03.05.1966
Sameinað þing: 45. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2655 í B-deild Alþingistíðinda. (2094)
Almennar stjórnmálaumræður
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Helgi Bergs, hv. 6. þm. Sunnl., var heldur seinheppinn hér í kvöld í málflutningi sínum. Hann talaði um dýrtíðarmálin, og minntist m.a. á það, að enn lengdist vinnutími fólks. Þetta er sama fullyrðingin og kom fram í gærkvöldi hjá rafmagnsheila Framsfl., hv. þm. Sigurvin Einarssyni, í ræðu hans, er hann taldi upp hinar margvíslegu hækkanir, sem hefðu orðið í tíð núv. stjórnar, en forðaðist þó að nefna þá hækkunina, sem hefði átt að standa honum næst, kauphækkunina og tekjuhækkunina. Báðir þessir hv. þm. Framsfl. eiga sæti í svokallaðri kjararannsóknarnefnd, en niðurstöður þessarar sömu n. eru þær, að á s.l. ári hafi meðalvinnutímalengd stytzt um 100 klst. það árið. Slíkur er málflutningur framsóknarmanna.
Á sama tíma hélt hv. 6. þm. Sunnl. því fram, að greiðsluhalli ríkissjóðs væri dæmi dýrtíðarvandans og verðbólgunnar og talaði um það, að dýrtíðin hér á landi væri eingöngu vegna óstjórnar ríkisstj. En á sama tíma og hann var að tala um þetta, lagði hann til að stórauka framlög til vegamála og helzt ætti að gera alla vegi hér á Íslandi með varanlegu slitlagi, helzt án þess að bæta nokkrum tekjum í ríkissjóð, hvað þá að benda á, hvaðan féð ætti annars að koma.
Hv. 3. þm. Reykv., Einar Olgeirsson, flutti hér skörulegt mál að venju. Ég hef reyndar sagt við hann áður í sambandi við annað mál hér á hv. þingi, að hann færi stundum undir þá lýsingu meistara Jóns, er hann flutti á sínum tíma um reiðina, að það hlypi æði og stjórnleysi í tunguna og deyfa fyrir eyrun. Ég held, að það megi segja þetta um ræðu hans í kvöld, þegar hann hélt því fram, að hinn erlendi aðili, sem samningur nú hefur verið gerður við í sambandi við álverksmiðjuna í Straumsvík, mundi brjóta íslenzka verkalýðshreyfingu undir sig í samvinnu við íslenzka vinnuveitendur. Ja, sér er nú hvert álitið, sem þessi hv. þm. hefur á íslenzkri verkalýðshreyfingu. Það er ekki mikil trú, sem þessi hv. þm. hefur á flokksbræðrum sinum í stjórn verkalýðshreyfingarinnar, að þeir eigi bara að lyppast niður, ef eitt meðalstórt fyrirtæki hefur atvinnurekstur hér á Íslandi. Ég vil benda honum á það í því sambandi, þegar hann bendir á, að þessi erlendi aðili muni ganga í Vinnuveitendasamband Íslands, að þeir hafa gefið yfirlýsingu um, að svo muni ekki verða. Hins vegar virðist ekki hv. þm. vita um það, að eitt stærsta sérgreinasamband verkalýðshreyfingarinnar á Íslandi héfur nú gengið í alþjóðasamband, m.a. að ég tel til þess að forðast það, að á þeirra hlut verði gengið.
Í umr. nú í kvöld og einnig í gærkvöldi hefur berlega komið í ljós, að stóriðjumálið svonefnda er mesta deilumál þessa kjörtímabils. Stuðningsmenn ríkisstj. ásamt stjórnarandstöðunni hafa haft langan tíma til að fylgjast með og koma fram aths. sínum við álsamninginn. Hafa fá mál fengið jafngóðan undirbúning og þetta og líklega hefur stjórnarandstaða aldrei haft jafngott tækifæri til að kynna sér mál einnar ríkisstj. sem þetta. Stjórnarflokkarnir hafa vegið og metið málið í heild og komizt að þeirri niðurstöðu, að allt benti til, að samningurinn um álbræðslu í Straumsvík mundi leiða til mikils þjóðhagslegs ávinnings. Stjórnarandstaðan hefur haft annan hátt á. Hún tekur eitt og eitt atriði út úr samningnum, gagnrýnir það og finnur honum allt til foráttu á grundvelli þess. Þó er skylt að geta þess, að við afgreiðslu málsins í Nd. gerði einn gáfaðasti þm. Framsfl., Björn Pálsson, grein fyrir atkv. sinu á þann veg, að með samþykkt samningsins væri um þjóðhagslegan ávinning að ræða. En handjárnin héldu. Við afgreiðslu málsins sat hann hjá. Sama er að segja um hv. þm. Jón Skaftason. Er hann gerði grein fyrir atkv. sínu, taldi hann málið til hagsbóta fyrir kjördæmi sitt. En það, sem ég hef kallað hjá framsóknarmönnum staðbundna föðurlandsást, togaðist á í hv. þm. við hnappheldu sjálfs hnappasmiðsins, Eysteins Jónssonar, og það varð jafntefli. Þrátt fyrir mat sjálfs þm. á ótvíræðum hag Reykjaneskjördæmis af álbræðslu í Straumsvík, vildi hann vísa frv. til ríkisstj. á einu stigi þess, en sat hjá við endanlega afgreiðslu málsins. Sú skoðun hefur heyrzt frá þm. Framsfl. úr Norðurl. e., að málið hefði litið allt öðruvísi út, ef verksmiðjan hefði verið staðsett í þeirra eigin kjördæmi. Er þetta í samræmi við afstöðu l. þm. Framsóknar í þessu kjördæmi til frv. ríkisstj. um breyt. á l. um kísilgúrverksmiðju við Mývatn. Margt at því, sem framsóknarmenn gagnrýna hvað mest í álsamningnum, á sínar hliðstæður í væntanlegum samningi við bandaríska fyrirtækið um vinnslu og sölu kísilgúrsins. Framsóknarþm. Norðurl. e. ættu samvizku sinnar vegna og samræmis að greiða atkv. gegn kísilgúrfrv. og beygja sig þar með að fullu undir handjárnapólitík Eysteins Jónssonar. Hv. þm. Ingvar Gíslason sagði um álsamninginn fyrir skömmu, að með honum dyndu yfir okkur allir ókostir samskipta við erlenda stóriðjuhölda. Þeir mundu fá allan ávinninginn, en við ekkert nema óhagræðið og skömmina og slíkum samningi bæri auðvitað að hafna. Hvað verður ofan á hjá þessum hv. þm., er kísilgúrfrv. kemur til afgreiðslu í Nd.? Ætlar hann að standa við stóru orðin og greiða atkv. gegn því á þeirri forsendu, að ríkisstj., sem gert hefur annan eins samning og álsamninginn, sé ekki treystandi til frekari samninga við erlenda aðila eða ætlar hann að hafa sama hátt á og lærifaðir hans, hv. þm. Karl Kristjánsson, að láta sína staðbundnu föðurlandsást ráða afstöðu sinni til málsins og greiða því atkv.? Úr því fæst skorið næstu daga.
Fjögur atriði hafa aðallega verið gagnrýnd í álsamningnum, orkuverðið, gerðardómurinn, samningstíminn og staðsetning verksmiðjunnar. Þrem fyrstu atriðunum hefur þegar verið svarað og reyndar því síðasta einnig, a.m.k. hvað viðkemur vinnuaflsþörf verksmiðjunnar og annarra atvinnuvega og áhrifum á þensluna í þjóðfélaginu. Eins og fram hefur komið í skýrslu ríkisstj., var ítarlega rannsakað, hvar helzt kæmi til greina að reisa væntanlega álverksmiðju. Ríkisstj. og stuðningsmenn hennar allir sem einn voru sammála um, að æskilegast væri að staðsetja verksmiðjuna þannig, að hún stuðlaði að auknu byggðajafnvægi. Auk Faxaflóasvæðisins kom Eyjafjörður helzt til greina, en það kom í ljós, að á þessu voru alvarlegir fjárhagslegir annmarkar. Í viðræðunum um staðsetninguna lýstu hinir erlendu samningsaðilar því yfir, að þeir yrðu að fá verulega hagstæðara raforkuverð, ef verksmiðjan yrði staðsett við Eyjafjörð, vegna hærri stofn- og reksturskostnaðar. En vegna hærri stofnkostnaðar raforkukerfisins hefðum við orðið að selja raforkuna hærra verði til verksmiðju við Eyjafjörð og var áætlað, að stofn- og reksturskostnaður okkar vegna staðsetningarinnar þar hefði verið, með 6% vöxtum til ársins 1983, 700 millj. kr. hærri. Auk þessa kom fram ótti Svisslendinganna vegna hafíshættunnar fyrir norðan, ekki sízt eftir að ísinn kom hér að landi á s.l. vetri og vori. Þetta er skiljanlegt, þegar þess er gætt, að áætluð flutningaþörf 60 þús. tonna verksmiðju til og frá landinu er í kringum 240 þús. tonn á ári eða hátt í það sama og flutt var til og frá landinu með öllum skipum Eimskipafélagsins á næstliðnu ári. Af hálfu þeirra, sem styðja mál þetta, er m.a. bent á stórfelldar gjaldeyristekjur og lægra raforkuverð til innlendra neytenda.
Hluti skattteknanna rennur til Hafnarfjarðarkaupstaðar, en enginn vafi er á því, að verksmiðjan og hafnargerðin í Straumsvík eiga eftir að verða mikil lyftistöng fyrir allt byggðarlagið, eins og reyndar hv. þm. Jón Skaftason hefur komizt að, þótt hann vilji ekki styðja málið. Enda verður að viðurkenna þörf þeirra ekki síður en margra annarra staða hafandi í huga, að helzti atvinnuvegur þeirra um áratuga skeið, togaraútgerðin, hefur ekki borið sitt barr nú um langt árabil, m.a. vegna þeirra fórna, sem togaraútgerðin hefur fært, svo að lífvænlegra væri á framleiðslustöðum sjávarafurða kringum allt land.
Stærsti hluti skattteknanna fer í atvinnujöfnunarsjóð til uppbyggingar atvinnulífi út um allt land. Stofnfé þessa sjóðs er hátt á 4. hundrað millj. kr. og verða þegar til ráðstöfunar á þessu ári 36 millj. kr., 50 millj. kr. á næsta ári og að fáum árum liðnum á 2. hundrað millj. Þá eru heimildir fyrir sjóðinn að taka innlent lán og allt að 300 millj. kr. erlend lán. Í þessu sama skyni liggur nú fyrir heimild fyrir atvinnuleysistryggingasjóð að ráðstafa 1/4 hluta vaxtatekna sjóðsins, um 15 millj. kr. á þessu ári, í vaxtalaus lán til langs tíma. Sami sjóður hefur nú í ár orðið við tilmælum ríkisstj. um stórhækkuð lán til hafnarframkvæmda úti um land eða úr 16–17 millj. kr. á s.l. ári í 40 millj. kr. á þessu ári. Auk þessa hafa allir aðrir fjárfestingarsjóðir verið stórefldir og aldrei verið öflugri en nú. Þeir munu einnig nýtast betur og koma að betra gagni vegna þeirra breytinga, sem ríkisstj. hefur beitt sér fyrir, að gerð væri á skipulagi þeirra á þessu þingi. Það er því með öllu óskiljanlegt, þegar bæði hv. þm. Eysteinn Jónsson og Ragnar Arnalds og reyndar fleiri leyfa sér að tala um þessar ráðstafanir ríkisstj. til atvinnuuppbyggingar úti um land sem ekki meira en svo, að nema mundi andvirði eins vélbáts á ári. En hv. þm. Ragnar Arnalds kom víðar við. Hann ræddi um þá sérstöku vá, að hér á Íslandi fyndist þéttbýli. Þessi ungi maður gerir sér auðsjáanlega enga grein fyrir því, að það er þéttbýlið á Suðvesturlandi, sem er undirstaða þess, að hægt er að gera það stóra átak, sem nú er hafizt handa um. Þessi sami þm. sagði í gærkvöldi og bergmál þess heyrðum við hér áðan, að Alþb. væri forustuaflið í íslenzkri verkalýðshreyfingu. Fleirum en mér kemur ókunnuglega fyrir sjónir, að þessi skólapiltur hafi komizt í forustu í verkalýðshreyfingunni, þetta er ekki annað en óskhyggja eins og hjá meistara Jóni, hv. 3. þm. Reykv., sem hér var að tala áðan. Þetta er álíka fullyrðing og þegar þm. hélt því fram fyrir nokkru, að heimur hefði skolfið og stórveldin hefðu gert með sér samning um bann við kjarnorkutilraunum, vegna þess að hann og lítill hópur kommúnista ásamt meðreiðarmönnum hefðu farið í gönguferð á milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Hitt er svo aftur satt, að örfáir forustumenn verkalýðshreyfingarinnar telja sig Alþb.-menn, en þeir telja sig líka sósíalista, þjóðvarnarmenn, vinstri jafnaðarmenn og framsóknarmenn, og vegna þessara manna ráða kommúnistar lögum og lofum í stjórn A.S.Í. og þeirra vegna er álsamningnum mótmælt, en ekki vegna þess að íslenzk verkalýðshreyfing standi þar að baki.
Það eru ill örlög hv. þm. Hannibals Valdimarssonar, sem hér talaði í gærkvöldi, að hafa á sitt eindæmi breytt stefnu A.S.Í. í landbúnaðarmálum, þótt engin samþykkt hafi verið gerð þar um á þingum þess, vitandi þó, að breytingarnar draga úr víxlhækkunum kaupgjalds og verðlags. Og það er furðulegt, að hann og félagar hans í stjórn A.S.Í. skuli í afstöðu sinni til álsamningsins ganga í berhögg við eina af grundvallarstefnum verkalýðssamtakanna, að auðlindir landsins verði nýttar og öllum landsmönnum tryggð næg atvinna. Ég veit, að stór hluti íslenzku verkalýðshreyfingarinnar er þess fullviss, að með virkjun jökulfljóta okkar, sem runnið hafa til sjávar frá ómunatíð engum til gagns, en mörgum til skaða, með samningunum um ál- og kísilgúrverksmiðju, með byggingu nýrrar síldarverksmiðju á Austurlandi, auknum flutningamöguleikum á hráefni okkar til annarra staða, endurskipulagningu fjárfestingarsjóðanna og tilkomu atvinnujöfnunarsjóðs er verið að renna styrkari stoðum en nokkru sinni fyrr undir áframhaldandi og stórkostlegri uppbyggingu atvinnulífsins um land allt en gert hefur verið til þessa. — Góða nótt og gleðilegt sumar.