03.05.1966
Sameinað þing: 45. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2681 í B-deild Alþingistíðinda. (2101)
Almennar stjórnmálaumræður
Ólafur Jóhannesson:
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Mér er það í sjálfu sér óljúft að standa í persónulegum deilum við dómsmrh., en ég kemst ekki hjá því að leiðrétta í alþjóðaráheyrn nokkrar af þeim margendurteknu missögnum, sem hann og hans málgögn hafa að undanförnu borið á borð fyrir kjósendur um gerðardómsákvæði álsamninganna, enda þótt hæstv. ráðh. hætti sér ekki út á það hála svell hér áðan að ræða það efni, og skil ég það undanhald hans mætavel vegna þess, sem á undan er gengið.
Dómsmrh. hefur sagt á Alþingi, að mér hafi sem fræðimanni verið sýnd gerðardómsákvæði álsamninganna og að ég háfi ekkert haft við þau að athuga. Enn fremur að gerðardómsákvæðin hafi verið að breytast stig af stigi og alltaf okkur í hag, og gaf þar með í skyn, að gerðardómsákvæðin hefðu verið enn verri, þegar þau voru sýnd mér. Hann hefur í þriðja lagi og við sama tækifæri staðhæft, að gerðardómsákvæðin væru upphaflega frá Íslendingum komin. Allt þetta má lesa í ræðu ráðh. í Mbl. 6. apríl s.l. Allt þetta er rangt og sagt af ráðh. gegn betri vitund, því hann þekkti sannleikánn. Sannleikurinn er þessi: Lögfræðingur álsamninganefndar, gamall nemandi minn, sýndi mér í trúnaði fyrsta samningsuppkastið, sem Íslendingar létu frá sér fara. Ég sagði honum, að vegna aðstöðu minnar gæti ég ekki látið í té neitt um efnisatriði þess. Það skildi hann, og var aldrei síðan til mín leitað í sambandi við þessa samningagerð. Hef ég aldrei nálægt henni komið. Í fyrsta uppkasti, því eina sem ég sá, voru engin ákvæði um lögþvingaðan gerðardóm. Reglurnar um úrlausn deilumála voru þar þessar:
Aðalreglan var sú, að deilumál skyldu útkljáð fyrir reglulegum íslenzkum dómstólum, og mátti þar frá ekki víkja nema allir — allir — málsaðilar samþykktu.
Í öðru lagi, ef allir aðilar samþykktu, mátti leggja tiltekið ágreiningsefni fyrir alíslenzkan gerðardóm.
Í þriðja lagi lýsti ríkisstj. því yfir, að ef og þegar nægilega mörg ríki, þ. á m. Ísland og Sviss, hefðu fullgilt samþykkt Alþjóðabankans um lausn fjárfestingardeilna, væri hún reiðubúin að íhuga eða ræða þann möguleika að nota þá aðferð til sátta og gerðar, sem þar er gert ráð fyrir, og þá auðvitað með þeim hætti, sem þar er ákveðinn, þ.e. með skriflegum samningi málsaðila hverju sinni. Í þessu fólst engin skuldbinding.
Þarna er ekki að finna nein ákvæði um útlenda lögþvingaða gerðarstofnun. Það var vissulega engin ástæða til þess fyrir mig að gera aths. við þessi ákvæði. Þau voru ekki og eru ekki vansæmandi fyrir einn eða neinn. Séu þessi ákvæði, sem sett voru fram eftir að langar viðræður við Svisslendinga höfðu átt sér stað, borin saman við gerðardómsákvæði álsamninganna, er ljóst, hversu röng sú staðhæfing ráðh. er, að ákvæði þessi hafi breytzt til batnaðar frá því fyrsta samningsuppkastið var sýnt mér, en á annan veg urðu ummæli ráðh. í Nd. ekki skilin, og hafa málgögn hans lagt trúlega út af þeim á þann veg eins og lesendur þeirra bezt vita.
Saga gerðardómsákvæðanna gefur bendingu um, hvernig ríkisstj. hafi að öðru leyti haldið á málstað Íslands í þessari samningagerð.
Þá er það og sannað með yfirlýsingu aðalforstjóra Alusuisse, að gerðardómsákvæðin eru til komin skv. kröfu Svisslendinga, sem töldu íslenzka dómstóla skorta reynslu í málum af þessu tagi.
Hvað segja menn um svona sannleiksmeðferð hjá dómsmrh., æðsta oddvita réttvísi og heiðarleika í þessu landi? Ég hygg, að hún sé sem betur fer algert einsdæmi og ætla ekki að hafa um hana stærri orð á þessum vettvangi.
Gerðardómsákvæði álsamninganna hef ég fordæmt án allrar tæpitungu. Þau eru hættulegt fordæmi, ef núv. stjórnarflokkar verða áfram við völd. Þeir lögleiða utanstefnur í nýjum stíl. Eitt sinn stóðum við þó Íslendingar á réttinum og sögðum: Utanstefnur viljum vér engar hafa. Þeim orðum virðist dómsmrh. hafa gleymt. Gerðardómsákvæðin eru einstæð. Það hefur aðeins verið bent á eitt einasta fordæmi, það er í álsamningunum við Ghana.
Þessi gerðardómsákvæði og álsamningarnir yfirleitt eiga auðvitað ekkert skylt við alþjóðasamvinnu á jafnréttisgrundvelli. Alþjóðasamvinna á ekkert skylt við undirlægjuhátt gagnvart erlendu gróðafélagi.
Hæstv. forsrh. var hér í gærkvöldi mjög hneykslaður yfir því, að hálærðir menn skyldu gera sig að viðundri með því að vera að fetta fingur út í þá smámuni, að dómsvald í tilteknum málum skyldi flutt úr landi og fengið í hendur hlutlausri, útlendri stofnun. Út af þeim ummælum hans langar mig til að benda mönnum á ágæta grein eftir dr. Bjarna Benediktsson, sem að vísu af einhverjum ástæðum hefur ekki fengið inni í nýútkomnu ritsafni hans, en hún birtist í 1. desemberblaði Vísis árið 1938. Hefur hún fyrirsögnina: Dómsvaldið endurheimt frá Dönum. Þar er það skilmerkilega rakið, að ein af mikilsverðustu kröfunum í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga hafi verið sú, að æðsta dómsvald í íslenzkum málum væri flutt inn í landið og fengið innlendum dómstól. Tíminn leyfir ekki, að þessi ágæta grein sé lesin, en niðurlagsorð hennar eru þessi:
„En um það verður ekki deilt, að þjóðinni var það mikill vinningur að fela innlendum dómstól æðsta dómsvaldið í íslenzkum málum, því að reynslan hefur sýnt, að í þessu vandasama efni eru engir hæfari að fara með úrslitaráðin en við sjálfir.“
Þetta sagði hinn hálærði dr. Bjarni Benediktsson árið 1938. Það getur enginn meinað íslenzkum forsrh. að fara í gegnum sjálfan sig, en enginn getur heldur bannað mönnum að brosa að því háttalagi hans.
Skoðanir eru skiptar um margt, en um eitt er ekki deilt. Um eitt eru allir sammála, að ekki hafi tekizt að ráða við dýrtíðina. Það er margviðurkennt af stjórninni, að henni hafi ekki tekizt að hafa hemil á verðbólguþróuninni. Eitt sinn taldi hún þó, að allt annað væri unnið fyrir gýg, ef ekki tækist að stöðva verðbólguna, og það er vissulega rétt.
Það sem fyrst og fremst er að í okkar landi er verðbólgan, hún ógnar undirstöðuatvinnuvegunum, sem ekki geta um leið velt vaxandi tilkostnaði yfir á aðra. Frá hverri atvinnugreininni á fætur annarri berast kvartanir um versnandi afkomu, hallarekstur og jafnvel yfirvofandi framleiðslustöðvun, meira að segja sjávarútvegurinn kemst ekki af án stuðnings á þessu metaflaári, launþegar stynja undan fargi dýrtíðar og horfa fram á lífskjararýrnun af hennar völdum. Unga fólkið sér ekki fram á, hvernig það á að eignast þak yfir höfuðið. Það er talandi tákn um dýrtíðarvöxtinn, að byggingarkostnaður meðalíbúðar skuli hafa meir en tvöfaldazt á valdatíma núv. stjórnarflokka, og það segir sína sögu, að hækkun byggingarkostnaðar þrjú síðustu árin hefur gert talsvert betur en að éta upp allt lán húsnæðismálastjórnar. Verðbólgan eykur aðstöðumun þjóðfélagsþegnanna og er undirrót að margvíslegu þjóðfélagslegu ranglæti, hún er gróðrarstía spákaupmennsku og spillingar.
Gagnvart þessari höfuðmeinsemd efnahagslífsins hefur ríkisstj. staðið ráðþrota og það sem verra er, að hún hefur með ýmsum aðgerðum sínum ýtt undir þessa þróun bæði beint og óbeint, og nú hefur stjórnin blátt áfram gefizt upp við að veita verðbólgunni viðnám. Ljósasta dæmi þess er sú ákvörðun hennar að fella niður niðurgreiðslur á algengustu neyzluvörum, eins og fiski og smjörlíki.
Það spáir ekki góðu, þegar sumir talsmenn stjórnarflokkanna eru farnir að gera gælur við dýrtíðina, sbr. leiðara Alþbl. frá 24. f. m., þar segir m.a.: „En hve mörg heimili hefur hún (þ.e. verðbólgan) gert að húseigendum? Jafnvel af efnafólki, þótt hinum eiginlegu verðbólgubröskurum sé sleppt, eru þeir margir sem vilja, að verðbólgan haldi áfram, líklega svo margir, að grundvöllur fyrir raunverulegum aðgerðum til að stöðva verðbólguna, er veikur, að ekki sé meira sagt.“ Hér kveður óneitanlega nokkuð við annan tón en hjá hinum ágæta foringja Alþfl. á sínum tíma, Haraldi Guðmundssyni, er hann mælti hin fleygu orð, að verðbólgan gerði hina ríku ríkari og hina fátæku fátækari. Þessi orð eru sannleikur. Þess vegna vill áreiðanlega meiri hluti þjóðarinnar, að dýrtíðinni sé haldið í skefjum. Það sanna m.a. ummæli margra fyrirsvarsmanna atvinnuveganna. Form. Stéttarsambands bænda sagði t.d. í jan. s.l.: „Höfuðnauðsyn fyrir bændur sem þjóðfélagið í heild er, að verðbólgan verði stöðvuð.“ Í ræðu, sem form. Félags ísl. iðnrekenda flutti á ársþingi iðnrekenda nú fyrir nokkrum dögum, sagði hann: „Ég vil afdráttarlaust fullyrða, að verðbólgan sé höfuðvandamál íslenzks iðnaðar í dag.“ Enn fremur segir hann: „En íðnaðurinn vill leggja ríka áherzlu á, að fundin verði skynsamleg lausn á þessum vanda og heitir stuðningi sínum við allar réttlátar aðgerðir í þá átt.“ Margir fyrirsvarsmenn sjávarútvegsins hafa talað í sama dúr og hafa jafnvel kveðið enn fastar að orði, þó að hér sé ekki tóm til að rekja þau ummæli. Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík tók í sama streng og eins bandalag opinberra starfsmanna, og í ávarpi fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna sagði meira. Þar segir m.a.: „Verkalýðssamtökin líta á það mjög alvarlegum augum, að margítrekuð loforð ríkisstj. hafa reynzt marklaus.“ Undir þetta skrifa einnig stjórnarsinnar eins og Guðjón Sigurðsson og Óskar Hallgrímsson. Ég er þessum mönnum algerlega sammála. Ég tel, að dýrtíðin sé langsamlega mesta vandamál þjóðarinnar í dag, það vandamál er vissulega ekki auðleyst, en það verður að leysa, því að allir hugsandi menn sjá, hvar áframhaldandi undanhald í þeim efnum hlýtur að enda. Gegn því vandamáli verður að snúast með einbeitni og samstilltu átaki, og ég efast um, að við hana verði ráðið, nema allir taki höndum saman. Það held ég, að þjóðin skilji, það held ég, að þjóðin vilji, en það verður ekki gert undir forystu núv. stjórnar, enda virðast nú fáir, jafnvel í hennar eigin stuðningsliði, treysta henni til nokkurra dáða á þessu sviði, hvað sem öðru líður, en það skilur ekki stjórnin eða vill ekki skilja. Hennar kjörorð sýnist vera: Sitjum í ráðherrastólunum, hvað sem það kostar. Hún hangir í stýrishúsinu og fæst ekki þaðan til að fara, enda þótt hún hafi í raun og veru sleppt stýrinu. Kjósendur losna því ekki við þessa stjórn, nema þeir láti atkvæðin tala svo skýrt, að ekki verði um villzt. Til þess er tækifæri í sveitarstjórnarkosningunum, sem fram undan eru. Getuleysi stjórnarinnar í dýrtíðarmálunum er fullsannað. Það er ekki eftir neinu að biða, en hvort sem það dregst lengur eða skemur héðan af, að stjórnin neyðist til að yfirgefa ráðherrastólana, þá er það alveg víst, að verðbólgan verður minnisvarði þessarar hæstv. ríkisstj. Viðreisnarstjórn og verðbólga eru tvö hugtök, sem í framtíðinni verða tengd órjúfandi böndum. Góða nótt.