02.05.1966
Sameinað þing: 43. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2609 í B-deild Alþingistíðinda. (2083)

Almennar stjórnmálaumræður

Gils Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil í upphafi fara nokkrum orðum um Keflavíkursjónvarpið og afskipti Alþ. og ríkisvalds af því máli. Er það hvort tveggja, að ég tel þjóðina eiga heimtingu á að fá að vita, hvað gerzt hefur í málinu og hvað er eða kann að vera í vændum. Þetta er þeim mun brýnna, sem nú á næstu mánuðum verða þau tímamót, að íslenzkt sjónvarp tekur til starfa og sjónvarpstækjum mun fjölga óðfluga. Ég er þess fullviss, að þá verður ráðið, hvort herstöðvarsjónvarpið frá Keflavík fær að starfa sem varanlegt þjóðarsjónvarp Íslendinga eða ekki. Þá mun úr því skorið, hvort við eigum að búa áfram við það ástand, að herstöð erlends ríkis sé heimilaður rekstur sjónvarps, er nær til meiri hl. þjóðarinnar. Þegar íslenzk stjórnarvöld veittu árið 1955 leyfi til sjónvarpsreksturs þessa, var sú heimild skilyrðum háð um stærð sjónvarpsins og búnað, er takmarkaði það að mestu við herstöðina eina. Við það sat í 5 ár. En árið 1961 veittu stjórnarvöldin leyfi til stækkunar stöðvarinnar, svo að orka hennar fimmfaldaðist. Þeirri leyfisveitingu virðast engar takmarkanir hafa fylgt eða fyrirmæli um lokað sjónvarp. Reyndin varð líka sú, að eftir þessar aðgerðir náðu sjónvarpssendingar frá Keflavíkurflugvelli auðveldlega til Reykjavíkur og raunar um allt Faxaflóasvæðið, þar sem búa nær 3/5 hlutar Íslendinga. Hefur og þróunin orðið á þá lund, að útbreiðsla sjónvarpstækja hefur aukizt hraðfara, svo að þau heimili íslenzk skipta nú mörgum þúsundum, sem leitt hafa hermannasjónvarpið til stofu. Menn deila um þetta erlenda sjónvarp, efnisval þess og áhrifavald. Það er fjarri mér að halda því fram, að slíkt sé einhver hégómi, sem litlu eða engu máli skipti, það er öðru nær: Hitt leyfi ég mér að fullyrða, að það, sem úrslitum hlýtur að ráða um afstöðu hugsandi manna til málsins, er þetta: Er það sæmandi þjóð, sem telur sig sjálfstæða menningarþjóð og vili halda áfram að vera það, að leyfa rekstur svo áhrifamikils tækis sem sjónvarp er, án þess að hafa þar um neinar forsagnir, án þess að það lúti í smáu né stóru um rekstur, efnisval eða annað íslenzku ákvörðunarvaldi, íslenzkum reglum og l.? Það er að vísu rétt, sem sagt hefur verið, að um þjóðlegan metnað, þjóðlega sæmd tjái lítt að rökræða, það er tilfinning, sem menn bera í brjósti. Þeir, sem kunna að vera sneyddir slíkri tilfinningu, láta vitanlega sem vind um eyru þjóta, þótt skírskotað sé til hennar. Hinir hljóta að gera sér það ljóst, að ástand þessara mála hér á landi í dag er óviðunandi og niðurlægjandi. Um þetta örlagaríka mál hefur margt verið rætt og ritað undanfarin missiri. Fjöldi ábyrgra manna á sviði uppeldis- og menntamála, félagsmála, lista og vísinda hefur í ræðu og riti með samþykktum og áskorunum gagnrýnt ríkjandi ástand og varað við afleiðingum þess. Hér á Alþ. var lengi hljótt um þetta mál og þótti ýmsum furðu gegna. Ástæðan var sú, að mánuð eftir mánuð gerðum við andstæðingar herstöðvarsjónvarpsins tilraunir til að undirbúa og auðvelda viðhlítandi lausn málsins og afla henni fylgis hér í þingsölunum. Okkur var um það kunnugt, að áhrifamenn innan stjórnarflokkanna með hæstv. menntmrh., Gylfa Þ. Gíslason, í fararbroddi vildu stuðla að lausn málsins og unnu að henni, en virtust mæta andstöðu í eigin liði. Langur tími leið og ekkert gerðist. Fyrir rúmum tveimur mánuðum var þolinmæði okkar með öllu þrotin. Þá fluttum við 8 þm. Alþb. og Framsfl. till. til þál. um þær aðgerðir í þessu efni, sem menntmrh. og fleiri stjórnarþm. höfðu lýst sig fylgjandi á opinberum vettvangi, að við þau tímamót, þegar íslenzkt sjónvarp tekur til starfa, verði sú breyting gerð á tæknibúnaði herstöðvarsjónvarpsins, að sendingar þaðan takmarkist við herstöðina eina. Áður en þessi till. var lögð fram, leituðum við flm. enn eftir sem allra víðtækastri samstöðu um flutning hennar. Sú tilraun mistókst.

Fyrir rúmum mánuði var till. okkar rædd í Sþ. Ein rödd heyrðist úr herbúðum stjórnarliða við það tækifæri. Röddin sú boðaði það fagnaðarerindi, að ekkert væri sjálfsagðara en að Keflavíkursjónvarpið verði framvegis annað þjóðarsjónvarp Íslendinga, takmörkun þess væri skerðing á dýrmætu frelsi. Allir aðrir stjórnarliðar þögðu þunnu hljóði og þeir þegið enn. Till. okkar var vísað til n. og þar hefur hún sofið fram á þennan dag. Nú eru 2—3 dagar til þingslita. Ég skora á talsmenn stjórnarflokkanna hér í þessum umr. að svara því skýrt og skorinort, hver sé afstaða þeirra til þessa máls. Er það ætlun þeirra að leysa það á viðhlítandi hátt eða ætla þeir að taka á sig þá þungu ábyrgð, sem því fylgir, ef ekkert verður gert? Ég fæ ekki séð, að Alþ. og ríkisstj. geti eða megi skjóta sér undan þeirri siðferðilegu skyldu að leiðrétta þau glappaskot, sem gerð hafa verið. En það verður einungis gert á þann veg, eins og málum er komið, að við Íslendingar eigum og rekum okkar sjónvarp sjálfir, gerum það svo vel og myndarlega sem við erum menn til, en Keflavíkursjónvarpið verði jafnframt takmarkað við herstöðina eina.

Fyrir nokkrum dögum skýrði hæstv. fjmrh. frá því hér á Alþ., að vöxtur þjóðartekna síðustu 3 árin hefði orðið sá, sem hér segir: 7,2% árið 1963, 8.4% árið 1964 og tæp 9% árið 1965. Þetta er miklu örari vöxtur þjóðartekna en þekkist í nokkru nálægu landi og vafalaust einhver hinn mesti í veröldinni. Að þessu hefur stuðlað mikið góðæri til lands og einkum sjávar, aukin tækni, firnalangur vinnutími allra starfsstétta og síhækkandi afurðaverð á erlendum mörkuðum. Ætla mætti, að á þessum veltiárum hefðu lífskjör almennings batnað verulega, þjóðinni vaxið ásmegin til alhliða framfarasóknar, ráðamenn hennar öðlazt stóraukið traust á íslenzkum atvinnuvegum og hagnýtt góðærið til bráðnauðsynlegra umbóta á sviði skóla-, fræðslu- og uppeldismála og til að margfalda hvers konar stuðning við íslenzka menningarviðleitni, vísindi og listir. Hefur núv. ríkisstj. borið gæfu til að móta þessa eða þvílíka stefnu? Hefur hún notað liðin veltiár til að veita slíkri framfara- og menningarsókn forustu? Hvernig svara verkamenn og opinberir starfsmenn þeirri spurningu, hvort kjör þeirra hafi batnað í hlutfalli við vöxt þjóðartekna? Verkamannalaun nú fyrir 8 stunda vinnudag eru um 8 þús. kr. á mánuði. Verkamenn og fjölmargir aðrir þjóðfélagsþegnar hafa neyðzt til að mæta dýrtíðinni með stöðugri lengingu vinnutímans dag hvern, helgan jafnt sem virkan. Fyrir löngu er svo komið, að stór hluti þjóðarinnar á þess næsta lítinn kost að lifa eðlilegu heimilis-, félags- og menningarlífi, því að tómstundir eru fáar, þegar unnið er alla daga myrkranna á milli. Hafa núv. ráðamenn sýnt það með stefnu sinni og starfsháttum, að góðærið efldi með þeim traust á landi og þjóð? Er hitt ekki sanni nær, að þeir kyrji nú sem ákafast þann söng, að gæði landsins séu of fábreytt og geta landsmanna til að hagnýta þau enn minni, svo að hér þurfi erlend stóriðja og erlendir auðhringir að halda innreið sína. Og hvar eru stórvirkin á sviði uppeldis- og menningarmála, þeirra geysimikilvægu mála, sem í hverju þróuðu nútímaþjóðfélagi eru talin forsenda góðs efnahags og heilbrigðs þjóðlífs? Allt of litill hluti af vaxandi þjóðartekjum hefur gengið til að treysta þann grundvöll. Þar skortir okkur enn á flestum sviðum heildarstefnu og skipulag og stórhuga framkvæmdaáætlun.

Mér dettur ekki í hug að kenna núv. ríkisstj. um þær vanrækslusyndir allar og sízt hæstv. menntmrh., sem margt hefur vel gert í þessum efnum, þó að um sumt verði því miður að segja, of lítið og of seint. Hér eiga fyrri ríkisstj. einnig sína sök og ekki aðeins þær, heldur við Íslendingar flestir eða allir. Við höfum sýnt háskalegt tómlæti um aðbúð að stofnunum uppeldis, menningar og mennta. Okkur hefur ýmist skort nægan skilning á því, hver er grundvöllur framfara og varanlegrar verðmætasköpunar í nútímaþjóðfélagi eða sýnt allt of mikið tómlæti við að hamra látlaust á nauðsyn þess, að þann grundvöll verður að treysta, þó að það kosti mikið átak. Vissulega er blóðugt til þess að vita, að á veltiárum, þegar raunverulegar þjóðartekjur stóraukast, skuli ekki gert nýtt og myndarlegt átak til að efla nauðsynlegar menningarstofnanir og koma upp öðrum, sem algerlega skortir. Háskólinn vex allt of hægt. Tilfinnanlegur húsnæðisskortur er orðinn honum alger fjötur um fót. Okkur skortir fleiri menntaskóla. Einn er að vísu í smíðum, en þar um gildir það, sem ég áðan sagði, of lítið og helzt til seint. Opinber stuðningur við námsmenn heima og erlendis er allt of lítill og fer jafnvel minnkandi, þegar miðað er við aukna dýrtíð. Aðalsöfn landsins, háskólabókasafn og landsbókasafn, hafa áratugum saman verið févana til nauðsynlegra bókakaupa og bæði skortir þau algerlega viðhlítandi húsakost. Skólabókasöfn hefur löggjafar- og fjárveitingavaldið alla tíð vanrækt. Byggingu yfir listasafn þjóðarinnar eigum við enga. Þannig mætti lengi telja. Auðvitað er mér ljóst, að allt þetta, svo og margt annað nauðsynlegra framkvæmda á sviði skóla- og menningarmála verður ekki gert í einu vetfangi eða á fáum árum. Viðfangsefnin eru mörg hjá þjóð, sem fyrir nokkrum áratugum skorti allt til alls og er í örum vexti. En á þessu sviði ber að setja markið hátt og krefjast mikils. Slíkt er hin bezta fjárfesting og öruggasta trygging fyrir farsælli þjóðfélagsþróun. Það er hart til þess að vita, að jafnt í góðæri sem á erfiðum tímum skuli opinberar ráðstafanir til að hamla gegn ofþenslu ævinlega bitna harðast á bráðnauðsynlegum, opinberum framkvæmdum. Það er hart til þess að vita, að á sama tíma og æsku landsins skortir aukna aðstöðu til menntunar og fæstar menningarstofnanir fá notið sín sakir fjárskorts, skuli dýrmætum gjaldeyri þjóðarinnar eytt hömlulítið í margs kyns fánýti. Hér í Reykjavík skýtur vist upp fleiri en einum nýjum heildsala með hverju nýju tungli, þótt ekki sé til annars en að flytja inn fáeinar kextegundir, hollenzkar smákökur eða danska tertubotna. Enda má mikið vera, ef heildsalastéttin, sem notar gjaldeyri landsmanna, fer ekki að verða fjölmennari í höfuðborginni en sjómannastéttin, sem aflar gjaldeyrisins.

Hafi núv. ríkisstj. einhvern tíma ætlað sér að hamla gegn verðbólguþróun, er auðsætt, að hún hefur nú gersamlega hætt öllum tilburðum í þá átt. Verðbólgan vex stöðugt og fullvíst er, að á næstu mánuðum og missirum hlýtur hún að æða yfir með meiri hraða en nokkru sinni. Ekki verður annað sagt en verkalýðshreyfingin hafi að undanförnu gert sitt ýtrasta til að auðvelda valdhöfunum baráttuna við þennan vágest, en þeir létu tækifærið ónotað. Alþýða landsins hefur 2 ár í röð samið um kaup og kjör með það fyrir augum, að hægt yrði að stöðva dýrtíðina. Hún hefur tryggt tveggja ára vinnufrið í landinu, en í stað þess að nota þennan dýrmæta tíma til nauðsynlegra aðgerða í verðlagsmálum, er dýrtíðarófreskjunni sleppt lausri, svo að hún rýrir dag frá degi afkomumöguleika almennings og ógnar aðalatvinnuvegum þjóðarinnar. Í stað þess að draga úr verðbólgu er samið um hernaðarframkvæmdir í Hvalfirði, kísilgúrverksmiðju í samlagi við amerískan auðhring og nú síðast alúminíumverksmiðju Svisslendinga í Straumsvík. Næst á óskalista ríkisstj. er svo amerísk olíuhreinsunarstöð. Boðuð hefur verið stórfelld þátttaka erlendra gróðafyrirtækja í íslenzkum fiskiðnaði. Þetta er fagnaðarboðskapur stjórnarflokkanna í dag. Markvisst og stig af stigi er verið að hverfa frá þeirri grundvallarstefnu, að landsmenn sjálfir eigi atvinnutækin og nytji auðlindir landsins. Það, sem var kjarni íslenzkrar sjálfstæðisbaráttu, að þjóðin heimti ráð málefna sinna í eigin hendur, jafnt stjórnarvald sem eignar- og yfirráðarétt allrar atvinnustarfsemi í landinu, skal nú að engu haft og fótum troðið. Það stefnumið, sem okkur hefur bezt gefizt og lagt hefur grunninn að framfarasókn Íslendinga í meira en hálfa öld, er lagt fyrir róða og látið víkja fyrir þeirri stefnu, að erlendum auðhringum sé falin forsjá atvinnumála og íslenzkir menn gerist handlangarar þeirra og þjónar. Samningur ríkisstj. við svissneska alúmínfélagið, sem hún lét þinglið sitt fullgilda á Alþ. í fyrradag, er aðeins forleikur þess, að aðrir erlendir auðhringar brjótist inn í íslenzkt þjóðfélag með forréttindaaðstöðu og blind gróðasjónarmið. Nú eru íslenzkir menn að nýju orðnir annars flokks þegnar í eigin landi. Innlendur atvinnurekstur skal framvegis búa við allt annan og minni rétt en útlent auðfélag. Þessi nýja stefna ríkisstj. markar skýrari og gleggri línur í íslenzkri pólitík en verið hefur um árabil. Annars vegar eru þeir, sem ekki sjá önnur ráð vænlegri til að tryggja atvinnuuppbyggingu hér á landi en að reisa hana á fyrirtækjum erlendra auðfélaga. Með gerðum sínum lýsa þeir vantrú á gæðum landsins og getu landsmanna til að hagnýta þau. Þeir vanrækja íslenzka atvinnuvegi og beita þá jafnvel efnahagslegum þvingunum. Innlendur iðnaður hefur þegar goldið mikið afhroð, togaraútgerð er því nær í rústum sakir vanrækslu á uppbyggingu hennar með nútímasniði, línubátaflotann skortir rekstrargrundvöll og svo mætti lengi telja. Þetta er stefna úrtölu- og afturhaldsmanna, sem virðast hafa glatað trúnni á íslenzkt framtak. Gegn þessari úrtölustefnu, gegn þessu flóttaliði hljóta að rísa allir þeir, sem eru fullvissir um, að með tilstyrk íslenzkra atvinnuvega, sjávarútvegs, landbúnaðar og iðnaðar, megi og eigi að tryggja hér góð og batnandi lífskjör, efla íslenzkt menningarlíf, halda áfram því starfi að byggja íslenzkt þjóðfélag. Valið stendur einfaldlega um þetta: Eigum við á komandi tímum að reisa afkomu okkar æ meir á erlendum stóriðjurekstri í eigin landi eða eigum við að beita atorku okkar, vinnuafli og fjármagni til eflingar íslenzkum atvinnuvegum og hagnýta í stórauknum mæli verkkunnáttu, vísindi og tæknivæðingu? Hvort tveggja verður ekki gert í senn. Til þess höfum við hvorki nægan mannafla né efnahagskerfi, sem þyldi slíka þenslu. — Góða nótt.