil ég leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að lesa það svar. Það er á þessa leið, það er dags. 2. okt.:
„Flateyjarnefnd hefur meðtekið bréf hv. Nd. Alþ., dags. 18. febr. 1966, ásamt frv. til l. um eignarnám lands í Flatey á Breiðafirði á þskj. 183, þar sem beiðzt er umsagnar n. um frv. Eins og við tókum fram á fundi með landbn. nýlega, teljum við, að frv. á þskj. 183, þótt að l. verði, leysi ekki að fullu þann vanda, sem leysa þarf í þessu máli. Hreppsfélag þetta er fámennt og hefur eins og stendur sjálft enga fjárhagslega möguleika á af eigin fé að staðgreiða líklegt andvirði þessarar eignar. Við teljum því, að frv. verði að taka verulegum breyt., ef leysa á þann vanda, sem hér um ræðir. Nm. hafa því orðið sammála um að leggja til við hv. landbn., að eftirfarandi breyt. verði gerðar á frv., en þær fela í sér, að ríkið veiti tímabundna fjárhagslega aðstoð til þess, að hreppurinn síðar geti eignazt landið. Með tilvísun til þessa leggjum við til eftirfarandi:
Að 1. gr. frv. orðist svo: Ríkissjóði er heimilt að kaupa þá 4/5 hluta Flateyjarjarða á Breiðafirði ásamt tilheyrandi hlunnindum þeirra, sem nú eru í einkaeign. Náist ekki samkomulag um kaupin við eigendur, er ríkissjóði heimilt að eignarnema Flatey 1, 2, 3, 4, 6 og 7 með gögnum og gæðum, er þeim fylgja, og skal framkvæmd eignarnámsins fara eftir ákvæðum laga nr. 61 frá 14. nóv. 1917.
2. gr. frv. orðist svo: Þegar ríkissjóður hefur eignazt þessar jarðir, svo sem fyrir er mælt í I. gr., skal hann endurselja þær Flateyjarhreppi með þeim greiðslukjörum, að hreppsfélaginu verði fært að standa undir vöxtum og afborgunum til ríkissjóðs, miðað við, að leigur fyrir land og hlunnindi fari ekki fram úr venjulegri leigu af jörðum í eign ríkisins. Við endursölu til hreppsins sé sett það skilyrði, að hreppnum sé óheimílt að selja eignirnar eða hluta þeirra, þó að undanskildum jarðarhúsum. Við ráðstöfun á jörðunum til ábúðar sé tryggt, þurfi hreppurinn eða ríkið á landi að halda til sérstaks atvinnureksturs, að eigi komi til önnur bótaskylda fyrir land eða hlunnindi en lækkun á leigu, er svari til þeirrar rýrnunar, er verður af notun lands og hlunninda. Takist ekki samkomulag milli hreppsins og ríkissjóðs um kaup hreppsins á eignunum, leigir ríkissjóður hreppnum eignirnar, enda séu ákv. 2. mgr. að fullu tryggð með leigusamningunum. Þá skal og Flateyjarhreppur jafnan eiga þess kost að kaupa eignirnar með þeim kjörum, sem í 1. mgr. getur.
Virðingarfyllst.
Gísli Jónsson, form., Pálmi Einarsson, ritari.
Til landbn. Nd. Alþ.“
Þessi umsögn var sem sé jákvæð, en lagt var til. að tvær breyt. yrðu gerðar á frv., og talið, að ef þær breyt. yrðu gerðar, væri það öruggara, að lögin kæmu að fullu gagni í því skyni að efla byggð í Flatey á Breiðafirði. Það var þess vegna talið sjálfsagt af landbn. að athuga möguleika á því að fá samstöðu um frv. þannig breytt, eins og mþn. lagði til, og var rætt um það mál við hæstv. fjmrh. Hann var í sjálfu sér fús til þess að taka þá skuldbindingu á ríkið að leysa út Flateyjarlönd, þá hluta, sem hér um ræðir af Flateyjarlöndum, samkv. niðurstöðu fyrirhugaðs eignarnáms, en var þó ekki alls óhræddur um, að þetta kynni að leiða til hættulegra fordæma annarra, kannske stærri en hér væri um að ræða. Það var athugað, að svipuð lönd á Breiðafirði, þ.e.a.s. lönd Hergilseyjar, höfðu verið nýlega seld á 11000 kr. hundraðið að fornu mati. Öll Flateyjarlönd eru 40 hundruð að fornu mati, en hér var um að ræða að eignarnema 4/5 þess eða 32 hundruð. Það væri því í hæsta lagi, ef niðurstaða eignarnáms yrði eitthvað svipuð og kaupverð í Hergilseyjarlöndum nú nýskeð, kannske um að ræða 400000 kr. upphæð. Það gat ekki talizt neinn stórpeningur fyrir ríkissjóð. Það var þess vegna eingöngu, að hæstv. fjmrh. talaði um, að þetta kynni að draga stærri dilk á eftir sér, ef gengið væri inn á þetta. En ég var m.a. þeirrar skoðunar, að öruggara væri, að frv. kæmi að notum, ef frv. væri breytt í samræmi við till. mþn. Niðurstaðan hefur samt orðið sú, að landbn. mælir öll með því, að frv. verði samþykkt, og það er þá gert í trausti þess, að komi á daginn, að hið fámenna hreppsfélag Flateyjarhrepps reynist þess ekki megnugt fjárhagslega að leysa af hendi kaupverðið samkv. mati, þá verði með einhverjum hætti veitt aðstoð af hendi ríkisins eða einhverra opinberra sjóða, til þess að þetta fátæka hreppsfélag geti eignazt landið, og ég hef hugmyndir um það, að til þess ættu að vera möguleikar. Og í því trausti, að það bregðist ekki, mæli ég með frv. óbreyttu.
Nú kynnu menn að segja sem svo, hvaða líkur eru fyrir því, að það komi að gagni gagnvart eflingu byggðar í Flatey á Breiðafirði, þó að heimamenn eða hreppsfélagið sjálft eignist landið. Jú, það er upplýst, að flestir eigendur að 4/5 hlutum Flateyjarlands eru nú ekki búsettir þar á staðnum, margir þeirra búa hér í Reykjavík, sumir jafnvel í öðrum heimsálfum. Þessi lönd hafa verið leigð eftir gömlum leigumálum, það á að greiða þarna leiguna í dún, og leigan verður með þeim hætti mjög há, það er ekki hægt að segja annað. Hins vegar hafa leigjendur ekki aðstöðu til þess að bæta landið með ræktun, þar sem þeim er leigt þetta frá ári til árs, og eigendur hafa engan áhuga á því að rækta landið. Það hefur verið leitað samvinnu við þá um það, að þeir heimiluðu samfellda ræktun landsins, en samkomulag hefur ekki náðst við hina dreifðu eigendur um það. Það er því bersýnilegt, að ef fólkið í Flatey á að njóta þessara landgæða, sem þarna er um að ræða, með eðlilegum hætti og fyrir sanngjarna leigu, þarf sveitarfélagið sjálft að eiga þetta land, og ég er sammála mþn. um það, að það sé frumskilyrði fyrir áframhaldandi byggð í Flatey, að hreppurinn eignist allt land og öli landsréttindi í Flatey, þar með talin öll hlunnindi, sem fylgja jarðeignum þar, en þetta er í nál. mþn.
Vitanlega fólust í till. mþn. um viðreisn byggðar í Flatey ýmsar aðrar till. en um það, að sveitarfélagið eignaðist landið. Þó að n. legði einna mest upp úr því, er því ekki að neita, að smáútgerð getur vel komið til greina í Flatey, og hefur fiskigengd í Breiðafirði, á Breiðafjarðarmiðum, nú aukizt á síðari árum eftir útfærslu landhelginnar, en það var eitt, sem kom hart við Flatey, þegar Flateyjarmið voru uppurin og ekki fékkst þar fiskur úr sjó, en sú var niðurstaðan orðin áður en landhelgin var stækkuð. En það hafði komið í ljós við athugun í sambandi við hugmyndir manna um þaravinnslu, t.d. með aðstoð jarðhitans á Reykhólum, að mjög þýðingarmikil þaramið eru einmitt í kringum Flatey, og er ekki ólíklegt, að það gæti orðið nokkur atvinna fyrir íbúa Flateyjar að skera þara eða afla þara til þaravinnslu t.d. á Reykhólum. Einnig hefur það sýnt sig, að skilyrði eru afbragðsgóð, alveg sérlega góð, til verkunar skreiðar í Flatey, og væri ekki ólíklegt, að einmitt smáútgerð og verkun aflans í skreið gæti verið einmitt þýðingarmikil fyrir tiltölulega fámenna byggð í Flatey.
Okkur Vestfirðingum er ekki alveg sársaukalaust, að Flatey á Breiðafirði leggist í eyði. Þetta er menningarstöð að fornu og nýju. Rætur íslenzkrar menningar stóðu óvíða á landinu fastari fótum en einmitt í Flatey á Breiðafirði, t.d. á 19. öldinni. Það er þjóðfélagsþróun, sem veldur því að verzlunin lagðist frá Flatey, og í annan stað, að fiskigengd lagðist frá Breiðafjarðarmiðum. Það er þetta og annað því líkt, sem veldur því, að Flatey hefur nálega lagzt í eyði, en þar eru nú aðeins milli 30 og 40 manns.
Ég skal ekki hafa þessi orð fleiri. Við flm. leggjum allir áherzlu á það, að málið fái afgreiðslu á þessu þingi, og niðurstaða landbn. er sú, að hún mælir einróma með samþykkt frv. óbreytts.