02.05.1966
Sameinað þing: 43. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2595 í B-deild Alþingistíðinda. (2080)

Almennar stjórnmálaumræður

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Fyrir nálega þremur árum var síðast kosið á Íslandi. Þá sögðu stjórnarflokkarnir við þjóðina: Gefið okkur meiri tíma. Það er satt, að við höfum ekki náð tökum á verðbólgunni, en það er vegna þess, að okkar hagstjórnaraðferðir hafa ekki enn náð því að hafa fullnægjandi áhrif, því þeim hefur ekki verið beitt nógu lengi. Veitið okkur tækifæri til að reyna okkur og okkar aðferðir til fulls, og mun enginn iðrast þess, sem að því stuðlar. Til enn frekari áherzlu og til þess að sýna, að hér væru menn á ferð, sem gerðu sér ljósa ábyrgð sína og skyldur, var það gert að einkunnarorðum, að tækist ekki að vinna bug á verðbólgunni, væri allt unnið fyrir gýg. Þeir fengu meiri hluta, þótt naumur væri, því hann hangir á einu þingsæti, en meiri hluti var það samt, og nú hafa þeir haft þrjú ár enn, og það þýðir víst ekki að segja lengur, að aðferðir þeirra hafi ekki notið sín til fulls vegna tímahraks.

Getum við ekki öll verið sammála um, að nú sé fullreynt, hvers ríkisstj. er megnug með sínum aðferðum, og skilyrðin er víst tæplega hægt að hugsa sér betri en verið hafa. Ný stórfelld aflamet á hverju ári og þar á ofan ört batnandi viðskiptaárferði út á víð. En það er enginn sleggjudómur, heldur hláköld staðreynd, að ástæðan til þess, að ekki hefur hreinlega snarazt afkoman út á við er sú, að þessi uppgrip hafa orðið við sjóinn og stórhækkandi verð á afurðum til útflutnings, en ekki vegna ráðstafana ríkisstj. Er það athyglisvert, að við þessi skilyrði hefur tekizt þannig til, að skuldir við útiönd að frá dregnum innstæðum eru samt mörg hundruð milljón krónum hærri nú en fyrir sjö árum, en ekki lægri. Er það þó afkoman út á við og hin margrædda gjaldeyriseign, sem ríkisstj. reynir helzt að draga athygli manna að, sér til gildis um þessar mundir. Vildu menn reyna að leiða getum að því, hvernig við værum á vegi stödd núna, ef við hefðum átt við að búa venjulegt árferði og hefðum haft þessa ríkisstj. og búið við hennar stefnu og vinnulag?

Það er ný tækni í fiskveiðum og afburðadugnaður íslenzkra sjómanna og framtak útvegsmanna, sem framar öðru hefur bjargað frá því algera hruni, sem annars hefði hlotið að verða, og það hlýtur að hljóma einkennilega í eyrum þessara manna t.d., þegar ríkisstj. er að þakka sér hin nýju vel búnu fiskiskip, sem bætzt hafa í flotann á þessum árum. Þessi skip hafa komið til landsins, þrátt fyrir furðulegar ráðstafanir, sem ríkisstj. hefur látið gera til þess að draga úr kaupum á fiskiskipum og þessum mönnum eru bezt kunnar, en þeir hafa náð í skipin samt eingöngu vegna uppgripanna, sem til allrar hamingju hafa lyft mörgum yfir allar hindranir. En nú er allt svo í pottinn búið orðið, að segja má, að dugmiklum sjómönnum sé að verða með öllu ókleift að komast yfir nýtízku fiskiskip, enda á nú áreiðanlega að byggja fremur á öðru.

Ríkisstj. bað um meiri tíma til þess að ráða niðurlögum verðbólgunnar, og hann fékk hún. Menn kusu yfir sig stjórnarflokkana á ný síðast, þótt tæpt stæði. Menn vita nú, hvernig tekizt hefur, og verður það nokkuð rakið í þessum umr., en ég mun stikla á stóru.

Aldrei hefur verðbólguófreskjan verið aðsópsmeiri en nú. Það er ekkert ofsagt, að allt er á floti. Allir eru á flóttaundanásókn dýrtíðardraugsins, en aflauppgrip og batnandi viðskiptaárferði út á við og lengri og lengri vinnutími hafa opnað mönnum undankomuleiðir að nokkru fram að þessu, en sífellt harðnar á dalnum. Sjálfur sjávarútvegurinn er kominn á uppbætur, þrátt fyrir uppgripin og hækkandi útflutningsverð. Bændur horfa fram á að fá ekki afurðaverð sitt, en kostnaður þýtur upp. Iðnrekendur lýsa því með sterkum orðum, að verðbólgan grafi óðfluga undan iðnaðinum og segjast fullyrða afdráttarlaust, að verðbólgan sé höfuðvandamál íslenzks iðnaðar í dag, svo notuð séu óbreytt orð formanns iðnrekendasamtakanna. Fjölskyldufeður geta fæstir lengur bjargað sér með því að lengja vinnutímann, því að hann er hjá flestum löngu orðinn lengri en staðizt geti til frambúðar. Nálega hver sá maður, sem peningaráð hefur, er á flótta undan verðbólgunni með fé sitt í eitthvað fast og verðbólgufjárfesting í ólíklegustu myndum sogar til sín vinnu- og vélaafi í vaxandi mæli. En afleiðingin er óhagkvæm fjárfesting, sóun í sjálfri fjárfestingunni, en það færist aftur fyrir, sem sízt skyldi. Framleiðslan verður í vaxandi mæli undir í samkeppninni um vinnuaflið, því hún getur ekki keppt við verðbólgufjárfestinguna. Ríkisbúskapurinn stendur þannig, að ríkisstj. hefur gripið til þess ráðs að hækka verð á neyzlufiski í fiskbúðum um 40–80% til þess að fleyta ríkissjóði. Nálega daglega koma til aðrar verðhækkanir og virðist ríkisstj. hafa gefið upp alla viðleitni í þá átt að halda dýrtíðinni í skefjum. Lýsir Alþýðublaðið t.d. þessum aðferðum þannig orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:

„Svo langt hafa þessi mál gengið,“ segir blaðið, „að ríkisstj. hefur neyðzt til að hætta við niðurgreiðslur á fiski og smjörlíki.“ Mun vist fleirum en mér finnast mælirinn fullur, þegar tryggustu málpípur ríkisstj. fara að lýsa því svona, hvernig komið er, en meðal annarra orða: Hvers vegna „neyðist“ ríkisstj. til að gera annað eins og þetta, að hækka brýnustu lífsnauðsynjar almennings um 40–80%? Hver neyðir hana? Hvað annað en hennar eigin aðferðir? Hennar eigin stjórnarstefna. Ekki er það árferðið, sem sverfur að. Þeir lýstu því einnig hátíðlega í vor sem leið, að samningar við launasamtökin hefðu tekizt með afbrigðum vel og gæfu alls ekki neitt tilefni til nýrrar dýrtíðar eða verðbólguþróunar. þeir geta því ekki launþegasamtökunum um kennt, hvernig farið hefur, enda er sannleikurinn sá, að í mörgum dæmum eru kaupgjaldstaxtar úr gildi gengnir vegna ástandsins á vinnumarkaðinum, sem m.a. stafar af verðbólgufjárfestingunni.

Forráðamenn launþegasamtakanna úr öllum flokkum lýstu því yfir í gær á sjálfum hátíðisdegi verkalýðsins 1. maí í ávarpinu, að margítrekuð loforð ríkisstj. hafi reynzt markleysa eins og þeir komast að orði. Staðfestir þetta enn á ný, að ein undirrótin að upplausninni er magnað vantraust á ríkisstj. og ráðleysi hennar og óorðheldni hennar og röngum stjórnarháttum, sem eru nú þrautreyndir í meir en sex ár. Hafi einhver neisti af trausti leynzt í vitund almennings á vilja og getu stjórnarinnar til þess að ganga í þessi mál af ráðdeild og myndarskap,þá slokknaði hann áreiðanlega hjá flestum til fulls, þegar ráðherrarnir á síðasta ári breyttu um tón í garð verðbólgunnar og tóku að gera við hana gælur í stað þess að segja þjóðinni þann sannleika, að verðbólgan eitrar atvinnu- og efnahagslífið, hefur í för með sér margs konar spillingu og kemur atvinnuvegunum á kné eins og forráðamenn atvinnuveganna sýna fram á, svo ekki verður um villzt. Stjórnin ætti þó að skilja það, sem skrifað er á vegginn, þegar hún neyðist til þess að framlengja líf sitt til bráðabirgða með öðru eins og því, að stórhækka verð á brýnustu daglegum nauðsynjum mitt í hækkunarflóðinu, sem fyrir var.

Það er nú fram komið, svo ekki verður um villzt, að ríkisstj. hefur verið önnum kafin undanfarið við allt annað verkefni en skynsamlega stjórn íslenzkra efnahagsmála, þ.e.a.s. ráðstafanir til þess að draga úr verðbólgunni og bjarga íslenzkum atvinnurekstri og alþýðu manna úr hennar klóm. Það er nú framkomið, að um það leyti, sem ríkisstj. hætti að telja verðbólguna þjóðarböl og tók að gera við hana gælur í staðinn, hafði hún ákveðið að snúa sér að öðru verkefni en því að berjast við þennan höfuðóvin, sem hún þó hafði hátíðlega heitið að koma á kné. Ríkisstj. hafði þá tekið ákvörðun um að svíkja þessi loforð sín og snúa sér að því í staðinn að leysa vanda lítillar þjóðar, sem býr við ofþenslu og óðaverðbólgu, sem skortir fyrst og fremst mannafla til þess að sinna lífsnauðsynlegum eigin verkefnum, með þeim nýstárlega hætti að fá erlendan auðhring til þess að setja upp atvinnurekstur í landinu á sínum vegum, leggja í fjárfestingu upp á 2500 milljónir beint, auk stórfelldrar fjárfestingar að öðru leyti, sem því fylgir. Öllu þessu skal komið fyrir á því svæði landsins, þar sem vinnuaflsskortur er mestur og mest er um fyrirætlanir á vegum landsmanna sjálfra, sem ekki komast í framkvæmd vegna manneklu og lánsfjárhafta.

Forsrh. hefur hér á Alþ. boðað af ákafa þennan atvinnurekstur erlendra manna sem tímamótaframkvæmd á borð við það, þegar Íslendingar tóku að byggja sjávarútveg sinn á nútíma vísu. Samkvæmt því á þetta að vera aðeins byrjunin og mætti þetta ekki fara fram hjá mönnum, því þessi atvinnurekstur verður algerlega á vegum útlendinga. Gróðinn fer út úr landinu og afskriftaféð líka og inn í landið koma aðeins vinnulaun, skattar og gjöld fyrir þjónustu. Í fyrirtæki þessu sjálfu byggist því ekkert upp fyrir Íslendinga í framtíðinni, og færist skörin satt að segja upp í bekkinn, þegar þessu er jafnað við öflugan eigin atvinnurekstur Íslendinga, sem þjóðin hefur reist á sókn sína úr örbirgðinni í bjargálnir.

Þessum erlenda atvinnurekstri á svo að ryðja braut með því að skapa vantrú á möguleika Íslendinga sjálfra til þess að byggja upp nægilega stórbrotið og fjölbreytt atvinnulíf, en það stangast við alla reynslu og alls staðar bíða framtakssamir menn með fyrirætlanir um nýja uppbyggingu og ný úrræði, sem ekki komast í framkvæmd vegna hindrana ríkisvaldsins, ofþenslu og skorts á vinnuafli, en óðaverðbólgan er vel á vegi með að sliga íslenzka atvinnuvegi.

Afstaða Framsfl. í alúmínmálinu er að mínu áliti skýrt mörkuð í fáum orðum þeirrar rökstuddu dagskrár, sem flutt var í Nd. og stjórnarandstæðingar greiddu allir atkvæði með og felld var með einungis tveggja atkvæða meiri hl. stjórnarliðsins. Þar segir svo: „Vegna þess hvernig ástatt er í efnahags- og atvinnumálum landsins og þar sem samningur sá, sem frv. fylgir, er óaðgengilegur, ályktar deildin að vísa málinu frá.“ Sameiginleg afstaða allra þm. Framsfl. var því sú, að samningurinn væri óaðgengilegur og ætti að vísa honum frá.

Framsfl. hefur aldrei haft þá stefnu að útiloka með öllu þann möguleika, að samið yrði við erlendan aðila um að reka hér atvinnu, en þá einungis sem algera undantekningu frá þeirri ófrávíkjanlegu meginstefnu, að Íslendingar reki atvinnufyrirtæki sin sjálfir og þá til þess að leysa verkefni í þágu alþjóðar, sem öðruvísi yrði ekki komið í framkvæmd.

Við viljum því rísa eindregið gegn þeim hugsunarhætti, sem fram kemur hjá forsrh. og ofsatrúarmönnum á erlendan atvinnurekstur hér, þegar þeir telja erlenda stóriðju í landinu eiga að vera táknræna fyrir það, sem koma skal, og sambærilega og jafnvel betri en það, sem Íslendingar hafa sjálfir bezt gert í atvinnumálum sínum. Ekki hefur það heldur farið dult í áróðri þessara manna, hvaða trú þeir hafa á atvinnurekstri okkar sjálfra í landbúnaði, sjávarútvegi og iðnaði og mega framtakssamir áhugamenn og þjóðin öll vara sig, ef menn vanrækja að beita sér gegn þessari stefnu í þeim pólitísku átökum, sem framundan eru um stefnu í atvinnumálum, því alúmínmálið er aðeins upphafið í augum þeirra, sem svona líta á. Þeir af forsvarsmönnum alúminverksins, sem ekki eru jafn ofsatrúaðir á forsjá útlendinga og forsrh. virðist vera, hika við að boða þetta sem upphaf nýrra tíma í atvinnusögu landsins, en halda því meira á loft, að þetta hafi orðið að gera til þess að fá nógu hagstætt raforkuverð fyrir Íslendinga, og nú áðan lagði forsrh. talsvert mikla áherzlu á þetta atriði.

Skrumkenndar bollaleggingar ráðh. um þetta hafa verið hraktar svo rækilega, að ekki stendur steinn yfir steini, í umr. á Alþ. síðustu vikurnar, og við blasir, að þessi samningur getur ekki orðið til þess, að Íslendingar búi við lægra raforkuverð en ella framvegis, enda er raforkuverð í samningnum 28% lægra en sömu aðilar borga í Noregi. Er ömurlegt til þess að hugsa, að ríkisstj. mun hafa fyrir æðilöngu flækt sig í þetta mál, altekin þeirri minnimáttarkennd, að Íslendingum væri um megn að leysa raforkumál sín nógu myndarlega, nema stóriðja útlendinga fylgdi með. En þessari skoðun hefur nú árum saman verið haldið að þeim mönnum í liði stjórnarinnar, sem nauðugir ganga til þessa leiks, en þeir eru ófáir.

Alþjóðarathygli hefur vakið, að í samningunum eru ákvæði um, að erlenda fyrirtækið, sem hér á að starfa í landinu í 45 ár, skuli ekki hlíta íslenzkum dómstólum. Upplýsa þeir alúmínmenn sjálfir, að slíkum kjörum hafi þeir hvergi náð nema hér og sýnir þetta betur en mörg orð fá lýst, hvernig ríkisstj. hefur haldið á málstað Íslands í samningunum.

Byggðavandamálið er eitt stærsta vandamál þjóðarinnar. Sá vandi magnast við alúmínverkið, eins og það er fyrirhugað, en ríkisstj. hefur gengizt fyrir löggjöf um atvinnujöfnunarsjóð í staðinn fyrir atvinnubótasjóð, sem fyrir var, og segir, að það skuli vega á móti áhrifum stóriðjunnar.

Framsóknarmenn hafa til þess fullan rétt að benda á það sem sigur fyrir sig, að atvinnujöfnunarsjóður er settur á fót, því þeir hafa árum saman barizt fyrir jafnvægissjóði við hörkulega andstöðu stjórnarliðsins. En þessi atvinnujöfnunarsjóður er alltof veikur og sorglega lítilsmegnandi, ekki hálfdrættingur á við það, sem hann hefði þurft að vera, þó engin stóriðja kæmi til, en vond samvizka stjórnarliðsins sést á því, að þeir ætla að láta hluta af skatttekjum alúmínverksins renna beint í sjóðinn í stað þess að renna í ríkissjóð. Á þetta að skapa þann hugsunarhátt, að stóriðjan verði í rauninni mjólkurkýr fyrir byggðarlögin víðs vegar um landið og leggi þeim til fjármagn og gefa í skyn, að án stóriðju væri íslendingum um megn að koma upp atvinnujöfnunarsjóði til þess að styrkja uppbygginguna út um land. En menn geta gert sér dálítið í hugarlund heilindin í þessu og hve mikið má á þetta treysta í þeirri erfiðu baráttu, sem framundan er við byggðavandamálið, ef þeir gera sér grein fyrir, að eftir 6 ár hér frá, sem verða einmitt mikil örlagaár í þessu tilliti, eiga að vera komnar inn í atvinnujöfnunarsjóðinn 33 millj. — ég sagði 33 millj. samtals frá stóriðjunni eftir 6 ár, eða sem svarar andvirði tveggja fiskiskipa. Síðan á að koma eitthvað meira inn í sjóðinn, en aldrei neitt, sem ekki er auðvelt að leggja fram úr þjóðarbúinu, hvað sem stóriðju líður.

Hér við bætist, að áhrif þessa sjóðs má gera að engu með því að draga úr opinberum framkvæmdum, sem nú er ráðgert fullum fetum. Allt er því sýnd veiði en ekki gefin, ef heildarstefnan er ekki heilbrigð.

Stóriðjusamningurinn hefur nú verið barinn fram á Alþ. með hörkulegri beitingu flokksvaldsins í stjórnarflokkunum. Þurfti líka á öllu að halda, því samningurinn valt á einu atkv. í Ed. Alþingis. Ríkisstj. hefur svo bætt gráu ofan á svart með því að koma í veg fyrir, að Alþ. ákvæði þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta mál, sem væri sjálfsögð. Er nú á valdi forseta Íslands, hvort þjóðaratkvæðagreiðsla verður eða ekki.

Fjöldi manns í stjórnarflokkunum er á móti þessari samningsgerð og mér kæmi ekki á óvart, þó þetta yrði sannkallaður Pyrrosarsigur fyrir ríkisstj. og hennar flokka, en það mun framtíðin leiða í ljós. Ríkisstj. hefur barið fram alúmínmálið með hörkulegri handjárnapólitík og gengu sumir þar nauðugir til leiks, eins og ég hef áður minnzt á, en eftir að hafa gert þetta er ríkisstj. enn ráðvilltari en áður.

Benzín er borið á dýrtíðarbálið. Manneklan eykst. Byggðavandamálið magnast. Erfiðleikar atvinnuveganna fara vaxandi. Eitthvað órar ráðherrana fyrir þessu eins og í draumi og þá kemur í ljós, að þeir virðast ekkert hafa lært, því úrræðin, sem þeir boða, og úrræðin, sem hæstv. forsrh. var að boða hér áðan, eru þau að herða enn lánsfjárhöftin og draga saman opinberar framkvæmdir, þannig á að rýma fyrir stóriðjunni. Þeir, sem kunnugir eru atvinnurekstri á Íslandi, munu nokkurn veginn geta gert sér grein fyrir afleiðingum þess að nota enn aukin reksturslánahöft sem eitt aðalúrræði í glímunni við þau vandamál, sem nú eru framundan, og hvernig fyrirtækin munu verða undir það búin eftir þær aðfarir að greiða viðunandi kaup miðað við dýrtíðarvöxtinn og nýjustu aðfarir ríkisstj. í þeim málum. — Allir þeir, sem ekki eru blindaðir af pólitísku ofstæki, viðurkenna nú, að hafi áður verið þörf stefnubreytingar, þá sé hún orðin lífsnauðsyn. Eiga Íslendingar að trúa því, að þeir einir allra í Vestur-Evrópu verði að búa við botnlaust öngþveiti og spillingu í efnahags- og fjármálalífinu? Svarið er: Sannarlega ekki, enda eru fordæmin nógu mörg um farsæla stjórn efnahags- og atvinnumála, til þess að ekki kemur til mála, að þjóðin sætti sig við þá fullyrðingu, að engin önnur leið sé til en sú ófæra, sem við höfum verið leidd í.

Það er til önnur leið, sem liggur um svipaðar slóðir og farnar eru í sumum nálægum löndum, þar sem betur tekst til en hér og hérna köllum við þessa leið „hina leiðina“, og hún er sú, sem Framsfl. vill fara. Ég nefni að lokum nokkur kennileiti á þessari leið. Hin leiðin er víðtækt samstarf um að draga úr verðbólgunni, horfast í augu við kjarna vandamálsins og taka upp skynsamlegan áætlunarbúskap, sem byggður verði í framkvæmd á nánu samstarfi einkaframtaksins, ríkisvaldsins og almannasamtakanna, sem fjalla um kjaramálin. Með jákvæðu samstarfi verða þau verkefni færð fram fyrir, sem mestu máli skipta í þjóðarbúskapnum. Fjárlagapólitíkin og bankapólitíkin verði samræmd þessu samstarfi. Heilbrigðum fyrirtækjum verði tryggt rekstursfé og fjármagn til aukinnar framleiðni. Í staðinn fyrir áætlanir, sem fara í ruslakörfuna, og áróðursræður barmafullar af skrumi komi eðlileg forusta og raunhæft samstarf. Hin leiðin er að kveða niður vantrú þá á framtaki Íslendinga sjálfra og oftrú á forsjá útlendinga, sem nú er ástundað að fótfesta með þjóðinni. Kveðja í því skyni til úrvalslið vísindamanna, tæknimanna og framkvæmdamanna til þess að leggja með þekkingu sinni á gæðum lands og sjávar og nýtízku vinnuaðferðum grundvöll að öflugri sókn landsmanna sjálfra. Hin leiðin er því öflugur stuðningur við íslenzkt framtak og íslenzkan atvinnurekstur og byggist á bjargfastri trú á því, að ungu kynslóðinni megi treysta til nýrra stórra átaka eigi síður en þeirri kynslóð, sem fært hefur þjóðina úr fátækt í bjargálnir. Það á því að vera þýðingarmikill þáttur í framkvæmd hinnar nýju stefnu að bjóða út ungu fólki úr einkarekstri, félagsrekstri og opinberri þjónustu til að glíma við ný verkefni eftir nýjum leiðum. Unga fólkinu er bezt treystandi til þess að komast að kjarnanum, sem nú er hulinn í endalausu þvargi ráðvilltra manna um haldlausar örvæntingarráðstafanir frá degi til dags. Þannig mætti rekja einstök kennileiti á þeirri leið, sem framsóknarmenn benda á og vilja fara, og verður því haldið áfram eftir því, sem tækifæri gefst. Það þarf ný viðhorf, nýjar vinnuaðferðir og þeim fjölgar með hverjum degi, sem gera sér fulla grein fyrir þessu og menn vita vel, að í lýðræðislandi er ekki til nema ein leið til þess að knýja fram stefnubreytingu. Í því sambandi er ekki nema um eina leið að ræða og hún liggur að kjörborðinu. — Góða nótt.