03.05.1966
Neðri deild: 86. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2563 í B-deild Alþingistíðinda. (2051)
168. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Keflavíkurkaupstaðar
Frsm. (Birgir Finnsson):
Herra forseti. Hv. 11. landsk. þm. hefur að nokkru leyti tekið af mér ómak með síðustu orðunum, sem hann sagði hér, en ég kvaddi mér hljóðs í tilefni af þeirri fyrirspurn, sem hv. 5. þm. Vestf. beindi til heilbr.- og félmn. varðandi það atriði, hvað það væri, sem mest ræki á eftir því, að þetta frv. næði fram að ganga.
Ég vil benda hv. dm. á, að fyrst er rakið í grg. með frv., að íbúar þess svæðis í Gerðahreppi, sem Keflavíkurkaupstaður gjarnan vill fá, eru í raun og veru í mjög nánum tengslum við Keflavík. Börnin af þessu svæði ganga í skóla í Keflavík, ganga þar einnig til prests og eru fermd þar, og enn fremur segir í grg.. að af sömu ástæðu, nálægðinni við Keflavík, séu verkamennirnir á Berginu í Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur, enda vinni þeir allir í Keflavík eða á
Keflavíkurflugvelli, en engir í Gerðahreppi, nema þeir, sem hafi sjálfstæða atvinnu heima. Síðan er rætt um, hvaða möguleika landið gefi, sem þeir vilja fá úr Gerðahreppi, og í framhaldi segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Keflavíkurkaupstaður er nú fjórði stærsti kaupstaður landsins utan Reykjavíkur, en er jafnframt talinn landþrengsti kaupstaðurinn á landinu. Íbúatala Keflavíkur 1. des. 1965 var 5117 og hefur vaxið um 6% frá 1962. Á tímabilinu 1956–1960, á fimm árum, var tala íbúða, er bygging var hafin á, 256, eða að meðaltali um 51 á ári. En á næsta 5 ára tímabili, 1961–1965, var bygging hafin á aðeins 168 íbúðum eða 36 að meðaltali á ári. Stafar þetta eingöngu af því, að eigi hefur verið hægt að fullnægja eftirspurn eftir byggingalóðum.“
Þetta hygg ég, að sé kjarni þessa máls og það, sem mest knýr á um það, að Keflavík fái landið úr Gerðahreppi.