03.05.1966
Neðri deild: 87. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2566 í B-deild Alþingistíðinda. (2057)

168. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Keflavíkurkaupstaðar

Jón Skaftason:

Herra forseti. Út af ummælum hv. l. þm. Norðurl. v. hér áðan sé ég ástæðu til sem einn af flm. þessa frv. að segja örfá orð til upplýsinga fyrir hv. þm.

Frv. það, sem hér er verið að ræða, var komið með hingað í hv. Alþ., ég man ekki nákvæmlega dagsetninguna, en ég hygg, að það hafi verið einhvern tíma á tímabilinu frá 20. marz til endaðs marzmánaðar s.l. Þeir, sem báru þetta frv. aðallega fyrir brjósti, voru þeir, sem standa að meiri hl. bæjarstjórnar Keflavíkurkaupstaðar, og þeir ræddu við þm. kjördæmisins af öllum flokkum og báðu þá um að flytja málið. Við féllumst á það og fluttum málið hér í hv. d. aðeins örfáum dögum eftir að okkur barst það. Af þessu hygg ég, að hv. þm. geti öllum verið það ljóst, að það, að frv. kemur ekki fyrr fram hér í hv. d., er ekki sök okkar flm., heldur, ef um sök er að ræða, þeirra manna, sem áttu að sjá um og höfðu áhuga á f.h. Keflavíkurkaupstaðar að fá þetta mál flutt í þinginu og afgr. Ég vil til viðbótar þessum upplýsingum aðeins taka fram, að það er í öllum atriðum hárrétt, sem hv. síðasti ræðumaður sagði um gang málsins í hv. heilbr.- og félmn. þessarar d. Þar varð engin óeðlileg töf á afgr. málsins, og allir nm. voru sammála um þá meðferð, sem málið fékk þar, og ástæðan til þess, að málið kom ekki strax frá n., því að þar var það út af fyrir sig ekki ágreiningsmál hjá þeim, sem mættir voru á þeim nefndarfundum, sem málið var rætt á, var eingöngu sú, að við töldum allir eðlilegt og sjálfsagt að bíða eftir umsögnum sveitarstjórnarsambandsins og eins umsögn sýslunefndar Gullbringusýslu. Ég sé ástæðu til að láta þetta koma fram hér.