03.05.1966
Sameinað þing: 45. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2684 í B-deild Alþingistíðinda. (2102)
Almennar stjórnmálaumræður
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Góðir hlustendur. Í gærkvöldi lýsti hv. þm. Framsfl., Ágúst Þorvaldsson, stjórnarsamstarfi Alþfl. og Sjálfstfl. sem ástheitum brúðardansi í viðreisnarhöll. Þetta var snotur samlíking. Það má vel líkja stjórnarsamstarfi við dans. jafnvel brúðardans. En þm. hefði vel mátt minnast þess, að Framsfl. hefur dansað lengur við Sjálfstfl. en Alþfl. Sá dans var að vísu ekki alltaf ástheitur og hann var heldur ekki alltaf fallegur, og löngum var hann ekki stiginn í neinni víðreisnarhöll, heldur í lágreistum haftakofa. Oft nötraði ekki aðeins dansgólfið undan sporunum, sem stigin voru, heldur öll byggingin. Ekki var heldur alltaf dansað fram á við, heldur stigin mörg hröð spor aftur á bak í þeim dansi. Það hefur sannarlega ekki á það skort, að Framsfl. hafi dansað við aðra flokka á sviði stjórnmálanna. Á undanförnum 30–40 árum hefur hann dansað lengur og meira við aðra flokka en nokkur annar íslenzkur stjórnmálaflokkur. En það hefur jafnan þótt vera einkenni á stjórnmáladansi Framsfl., að ástríki hans hafi verið takmarkað, og hann jafnvel átt það til að flækjast fyrir makanum í dansinum. Stundum meira að segja bregða fyrir hann fæti. Engum blandast hugur um, að Framsfl. sé enn reiðubúinn til að stíga dansspor, t.d. við stjórnarflokkana. Þegar þm. hans fjölyrða um það ástríki, sem sé á stjórnarheimilinu, gæti það borið vott um afbrýðisemi. Á engu stjórnarheimili, þar sem Framsfl. bjó með öðrum flokkum árum og áratugum saman, reyndist sambúðin eins snurðulaus, ærleg og heiðarleg og Framsfl. sér, að hún er nú á stjórnarheimilinu. Framsfl. væri eflaust hollt að íhuga, hvort hann kynni ekki að eiga meginþáttinn í því sjálfur, að svo var jafnan. Ætli það sé ekki einmitt þess vegna, að aðra flokka langar nú jafnlítið og raun ber vitni til þess að dansa við Framsfl. og hann muni því neyðast til þess enn um langt skeið að sitja yfir í dansinum?
Hv. þm. Alþb., Gils Guðmundsson, sýndi það enn einu sinni í gærkvöldi, að honum lætur miklu betur að tala um bókmenntir og menningarmál en efnahagsmál. Hann deildi mjög á ríkisstj. og kaupsýslustéttirnar fyrir það, hversu mikið væri flutt til landsins af óþarfa, eins og erlendum kökubotnum og kexi. Slík ummæli sýna betur en margt annað, hversu margir leiðtogar stjórnarandstöðunnar hafa staðnað gjörsamlega í gömlum tíma og átta sig bókstaflega ekki neitt á þeirri grundvallarbreytingu í efnahagsmálum og víðskiptalífi, sem átt hefur sér stað á undanförnum árum. Ef hér væri enn þá gjaldeyrisskortur og ef innflutningur almennra nauðsynja væri enn þá takmarkaður, eins og áður var, mætti eflaust átelja yfirvöld fyrir að veita innflutningsleyfi fyrir erlendum kökubotnum og erlendu kexi, eða deila á kaupsýslumenn fyrir að nota takmörkuð leyfi og takmarkaðan gjaldeyri til innflutnings slíkrar neyzluvöru, sem auðvitað má vel vera án. En það er engu líkara en ýmsir leiðtogar stjórnarandstöðunnar lifi svo sterklega í liðnum tíma, það er engu líkara en þeir séu svo afturhaldssamir í hugsunarhætti, að þeir hafi alls ekki áttað sig á því enn þá, að tímar leyfisveitinga og gjaldeyrisskorts eru löngu liðnir. Ef þessum gamaldagsmönnum geðjast ekki að því, að hér sé t.d. erlent kex og erlendir kökubotnar til sölu og slík vara sé keypt og ef þeir vilja deila á einhvern fyrir slíkt, eiga þeir að deila á þá, sem kaupa þessar vörur, á neytendurna, á húsmæðurnar. Það er ekki hægt að deila á kaupsýslustéttirnar fyrir að flytja inn þær vörur, sem neytendurnir vilja fá keyptar. Það er þeirra hlutverk. Og enn þá siður er hægt að deila á stjórnarvöldin fyrir að halda þannig á gjaldeyrismálum þjóðarinnar, að hægt sé að flytja inn þær vörur, sem neytendurnir og húsmæðurnar vilja geta keypt, án þess að þurfa að neita þeim um nokkuð annað í staðinn. Meðan menn í aðalatriðum geta fengið þann gjaldeyri, sem þeir óska eftir að kaupa til vöruinnflutnings, er við engan annan að sakast en neytandann sjálfan, ef mönnum geðjast ekki að því, sem inn er flutt. Þegar verið er að deila á stjórnarvöld og kaupsýslumenn vegna þess, að flutt sé inn eitthvað, sem einhverjir kalla óþarfa, ber það einungis vott um, að menn eru staðnaðir í gömlum tíma, sem er löngu liðinn hjá og kemur vonandi aldrei aftur. Menn geta auðvitað deilt á það, hvernig almenningur ráðstafar tekjum sínum, en um það er hvorki við stjórnarvöld eða kaupsýslumenn að sakast.
Innan skamms fara fram almennar bæjar- og sveitarstjórnarkosningar. Úrslit þeirra munu að vísu ekki hafa áhrif á gang mála hér á hinu háa Alþ. Það er samt eðlilegt, að menn spyrji, á hvaða atriði Alþfl. vilji nú leggja mesta áherzlu. Alþfl. vill vinna að því, að heilshugar samstarf takist milli stéttasamtakanna annars vegar og ríkisvaldsins hins vegar í því skyni að hafa hemil á vexti verðbólgunnar. Í lýðræðisríki er engin ríkisstj. svo voldug, að hún ein geti komið í veg fyrir verðbólgu. Fleiri aðilar þurfa að vilja það, og þá fyrst og fremst stéttasamtökin. Alþfl. er sprottinn upp úr launþegahreyfingunni og á þar djúpar rætur. Ríkisstj. í heild hefur marglýst því yfir, að hún óski eftir sem nánustu samstarfi við stéttasamtökin um kjaramálin. Hjá forystumönnum launþegasamtakanna, hvar svo sem þeir standa í flokki, er áreiðanlega á því vaxandi skilningur, að ekki sé allt fengið með hækkun á krónutölu kaupsins. Hitt sé miklu mikilvægara, að gagnkvæmt traust skapist milli launþegasamtakanna og ríkisvaldsins. Slíkt andrúmsloft hefur smám saman verið að skapast undanfarin tvö ár. Alþfl. mun leggja sig allan fram til þess, að samstarfið milli ríkisvaldsins og stéttasamtakanna verði sem bezt.
Þá vill Alþfl. vinna að því, að róttæk breyting verði gerð á stefnunni í landbúnaðarmálum. Útflutningsbætur vegna landbúnaðarvöruútflutnings hafa tífaldazt — hafa tífaldazt á undanförnum fimm árum og eru nú orðnar nokkuð á þriðja hundrað millj. kr. á ári. Mjólkurafurðir eru fluttar út fyrir fjórðung framleiðslukostnaðar og sauðfjárafurðir fyrir um það bil hálfvirði. Ef bændur ættu að fá fullt verð fyrir allt það, sem flutt er út, þyrftu útflutningsbæturnar að vera meira en 70 millj. kr. meiri en nú er heimilt að greiða úr ríkissjóði. Þessar 70 millj. verða bændur sjálfir að greiða af heildartekjum sínum. Landbúnaðarvöruútflutningurinn í ár beinlínis rýrir því tekjur bænda um 70 millj. kr. og ef ekki verður gripið í taumana, heldur framleiðslan og útflutningurinn áfram að vaxa. 1970 yrði landbúnaðarútflutningur orðinn svo mikill, að nauðsynlegar útflutningsbætur yrðu næstum 500 millj. kr. Slíkur útflutningur myndi skerða tekjur bænda um því sem næst 10 af hundraði, og sjá vonandi allir, í hvílíkt óefni stefnir bæði fyrir bændastéttina sjálfa og þjóðarheildina. Hér er um vandasamt mál að ræða, en Alþfl. vili vinna að lausn þess á raunhæfan og heilbrigðan hátt þannig, að skynsamlegt tillit sé tekið til hagsmuna neytenda og bænda og þjóðarheildarinnar yfirleitt.
Þá vill Alþfl. halda áfram að efla umbætur á sviði félagsmála og húsnæðismála og leggur nú sérstaka áherzlu á, að allir landsmenn fái aðild að öflugum lífeyrissjóði. Alþfl. mun einnig styðja nauðsynlega endurskoðun tollakerfisins til að lækka verðlag innanlands og auka samkeppni, en jafnframt mun hann styðja það, að iðnaðinum sé hjálpað með hagræðingarlánum og á annan hátt til að laga sig að breyttum aðstæðum og auka samkeppnishæfni sína.
Og síðast en ekki sízt telur Alþfl., að samfara vaxandi velmegun og auknu félagslegu öryggi þurfi menntun þjóðarinnar að halda áfram að batna og menning hennar að blómgast. Á því sviði hefur núv. ríkisstj. aðhafzt mikið á undanförnum árum og því verður að halda áfram í vaxandi mæli. Sannleikurinn er sá, að á undanförnum árum hefur orðið gerbylting í íslenzku þjóðlífi. Það er rétt, að ytri aðstæður hafa verið hagfelldar, en ekki hefði það dugað til, ef illa hefði verið haldið á málum og afturhaldssjónarmið ríkt. Mér er nokkuð til efs, að menn geri sér almennt nægilega ljóst, að í raun og veru hefur verið að skapast nýtt þjóðfélag á Ísíandi á undanförnum árum. Öll framleiðslutæknin hefur verið að gerbreytast. Grundvöllur alls viðskiptalífsins er orðinn allur annar en áður var. Félagsmál hafa tekið miklum breytingum og í menningarlífinu hafa átt sér stað miklar framfarir. Skynsamir og sanngjarnir menn munu án efa sjá, að yfirleitt eru allar breytingarnar í rétta átt, en þær hafa samt í öllum aðalatriðum gerzt gegn andstöðu Framsfl. og Alþb. Þeir voru á móti leiðréttingu gengisskráningarinnar. Þeir voru á móti afnámi útflutningsbótakerfisins. Þeir voru á móti afnámi innflutningshaftanna. Þeir voru á móti, þeirri breytingu á stefnunni í bankamálum, sem hefur verið forsenda myndunar gjaldeyrisvarasjóðsins. Þeir voru á móti breytingunni á stefnunni í vaxtamálum, sem svo mjög hefur stuðlað að aukningu sparifjármyndunarinnar. Þeir voru á móti afnámi fjárfestingareftirlitsins. Þeir eru nú á móti verðtryggingu sparifjár og lána. Þeir eru nú á móti byggingu álbræðslunnar og þannig mætti lengi telja. Þeir hafa auðvitað ekki verið á móti þeim miklu umbótum, sem gerðar hafa verið í félagsmálum og menntamálum, en þeir hafa verið á móti þeirri stefnu í efnahagsmálum, sem hefur verið forsenda þess, að unnt hefur verið að tryggja framfarir á sviði menntamála og félagsmála. Þess vegna hafa Framsfl. og Alþb. reynzt hinir einu og sönnu afturhaldsflokkar á Íslandi á undanförnum árum. Þeir hafa ekki skilið tímanna tákn. Þeir hafa ekki áttað sig á því, hvaða breytingar í efnahagsmálum væru nú nauðsynlegar, til að góð ytri skilyrði hagnýttust til fulls og til þess að unnt yrði að efna til verulegra umbóta á sviði félagsmála og menningarmála. Helztu foringjar Framsfl. og Alþb. virðast enn lifa í hugarheimi kreppuáranna 1930–1940 og telja þau úrræði, sem þá voru skynsamleg, eiga við enn þann dag í dag, en það er einmitt helzta einkenni sannra afturhaldsmanna, að þeir vilja halda áfram að beita sömu úrræðum, þótt allar aðstæður séu orðnar gerólíkar.
Góðir hlustendur. Alþfl. gengur bjartsýnn til þeirra kosninga, sem fram undan eru. Hann telur sig hafa verið að gera rétt með stefnu sinni og í störfum sínum á undanförnum árum. Hann þykist geta bent á margan góðan árangur af athöfnum sínum. Og er það ekki einmitt góður árangur, sem skiptir máli í þjóðmálabaráttunni? Alþfl. heitir á alla stuðningsmenn sína og velunnara að liggja nú ekki á liði sínu í kosningabaráttunni. Við munum halda áfram á þeirri braut, sem við höfum gengið. Við munum kappkosta að reynast ábyrgir og heiðarlegir í því stjórnarsamstarfi, sem við göngum til. Hvort sem við erum í stjórn eða stjórnarandstöðu, munum við miða störf okkar við það, að hagur heildarinnar verði sem beztur, framfarirnar sem mestar og menningarlífið sem fjölskrúðugast. Undir þessum merkjum göngum við til kosninganna og heitum á góða menn og frjálslynda að veita flokknum brautargengi. — Góða nótt.