03.05.1966
Neðri deild: 86. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2564 í B-deild Alþingistíðinda. (2052)

168. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Keflavíkurkaupstaðar

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Það er tvímælalaust rétt, sem ég sagði áðan, að það hefur verið hér þingvenja, að tillit sé tekið til þess í fundarhöldum Alþ., þegar vitað er, að þm. eru annars staðar að gegna sínum þingmannsstörfum, þó að það hafi ekki þótt hlýða að gera það nú. Það hefur komið einu sinni fyrir, núna fyrir nokkrum dögum, á þessu þingi, að ég bað um, að 12. máli á dagskrá væri frestað til næsta dags. Það átti engan veginn að geta grandað málinu. Forseti hafði það að engu. Þetta er ljós vottur þess, hversu nauðsynlegt forsetahátigninni hér á Alþ. þykir að hafa samstarf við þm. Ég hefði haldið, að stjórnarflokkunum veitti ekkert af því að hafa dágott við þm. í þinglokin, þegar þrælað er nætur sem daga af stjórnarandstöðunni a.m.k., þegar stjórnarliðarnir sofa, við að afgreiða mál stjórnarinnar. En nefndarfundir voru haldnir í gær, og þingfundir voru haldnir í gær, og mál, sem valdið hafa ágreiningi og sem minni hl. n. hefur ekki fengið tækifæri til að ræða um vegna þingstarfa, voru tekin hér til afgreiðslu. Það má vel vera, að þetta sé slíkt nauðsynjamál, að það verði að brjóta hér venjur, en ég held samt, að það liggi engin nauðsyn til þess.

Þau rök, sem hv. frsm. meiri hl. færði hér fram áðan, að börnin af þessu svæði, sem ætti nú að færast á milli sveitarfélaga, gengju í skóla í Keflavík og gengju þar til prestsins, ég sé ekki, að þau hafi neitt að segja. Þetta hefur gengið svo, og ég sé ekki annað en að börnin hljóti að geta gengið til prestsins fyrir það, þó að þessi landsskiki Gerðahrepps tilheyri áfram því sveitarfélagi. Ekki finnst mér það vera rök í málinu, að það verði að hespa því af nú, meðan þetta er heitt deilumál. (Gripið fram í.) Og lóðavandræðin, já. Það skyldi nú aldrei vera svo, að þegar ríkið á land og ríkið virðist viðurkenna nauðsyn Keflavíkurkaupstaðar fyrir að fá þetta, að það væri nú ekki hægt að byrja að undirbúa skipulag á þessu landi, þó að það yrði ekki skorið úr málinu endanlega, fyrr en með haustinu. Það skyldi nú ekki vera, að það væri möguleiki líkt eins og börnin gætu gengið til prestsins, þó að þingið gengi ekki frá málinu.

Nei, ég held, að Alþ. ætti ekki að höggva á þennan hnút nú, meðan annar aðilinn heldur því fram, að hugsanleg sé enn þá friðsamleg lausn milli þessara nágrannasveitarfélaga. Það fyndist mér skynsamlegri lausn, og mér fyndist það meira jafnræði, að fulltrúar beggja sveitarstjórnanna ættu þess kost að ræða við n. um málið og þá jafnvel helzt fullskipaða n.

Um hinn nefndarfundinn, sem hv. 11. landsk. þm. minntist hér á áðan, vil ég segja þetta: Ég hef ekki beðið um að halda neinum rétti vegna fundar, sem ég gat ekki mætt á vegna starfa utan Alþ. Til þess ber ekkert tillit að taka. Þegar ég gat ekki mætt á þeim fundi, bið ég ekki um neitt út af því, því þá hef ég verið upptekinn við önnur störf, sem eru þinginu óviðkomandi, og þá missi ég auðvitað niður minn þingmannsrétt og get ekki farið fram á neitt í því sambandi, enda hef ég ekki gert það. En í gær var ég að gegna þingmannsstörfum og ætlaðist til þess, að það væri tekið svipað tillit til þess og venja hefur hér verið um afgr. mála. Það hefur fyrr verið þröng á dagskrá undir þinglok, en samt hefur þetta yfirleitt verið gert þau 20 ár, sem ég hef verið hér á þingi, en nú þykir það ekki hlýða.

Ég skal engu bæta við þetta mál. Mér finnst engin þau rök hafa komið fram, sem sýni fram á það eða sanni, að nauðsyn sé á að ljúka málinu núna, þannig að annar aðilinn sé ósáttur um það, að því sé lokið, og mælist til, hefur með bréfi mælzt til þess, að málið verði ekki hespað af, því það sé enn þá von um, að málið fái friðsamlega lausn milli sveitarfélaganna. Það er langtum það æskilegasta í þessu máli.