14.12.1965
Efri deild: 27. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 401 í B-deild Alþingistíðinda. (208)
76. mál, vegalög
Helgi Bergs:
Herra forseti. Í framsöguræðu sinni áðan vék frsm. meiri hl. samgmn., hv. 8. landsk. þm., nokkuð að ræðu þeirri, sem ég flutti við 1. umr. þessa máls, á þann hátt, að ég sé ástæðu til þess að gera við það örfáar aths. Ég tók kannske ekki nógu vel eftir í upphafi ræðu hv. 8. landsk. þm., en ef ég hef ekki tekið alveg skakkt eftir, fór hann heldur hlýlegum orðum um þessa ræðu mína og taldi hana a.m.k. allmiklu sanngjarnari en málflutningur um þetta mál hefði verið hjá flokksbræðrum mínum í Nd. Þessi ummæli hv. 8. landsk. þm. þykja mér að sjálfsögðu góð, og sýna þau sanngirni hans og skynsamlegt mat á mínum málflutningi. En heldur tók nú að kárna það gaman, þegar á leið ræðu hans, því að þá kom í ljós, að hann hafði ekki hlustað allt of vel á það, sem ég hafði sagt.
Það hefur ekki verið um það deilt í umr., sem um þetta mál hafa farið fram, að við yfirlýsingu hæstv. samgmrh. um framlag ríkissjóðs á fjárl. til framkvæmdar vegáætlunar hefur ekki verið staðið. Um það er ekki deilt. En á hinn bóginn hafa menn reynt að þvæla málið þannig, að í staðinn hafi komið annað, sem sé í rauninni jafngott. Þetta gefur tilefni til þess að hugleiða á nýjan leik, hvernig stóð á því, að Alþ. sótti það svo fast að fá um það yfirlýsingu, að 47 millj. a.m.k. skyldu koma á fjárl. til vegamálanna. Ástæðan til þess var sú, að þm. litu þannig á, að það væri ekki eðlilegt, að vegamálin fengju eingöngu fé frá sérsköttum á umferðinni, a.m.k. ekki meðan töluvert mikið af þessum sérsköttum rann beint í ríkissjóð, eins og sýnt hefur verið fram á. Þess vegna vildu þm. fá því slegið föstu, að ríkissjóður skyldi skila til vegamálanna a.m.k. 47 millj. umfram þá sérskatta á umferðina, sem vegasjóði voru ætlaðir skv. ákvæðum vegalaganna. Þeir vildu með þessum hætti skapa svolítið jafnvægi milli tekjuöflunar vegasjóðs af sérsköttum á umferðina annars vegar og af almennum tekjum ríkissjóðs, þar með töldum þeim hluta umferðartekna, sem hann tekur til sín, hins vegar. En með þessu frv., sem hér liggur fyrir, er þessu jafnvægi raskað, um það þarf ekki að deila. Benzíngjaldið, gúmmígjaldið og þungaskatturinn voru sett inn í vegalögin sem tekjustofnar vegasjóðs. Hæstv. samgmrh. og ég vorum báðir sammála um það við 1. umr. þessa máls, að þm. hefðu gert ráð fyrir því, að þessi gjöld kynnu síðar að verða hækkuð, en þá til eflingar vegasjóði. Að ríkið gengi á þessa tekjustofna, tæki þá inn í sinn stóra ríkissjóð, það fullyrði ég, að þm. gerðu engan veginn ráð fyrir, - alls ekki. Og það liggur líka í hlutarins eðli, því að ef þeir hefðu gert ráð fyrir því, þá hefðu þeir ekki sótt svo fast að fá yfirlýsingarnar um 47 millj., sem ég var að ræða. Það segir sig alveg sjálft. Þess vegna álit ég, að það hefði í sjálfu sér verið eins mikið brot á því samkomulagi, sem gert var á sínum tíma um vegalögin, í því fólgið, ef ríkissjóður hefði farið að ganga á þessa sömu tekjustofna, sem vegasjóður á að hafa, eins og í því, sem nú er að ske, að 47 millj. kr. framlagið er niður fellt.
Dæmi þau, sem hv. 8. landsk, þm. tók í ræðu sinni til þess að reyna að sýna fram á, að hér væri í rauninni meira um forms- en efnisatriði að ræða, skal ég fara um örfáum orðum.
Hv. þm. sagði, að ef ríkisstj. hefði ákveðið að hækka söluskattinn um ½% og haldið á fjárlögunum þessu 47 millj. kr. framlagi, þá hefði engum dottið í hug að tala um brot á samkomulaginu um vegamálin. Þetta er alveg rétt, það hefði engum dottið í hug að gera það. Það hefði bara verið venjulegt framhald af skattstefnu stjórnarinnar. Hún byrjaði með 3% söluskatt, en svo fór hún upp í 5½%, svo fór hún upp í 7½%, og þótt hún hefði farið upp í 8%, væri það í sjálfu sér ekki annað en framhald af þeirri stefnu, sem stjórnin hefur haft. Og það er svo sem ekki útséð nema hún fari það einhvern tíma. En svo færði hv. þm. dæmi sitt yfir á svolítið annað svið og sagði, ef í staðinn fyrir ½% aukningu söluskatts yrðu teknar tekjurnar með benzíngjaldi, gúmmígjaldi og þungaskatti, var það alveg sama, engum mundi detta í hug að tala þá um, að samkomulaginu hefði verið rift. En þarna var það fyrst og fremst, sem hv. þm. hefur ekki tekið vel eftir því, sem ég sagði við 1. umr., vegna þess að ég hélt því einmitt fram, að það, að ríkissjóður gengi á þessa tekjustofna, sem vegasjóði höfðu verið ætlaðir, það væri brot á anda og efni þess samkomulags, sem gert var hér í des. 1963. Þessu tók hæstv. samgmrh. vel eftir við 1. umr. þessa máls, því hann hélt því fram, þvert ofan í það, sem hv. 8. landsk. þm. heldur nú fram, að ræða mín um þetta mál hefði verið öllum ósanngjarnari, vegna þess að í Nd. hefði þó enginn borið á hann, að hann væri nema einfaldur svikari, en hann taldi mig hafa borið á sig, að hann væri tvöfaldur svikari. Það voru að vísu aldrei mín orð, heldur frjálsleg túlkun hæstv. samgmrh. á orðum mínum, en það, sem hann átti við, var einmitt þetta, sem ég hef nú verið að lýsa.
Með þessu frv. er augljóst, að hvernig sem því er snúið, hvort sem það væri tekið inn í gegnum ríkissjóðinn og inn á ríkisreikning, þá er ríkissjóður með þessu að taka til almennra þarfa stærri hluta af sérsköttunum á umferðina en áður var, og álít ég, og ég veit raunar, að þegar allt kemur til alls, erum við hv. 8. landsk. þm. sennilega sammála um, að þar er gengið í öfuga stefnu.
Ég get vel lokið þessum orðum mínum á svipaðan hátt og hv. 8. landsk. gerði, að láta í ljós traust mitt á því, að jafnskýr og greinagóður maður og hann skilji þessi sjónarmið. En ég hefði kosið, að áður en hann gerði ræðu mína svo mjög að umræðuefni sem hann gerði, hefði hann hlustað örlítið betur á hana.