03.05.1966
Neðri deild: 87. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2566 í B-deild Alþingistíðinda. (2056)
168. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Keflavíkurkaupstaðar
Frsm. (Birgir Finnsson):
Herra forseti. Ég vil aðeins í tilefni af orðum hv. 1. þm. Norðurl. v. upplýsa það, að ég álít, að þetta mál hafi fengið alveg eðlilega afgr. í heilbr: og félmn. d. Eftir að málið kom þangað var það sent til umsagnar sýslunefndar Gullbringusýslu og Samb. ísl. sveitarfélaga, og ég hygg, að það hafi ekki verið neinn ágreiningur um það í n., að menn teldu ekki fært að afgr. málið fyrr en þessar umsagnir lægju fyrir. Þessar umr. eru þannig dagsettar: Umsögn Samb. ísl. sveitarfélaga 20. apríl og umsögn sýslunefndarinnar 27. apríl og hafa væntanlega borizt til n. 2–3 dögum eftir dagsetningu eða nú alveg fyrir skemmstu. Meðan þessir aðilar höfðu málið til athugunar skeði það, að félmrn. gerði sáttatilraun í málinu, eins og ég upplýsti við 2. umr., og endanleg niðurstaða félmrn. af þeirri sáttatilraun lá ekki fyrir bréflega hjá n. fyrr en í gær, sbr. bréfið, sem ég las upp áðan, þannig að ég tel, að þótt við hefðum verið allir af vilja gerðir í heilbr.- og félmn., hefðum við ekki getað haft meiri hraða á þessu máli en raun hefur á orðið.