02.05.1966
Sameinað þing: 43. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2613 í B-deild Alþingistíðinda. (2084)

Almennar stjórnmálaumræður

Óskar E. Levy:

Herra forseti. Heiðruðu hlustendur. Mér er sagt, að fleiri frv. um sölu ríkisjarða hafi verið til meðferðar á því Alþ., sem nú er að ljúka störfum, en nokkru sinni áður. Er það vissulega gleðilegur vottur þess, að bændur ætli enn að bæta jarðeignir sínar og auka þar með á sínar verðmætu eignir, en bændastéttin á mestallt Ísland og tel ég hana því með ríkustu stéttum þessa lands. Ég talaði um jarðir sem verðmætar eignir, enda þótt þær séu nú í dag ekki seljanlegar fyrir það, sem í þær hefur verið lagt. Ég geri það vegna þess, að án landsins væri þjóðin ekki til og líka vegna þess, að það hlýtur að koma að því, að landið sjálft hækki í verði með hraðfjölgandi þjóð. Ég tel jarðakaup bænda einnig gleðilegan vott um það, að þeir eru í sókn til bættra lífskjara. Þeir sækja fram með fullri djörfung. Bændur sýna með þessu, svo að ekki verður um villzt, að þeir vilja eiga landið, sem þeir erja, þeir eru ekki þjóðnýtingarmenn. Sagan hefur líka sýnt okkur, að á því fer bezt. Ætíð hefur manni virzt, að sjálfseignarbændurnir sætu sínar jarðir betur en aðrir, enda ekki þurft að spyrja aðra um leyfi fyrir umbótum, heldur hafizt handa sem frjálsir og djarfhuga menn. Ég tel jarðakaupastefnu bænda rétta og hún muni verða til blessunar fyrir land og þjóð.

Á sínum tíma vann Framsfl. nokkuð að því, að bændur seldu ríkinu jarðir sínar, og þeim varð nokkuð ágengt í þeim efnum. Þessir bændur guldu mikið afhroð og urðu yfirleitt sáróánægðir landsetár ríkisins. Með hinni alræmdu 17. gr. jarðræktarl., þar sem ríkið átti að eignast hlut og síhækkandi hlut í jörðunum fyrir móttekinn styrk frá því vegna umbóta, var að því stefnt, að ríkið eignaðist jarðir bænda smátt og smátt. Sjálfstfl. var þessu mótfallinn og er það enn og vegna hans baráttu var hin svokallaða 17. gr. jarðræktarl. afnumin. Þessi stefna framsóknarmanna hefur vafalaust verið fram sett af góðum hug og í góðum tilgangi, en hún var röng og stórhættuleg bændastétt og búaliði. Nú fá bændur, eins og rétt er og sjálfsagt, jarðræktarstyrkinn sem verðlaun til fullrar eignar og ráðstöfunar fyrir að rækta, byggja og prýða landið. Á undanförnum áratugum hefur fjöldi fólks flutt búferlum úr sveitum landsins til þéttbýlli staða, einkum til höfuðborgarinnar. Flest af þessu fólki hefur verið ungt og fullvinnufært, eftirsóttustu árgangarnir á vinnumarkaði þjóðarinnar. Landbúnaður hefur þannig alið upp mikið af starfsömu og góðu fólki við aðra atvinnuvegi. Þeir hafa fengið í þessum fólksflutningum mikinn og óveginn styrk. Hér er um vangoldna skuld að ræða, sem þarf að greiðast. Ég tel vafasamt, að nokkur annar atvinnuvegur hefði þolað þetta áfall til jafns við landbúnaðinn. Lítum til þess, ef svo hefði gengið hér í Reykjavík, ef unga fólkið hefði að mestu leyti á undanförnum áratugum flutt til annarra staða á landinu. Ég hygg, að það sæist mjög á flestum sviðum borgarlífsins, og uppbyggingin hefði gengið nokkuð hægar. Að svona hefur farið, stafar að nokkru af breyttum atvinnuháttum þjóðarinnar, að nokkru vegna þess að framfarir í verklegum efnum voru fyrr á ferð í þéttbýlinu en annars staðar, að nokkru fyrir það, að trúin á landið, grósku þess og gæði hefur ekki verið nógu sterk.

Því hefur stundum verið haldið fram á opinberum vettvangi og manna á milli og þó einkum hin síðari ár, að vangert hafi verið við sveitir landsins af því opinbera. Og verra hafi þar verið til lífsafkomu en annars staðar. Stjórnarandstaða núv. hæstv. ríkisstj. hefur einkum hampað þessari kenningu og látið málgögn sín dreifa henni um landið. Með þessu hefur verið unnið mikið óþurftarverk, verk, sem hefur orðið þess valdandi, að unga fólkið sérstaklega hefur nú um sinn haft minni áhuga á búskap en skyldi. Hér hefur stjórnarandstaðan hallað mjög réttu máli í málefnafátækt sinni. Sannleikurinn er sá, að aldrei fyrr í sögu landsins hefur verið búið eins vel að landbúnaðinum sem nú og að undanförnu af hendi núv. hæstv. ríkisstj. Í þessu sambandi má minna á, að ræktun undanfarin ár hefur verið meiri en nokkru sinni áður, byggingar meiri en nokkru sinni áður, vélbúnaður langtum meiri og betri en nokkru sinni áður og bústofn og framleiðsla meiri en nokkru sinni áður. Bændur landsins eru máttugri og stórhugaðri en nokkru sinni áður vegna viðreisnarinnar. Dæmi eru mörg um það, að þeir hafa með tilstyrk Stofnlánadeildar landbúnaðarins byggt svo til öll hús upp frá grunni á nýtízkulegan hátt á skömmum tíma. Sjá má víða í sveitum landsins svo fagrar, nýjar peningshúsabyggingar, að þær líkjast helzt íbúðarhúsum. Nú er það algengt, að bændur kaupa sér nýja bifreið til heimilisþarfa, sem varla þekktist á tímum vinstri stjórnarinnar, enda eru bifreiðar orðnar næstum því á hverjum bæ og sums staðar fleiri en ein. Allt þetta hefur getað skeð vegna þess, að bændur og búalið hafa haft úr meiru að spila en áður var. Tekjurnar hafa vaxið meira en útgjöldin, tekjurnar hafa vaxið m.a. vegna þess, að það hefur verið lögboðið, að bændur hefðu fyrir sína vinnu tekjur á móts við verkamenn, sjómenn og iðnaðarmenn og það hefur verið séð fyrir því, að það sem landbúnaðurinn seldi af sinni framleiðslu á erlendum mörkuðum, væri verðbætt úr ríkissjóði með útflutningsuppbótum að vissu hámarki, þó að framleiðsla sé orðin svo mikil nú, að búið er að skjóta yfir markið.

Í útflutningsuppbætur hefur bændastéttin nú fengið hundruð milljóna króna. Þetta ber að þakka núv. hæstv. ríkisstj., enda var útflutningsuppbótum fyrst komið á eftir að hún tók við völdum. Sérstakar þakkir á okkar ágæti hæstv. landbrh., Ingólfur Jónsson, sem er óþreytandi við að vinna landbúnaðinum sem allra mest gagn.

Um útflutningsuppbæturnar hefur verið furðu hljótt í málgögnum framsóknarmanna. Hafa bændur haft þau orð, að líklega væri nokkrum sinnum búið að lofa þær, ef framsóknarmenn hefðu borið gæfu til að vinna bændastéttinni svo ágætt starf. Til eru menn, sem telja útflutningsuppbæturnar eftir og vilja afnema þær. Afnám þeirra mundi hækka útsöluverð landbúnaðarframleiðslunnar á innlendum markaði, svo bændur bæru svipað úr býtum og aðrar vinnustéttir, sem þeir og eiga rétt á. Þetta ástand er tímabundið og verður ekki langvarandi. Þjóðinni fjölgar nú mjög ört, telur nú rúmlega 190 þús. manns. Áætlað er, að landsmenn muni verða ca. helmingi fleiri eða um 380 þús. manns eftir rúm 30 ár. Fullvíst má því telja, að útflutningsuppbætur muni á næstunni hverfa úr sögunni, en skortur á landbúnaðarframleiðslunni koma í staðinn. Það þarf bændastéttin út af fyrir sig ekki að harma, því það mundi skapa betra andrúmsloft yfirleitt á milli neytenda og hennar og líkur til, að verðið mundi hækka með vaxandi eftirspurn.

Herra forseti, tími minn er senn á þrotum. Ég geti ráð fyrir því, að við eigum eftir að heyra mikið barlómsvæl hjá hv. stjórnarandstæðingum nú sem fyrr. Ég tel, að engum sé greiði ger með slíku tali. Bændur hafa ekki ástæðu til að kvarta og þjóðin ekki í heild. Aldrei hefur hún lifað við jafnmikla möguleika og aldrei veitt sér jafnmikið. Það getur hver og einn fundið með því að bera saman það sem var og það sem nú er. Þrátt fyrir þetta á hún ca. 2000 millj. kr. í erlendum gjaldeyri á erlendri grund. Vissa er fyrir, að enn muni breytast til batnaðar á þjóðfélagssviðinu og möguleikarnir verða langtum meiri en þeir eru nú. Álverksmiðjan og atvinnujöfnunarsjóður munu m.a. stuðla að því. Hrakspár og fullyrðingar andstæðinganna munu ekki rætast. Þannig fór það í einum af okkar allra stærstu sigrum, lausn landhelgisdeilunnar við Breta, en vopnaburður andstæðinganna í landhelgisdeilunni og álverksmiðjumálinu nú er svipaður.

Frá atvinnujöfnunarsjóði vegna tekna frá álverksmiðju munu hundruð milljóna króna á næstu árum renna út um byggðir landsins til uppbyggingar og eflingar atvinnulífs. Í sveitum landsins er mikið verk að vinna. Þar er ónumið dýrmætt land. Það land þarf að nema og rækta, svo ekki verði allt of mikill skortur á landbúnaðarframleiðslunni í framtíðinni.

Fóðuröflun þarf að auka, svo fyllsta öryggi verði í fóðrun bústofns bænda um alla framtíð, á hverju sem gengur. Ég hef trú á því, að lausnin á þessu sviði verði heymjöls- eða heykögglaverksmiðja í sem flestum héruðum landsins, þar sem vel hagar til. Hér og á fleiri sviðum landbúnaðar er um verkefni fyrir atvinnujöfnunarsjóð að ræða. Álverksmiðja og atvinnujöfnunarsjóður munu því mjög stuðla að eflingu landbúnaðar og byggðajafnvægi, ef rétt og markvisst verður á þeim málum haldið. — Góða nótt.