26.04.1966
Neðri deild: 78. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2535 í B-deild Alþingistíðinda. (1970)
174. mál, fiskveiðar í landhelgi
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Mér þykir nú miður, að hæstv. sjútvmrh. skuli ekki vera hér viðstaddur, þegar mál þetta er afgreitt, og ef hann væri nú staddur hér í húsinu, þætti mér miklu betur, að hann væri beðinn um að vera hér við þessar umr.
Með þessu frv. er stefnt að því að veita sjútvmrh. allmikilvægar heimildir frá því, sem hann hefur haft. Það er mjög greinilegt, að þrýstingur ýmissa innlendra aðila á það að veita erlendum skipum veiðirétt í íslenzkri landhelgi hefur farið vaxandi nú á síðustu árum. Það er mjög ljóst, að eigendur fiskvinnslustöðva víða um land hugsa gott til þess að geta fengið aukinn afla til vinnslu af erlendum fiskiskipum, og kröfur þeirra hafa því hvað eftir annað nú í seinni tíð komið upp um það, að heimildir yrðu veittar til löndunar á fiski úr erlendum skipum. Og svo hefur það komið upp hjá ýmsum aðilum á Norðurlandi, einkum nú í seinni tíð, að ráðstafanir í þessa átt gætu eitthvað greitt úr atvinnuvandamálum þar, og nú á þessu þingi hafa komið hér fram tvær till., önnur í frv.-formi því, sem hér liggur fyrir, um það að veita hæstv. sjútvmrh. heimild til þess að leyfa erlendum skipum að landa afla sínum hér til vinnslu í landinu. Og einnig hefur verið flutt þáltill. hér um sama efni, þar sem það er lagt til, að það skuli verða látin fara fram rannsókn á því eða athugun á því, hvernig rétt sé að standa að lagabreytingum almennt séð í þessa átt. Ég held því, að um leið og þessi heimild er veitt, sem gert er ráð fyrir samkv. þessu frv., sé rétt og nauðsynlegt, að það komi greinilega fram hér á hv. Alþ., hverjar skoðanir eru uppi hjá mönnum í sambandi við þetta mál. Það kom mér þannig fyrir sjónir, að þeir, sem eru í sjútvn. þessarar hv. d., væru mjög sammála um það, hvernig að þessum málum ætti að standa. Það virtist vera mjög einróma skoðun þeirra, að það bæri að fara með mikilli varúð í því að veita slíkar heimildir, sem þetta frv. fjallar um. En hins vegar var það skoðun n., að eftir atvikum væri þó rétt, að sjútvmrh. fengi heimild um eins árs skeið, sem væri í rauninni aðallega bundin við þau svæði á landinu, þar sem greinilega er ríkjandi atvinnuleysi eða erfiðleikar eru í atvinnumálum eins og t.d. á Norðurlandi, ef framkvæmd á þessu leyfi gæti orðið til þess að greiða þar eitthvað úr mestu vandræðum.
Þegar um það hefur verið rætt á undanförnum árum að lina á þeim reglum, sem í gildi hafa verið, hefur það greinilega komið í ljós, að það hefur verið frá Íslendinga hálfu einkum tvennt, sem gert hefur það, að við höfum haldið okkur við þau ströngu ákvæði, sem við höfum búið við núna um langan tíma í þessum efnum. Í fyrsta lagi var það svo um nokkurn tíma, að við vildum ekki heimila erlendum aðilum að landa afla sínum hér, þó að Íslendingar fengju að vinna við verkun aflans, vegna þess að við áttum í nokkrum erfiðleikum með að selja aflann á erlendum mörkuðum. En það er alllangt síðan þessi ástæða breyttist, og nú viðurkenna allir það, að það er engin ástæða til þess að neita útlendingum um að landa afla sínum hér og vinna hann hér í landinu vegna erfiðleika um að selja aflann. En hin meginástæðan og sú, sem er enn í fullu gildi fyrir því, að við höfum neitað útlendingum um alla aðstöðu til útgerðarreksturs frá okkar landi, er sú, að við höfum ekki viljað greiða á einn eða neinn hátt fyrir því, að erlend fiskiskip fengju samkeppnisaðstöðu við okkar skip á okkar fiskimiðum við landið, og alltaf þegar þessi mál hafa verið rædd, hefur það komið upp í samtökum sjómanna og útgerðarmanna og alveg sérstaklega í samtökum íslenzkra fiskiskipstjóra, að þeir hafi verið mjög mikið á móti því, að nokkrar tilslakanir yrðu gerðar í sambandi við löndunarrétt erlendra fiskiskipa á Íslandi eða á nokkurn hátt til þess að greiða götu þeirra til þess að taka þátt í því að keppa við Íslendinga á fiskimiðunum við landið. Og því hefur það alltaf farið svo á undanförnum árum, þegar þessi mál hafa verið rædd, að þeir, sem hafa haft með framkvæmd málanna að gera, hafa horfið frá því að veita slíkar heimildir sem þessar. Ég fyrir mitt leyti vil líka láta það koma skýrt fram í sambandi við afgreiðslu á þessu frv., að það er enginn vafi á því, að í mjög mörgum tilfellum gæti veiting á svona leyfi orðið til þess, að það kæmu upp alvarlegir árekstrar við íslenzka fiskimenn og þá ekki sízt skipstjórana á íslenzka fiskiskipaflotanum. Sannleikurinn er sá, að miðin við Ísland eru nokkuð fast sótt, og það þykir þröngt á þeim í mörgum tilfellum, og menn eru ekki hrifnir af því, þegar er verið að gera ráðstafanir af okkar hálfu til þess að veita erlendum skipum samkeppnisaðstöðu, þar sem þröngt er fyrir á miðunum. Þetta mál verður einnig að skoðast út frá hagsmunasjónarmiði sjómannanna og fiskimannanna almennt, en það má ekki skoða það frá þrengstu hagsmunasjónarmiðum fiskkaupenda í landi eða þeirra, sem gjarnan vilja fá sem mest af hráefni. En það er ekki hægt að segja það, að þetta eigi við í öllum tilfellum. Það er enginn vafi á því, að það hefur verið þannig nú um alllangan tíma, að það hefur engin örtröð verið á miðunum fyrir Norðurlandi, og ég býst við því, að íslenzkir fiskimenn segðu út af fyrir sig velflestir ekki mjög mikið, þó að nokkur erlend skip fengju aðstöðu til fiskveiða fyrir Norðurlandi með það fyrir augum, að þau lönduðu afla til vinnslu þar. Þó á ég fyllilega von á því, að ýmsir þeir, sem þar stunda sjó, tækju þessu ekki með fögnuði.
Þær breyt., sem sjútvn. taldi alveg nauðsynlegt að gera á þessu frv. og frsm. n. hefur nú gert hér grein fyrir, voru í fyrsta lagi sú breyting að banna með öllu alla fyrirgreiðslu í sambandi við hin erlendu togveiðiskip, að það yrði haldið hér alveg skýrt við þá reglu að veita ekki heimild til þess að taka afla af erlendum togveiðiskipum. Það er ekkert um það að villast, að erlend togveiðiskip mundu mjög gjarnan vilja landa hér afla sinum í ýmsum tilfellum, alveg sérstaklega held ég, að það mundi eiga við um hafnir á Vestfjörðum og Austfjörðum, en þar kemur það æði oft fyrir, að erlend togveiðiskip eru með aðeins slatta úr veiðitúr, sem þeim þætti gott að geta losnað við og byrjað síðan á nýjum túr. Eitthvað mundi þetta geta átt sér stað fyrir Norðurlandi, en það held ég, að sé lítið.
Hin breytingin, sem sjútvn. leggur áherzlu á, er sú, að slík heimild, sem í þessu frv. felst, verði aðeins veitt þar sem brýn þörf er á slíku af atvinnulegum ástæðum, og þar á n. alveg greinilega við það, að það komi fyrst og fremst og svo til eingöngu til greina staðir á Norðurlandi og á Húnaflóahöfnum í Strandasýslu. En það er hins vegar, hygg ég, almenn skoðun n. og a.m.k. mín skoðun, að aðrir staðir á landinu eigi ekki að koma til að óbreyttu atvinnuástandi, sem verið hefur nú um skeið. Það er svo mál út af fyrir sig, hversu mikið gagn Norðlendingum kann að verða af því að fá ákvæði sem þetta í lög. Ég dreg það mjög mikið í efa, og ég er ósköp hræddur um það, að þeir menn, sem berjast fyrir þessu, hafi ekki gert sér ýkjamikla grein fyrir því, hvað væntanlegt er út úr þessu að hafa. Það er að vísu hugsanlegt, að það gæti orðið um nokkra löndun á síldarafla að ræða fyrir Norðurlandi, en fremur finnst mér það ólíklegt, að erlend skip mundu landa þar teljandi afla, nema þá að veiði kæmi upp fyrir Norðurlandi, svo að eitthvað munaði um. En þá er ég líka hræddur um, að það yrði ekki mikill friður um það frá íslenzkum síldveiðisjómönnum, að slíkar heimildir væru í gildi. En ég skil sem sagt mjög vel þær ástæður, sem til þess liggja af hálfu umbjóðenda Norðlendinga að leggja þetta til. Það er enginn vafi á því, að það er mikil þörf á því að reyna að ráða fram úr atvinnuerfiðleikum þar, en þó að ég fyrir mitt leyti hafi fallizt á að samþykkja þetta frv. í þeim búningi, sem það yrði eftir breyt. frá sjútvn. þessarar d., vil ég fyrir mitt leyti undirstrika það, að það ber að fara mjög varlega af hálfu sjútvmrn. í því að opna fyrir aðstöðu útlendinga til þess að veiða á íslenzkum fiskimiðum, jafnvel þó að þau fiskimið liggi fyrir utan 12 mílna mörkin, og fara varlega í það að efna ekki til samkeppni um veiðarnar á landgrunni við Ísland við íslenzka sjómenn nema þá að stórkostlega mikil rök liggi fyrir slíku og meiri en þau, sem ég kem auga á nú. Þetta vildi ég láta koma fram af minni hálfu í sambandi við afgreiðslu þessa máls.