14.12.1965
Efri deild: 27. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 393 í B-deild Alþingistíðinda. (205)
76. mál, vegalög
Frsm. meiri hl. (Bjartmar Guðmundsson):
Herra forseti. Samgmn. hefur athugað þetta frv.á fundi og ekki orðið sammála um afgreiðslu þess, og hefur n. þríklofnað, eins og gerð er grein fyrir í nál.
Við 1. umr. þessa máls hér í d. flutti hv. 6. þm. Sunnl. (HB) gagnrýnisræðu við frv. Ég tel, að sú ræða hafi verið góð, ef hún er borin saman við sumt af því, sem um málið var talað í Nd. og Sþ. í sambandi við skýrslu hæstv. samgmrh. um vegáætlunina 1965. Við hv. 6. þm. Sunnl. erum alveg sammála um það, að vegalögin frá 1963 séu að mörgu leyti góð og mikil umbót frá því, sem áður var, og vil ég sérstaklega þakka honum fyrir ummæli, sem hnigu í þessa átt. Slík viðurkenning frá stjórnarandstæðingi er drengileg, svo að orð er á gerandi. Og ég tek líka undir það með honum, að það, sem er einkanlega að á sviði vegamálanna, er, að til þeirra er ekki ætlað nægilega mikið fé, hvorki nú né nokkurn tíma áður, eins og brýnar framkvæmdir í vegamálum eru víða aðkallandi og þyrfti sem allra mest að hraða. Á síðustu árum hefur þó unnizt meira á á þessu sviði en nokkurn tíma áður á jafnlöngum tíma. En þetta er ekkert einstakt um vegamálin. Öllum finnst víst á öllum sviðum, að of lítið sé af hinum „þétta leir“, eins og meistari Jón nefnir fjármunina, þrátt fyrir alla okkar velmegun.
Ég hlustaði allmikið á umr. um þetta mál í Nd., sem voru þó mjög óskemmtilegar og óþinglegar, að því er mér fannst. Orðbragðið var þannig af hálfu andstæðinga hæstv. samgmrh., að mér sannast að segja ofbauð sumt af því. Aðalkjarninn í ræðum andúðarmanna, fyrir utan ókvæðisorð, var sá, að ekki mætti leggja á benzíngjald og þungaskatt, sem gengi beint inn í vegasjóð, því að það væru svik og brot á vegáætlun, sem var gerð í fyrra til 4 ára, 47 millj. plús 9.4 millj. ættu að koma frá ríkissjóði, en ekki sem beinar tekjur inn í vegasjóð skv. sérstökum ákvæðum í l., sem samin væru eftir 1963.
Nú vil ég spyrja: Mundi nokkur hafa haft við það að athuga frá þessu sjónarmiði, — ég endurtek: frá þessu sjónarmiði, — þótt lagður hefði verið á nú t.d. ½% söluskattur, sem nema mundi 60–70 millj. eða viðlíka upphæð og hér er um að ræða, 47 millj. plús 9.4 millj., það eru þær upphæðir, sem vegagerðin þarf að fá, þegar með er tekið það, sem upp á vantaði í fyrra? (HermJ: Kom það til orða.) Það kom fram í ræðu hæstv. samgmrh., að það yrði séð fyrir peningum, ef þessi lög verða samþ., til þess að bæta það upp. Þessi aðferð hefði leitt til sömu niðurstöðu tölulega á fjárl. og verið er að leitast við að ná með því frv., sem hér liggur fyrir. Það hefur aldrei verið borið upp á hæstv. samgmrh., að hann hafi lofað því, að aldrei yrði bætt við neinum sköttum á fjárl. eða til að auka tekjur fjárlaga. — Ég spyr aftur: Mundi nokkur hafa getað talað um, að vegasjóður hefði verið svikinn um tekjur frá ríkissjóði, ef þessi leið hefði verið farin? Ég veit, að svar allra verður nei.
Svo skulum við setja dæmið upp svolítið öðruvísi, án þess þó, að þar sé nokkur eðlismunur á. Setjum svo, að ríkisstj. hafi ekki af einhverjum ástæðum viljað taka upp aukinn söluskatt eða aðra tekjuöflun til handa ríkissjóði, heldur annan skatt til að mæta óhjákvæmilegum útgjöldum, t.d. benzínskatt, og til að láta dæmið ganga upp sem allra fyrst, skulum við nefna aukið benzíngjald og þungaskatt handa ríkissjóði, svo að hann ætti til þessar 47 millj., og við skulum hugsa okkur sömu sölu og þetta frv. gerir ráð fyrir, aðeins þann mun á, að peningarnir rynnu beint og krókalaust inn í ríkiskassann, ekki inn í vegasjóð, síðan þaðan til vegamálastjóra til framkvæmda í vegunum, enda stæðu 47 millj. á fjárl., ef þessi leið hefði verið farin. Enginn mundi heldur dirfast að telja, að vegasjóður væri svikinn um 47 millj., ef þessi aðferð hefði verið höfð.
Það er auðvitað hægt að mögla og vera óánægður með þessa skattlagningu eins og öll önnur álög eða útgjöld, en svik — nei, góðir menn, orðið svik og sviksemi eiga menn að nota með fullri varfærni, þeir a.m.k., sem vilja láta taka mark á orðum sínum.
Þó að okkur sé að sjálfsögðu öllum þungt um að þurfa að auka skattálagningu, þá skal ég játa, að mér er enn þyngra um að standa að því að afgreiða fjárl. með halla. Því segi ég eins og Jóhannes á Fjalli sagði um vinnuna, og er ég honum þó ekki sammála að öllu leyti: „Hún er ill nauðsyn.“
Þær álögur, sem hér um ræðir, eru að vísu ill nauðsyn eins og allar álögur, en að mínu áliti óhjákvæmilegar í einhverri mynd til þess að afgreiða hallalaus fjárl. Ég sé ekki, að eðlismunur sé á því, hvort leiðin, sem ég nefndi, er valin eða sú, sem ríkisstj. kaus að ganga. Þær stefna að einni og sömu endastöð, mismunandi leiðir að sama markinu.
Í þeim miklu umr., sem ég hlýddi á að sumu leyti í Nd. og las að öðru leyti um í blöðum. komu þessi sjónarmið ekki skýrt fram. Þess vegna drep ég á þau hér, þótt mér sé ljóst, að hv. 6. þm. Sunnl. skilur þetta vel, jafnglöggur maður, enda sagði hann miklu minna ljótt í sinni ræðu en sumir aðrir um hæstv. samgmrh., sem töluðu um þetta mál í Nd., enda veit hann vel, að hæstv. samgmrh. er mjög ötull maður og öruggur í því starfi, sem hann er nú í sem samgmrh., og ólíklegt, að hv. 6. þm. Sunnl. sé það ekki ljósara en mörgum öðrum hér í d., því að báðir eru þeir af Suðurlandi.
Herra forseti. Ég hef ekki séð ástæðu til að rekja efni þessa frv. eða einstakar greinar, því að hæstv. samgmrh. gerði það í ræðu sinni við 1. umr. málsins, enda er málið mjög kunnugt orðið af umr. í Nd. og í Sþ. og í blöðum.
Fyrir hönd meiri hl. samgmn. legg ég til, að frv. verði samþ.