03.05.1966
Neðri deild: 86. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2562 í B-deild Alþingistíðinda. (2050)
168. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Keflavíkurkaupstaðar
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Aðeins örfá orð út af þeirri umvöndun hv. 5. þm. Vestf., að það skuli vera boðað til funda í n. sama dag og útvarpsumr. eiga sér stað. Ég vil taka það fram, þar sem það féll í minn hlut og hefur gert nú á undanförnum vikum að kalla þessa hv. n. saman til funda, að til þessa fundar var boðað s.l. fimmtudagskvöld, og ég verð að ætla þessum hv. þm. eins og öðrum að geta þá afsakað sig, að þeir geti ekki mætt, þegar þeir fá jafnlangan tíma til þess að mæta á einum stuttum nefndarfundi. Ég vil einnig taka það fram, að þetta mál hafði verið til umr. í n. þó nokkru áður, og þá mætti ekki þessi hv. þm. heldur á fundi n., svo að hann hefur ekki kynnt sér málin. Það getur kannske verið, að hann hafi þurft svo langan tíma til þess að undirbúa sig undir útvarpsumr., en það er nú komið töluvert á aðra viku frá því að þessir 2 fundir hafa verið haldnir.
Í sambandi við slíkar ásakanir við boðun funda í n. finnst mér ekki rétt, að það komi þannig frá þm., þegar boðað er til funda með jafnlöngum fyrirvara og hér var gert, og væri þá til of mikils ætlazt, ef einstakir nm. gætu ekki mætt, að þeir létu þá vita og óskuðu þá eftir öðrum tíma?
Um málið skal ég ekki ræða neitt frekar, og það má vel vera, að það sé rétt hjá hv. þm., að þetta mál megi öllum að meinalausu bíða til hausts, en hins vegar var þessi fundur haldinn að ósk bæjarráðs og bæjarstjóra Keflavíkur. Hins vegar óskaði oddviti eða hreppsnefnd Gerðahrepps ekki eftir því að mæta á fundi n., en það hefði auðvitað tvímælalaust verið orðið við því, ef sú ósk hefði komið fram.
Það, sem hefur breytt afstöðu manna nú síðustu daga til þessa máls, er það, að félmrn. sendi frá sér bréf í gærmorgun, þar sem skýrt er frá samningafundi, sem átti sér stað að tilhlutan félmrn. á milli bæjarstjórnar Keflavíkur eða bæjarráðs Keflavíkur og fulltrúa frá hreppsnefnd Gerðahrepps. Rn. skýrir þar frá því, að það telji frekari sáttaumleitanir árangurslausar og því óhugsandi að reyna frekari sætt. Á þeim grundvelli tekur n. þessa afstöðu til málsins. Hins vegar tel ég rétt og skylt að geta þess í sambandi við þau orð, sem hv. 5. þm. Vestf. lét falla og spurðist fyrir um, hvort það kæmi að sök, ef þetta mál yrði látið bíða, að þá tjáði bæjarráð Keflavíkur n. það, að það liti svo á, að ef frv. yrði ekki að l. á þessu þingi, yrði ekki hægt að hefja neinn undirbúning um kortlagningu landsins og skipulag, fyrr en frv: væri orðið að l. Ég tel mér það skylt að láta það koma hér fram.