02.05.1966
Efri deild: 78. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2553 í B-deild Alþingistíðinda. (2026)
165. mál, sala Gilsbakka í Arnarneshreppi
Frsm. (Jón Þorsteinsson):
Herra forseti. Í þessu frv. felst það, að ríkisstj. heimilast að selja Ólafi Baldvinssyni land það úr jörðinni Syðri-Bakka í Arnarneshreppi, sem honum hefur verið mælt út og nefnist Gilsbakki, og skal söluverðið ákveðið af dómkvöddum mönnum, ef ekki næst samkomulag. Fyrir um 20 árum síðan fékk þessi Ólafur Baldvinsson úthlutað landspildu úr landi Syðri-Bakka í Arnarneshreppi, og fyrir nokkrum árum síðan fékk hann viðbótarland, sem nægir til þess að koma býlinu í tölu nýbýla. Ólafur hefur farið þess á leit að fá landið keypt, og hefur umsagnar hreppsnefndar Arnarneshrepps verið leitað um málið, og mælir hreppsnefnd með því, að svo verði gert. Þetta mál hefur verið borið undir landbn., og hefur hún athugað frv. og mælir einróma með því, að frv. verði samþykkt.