03.05.1966
Sameinað þing: 45. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2691 í B-deild Alþingistíðinda. (2104)

Almennar stjórnmálaumræður

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Þessar eldhúsdagsumræður eru nú á enda. Hvort þær hafa gert útvarpshlustendum ljósari einhverjar staðreyndir varðandi ástand og þróun þjóðmálanna, skal ég engu spá um. En því miður er ég hræddur um það, að þjóðmálaumr. af þessu tagi séu ekki líklegar til þess að greiða fyrir raunhæfu mati almennings á viðfangsefnum og verkum þings og stjórnar, þegar staðhæfingar stangast á og misjafnlega trúverðuglega er með tölur farið, þannig að flestir velji þann þægilega kost að trúa því þá helzt, sem þeirra flokkstalsmenn segja. Er mikilvægt að reyna að finna annað form þjóðmálaumr., er tryggi efnislegri umr. og verði þá um leið til þess að efla traust þjóðarinnar á þjóðskipulagi sinu og þingræði og stuðla að raunsærri skoðanamyndun, sem er forsenda heilbrigðara stjórnarfars. Hafi menn hlýtt á umr. í heild, verða þó vissar ályktanir af þeim dregnar. Stjórnartalsmenn hafa skýrt hina ýmsu þætti í stefnu stjórnarflokkanna undanfarin 6 ár og stjórnarandstæðingar hafa leitazt við að sýna fram á, að allt hefði orðið á betri veg, ef þeir hefðu mátt ráða. Erfitt er að sannreyna, hvað hefði orðið á hverjum tíma, ef aðrir hefðu ráðið og verður þá ekki við annað stuðzt en hvað gerðist í sambærilegum tilvikum, þegar viðkomandi menn og flokkar höfðu aðstöðu til að móta stefnuna. Fróðlegt er fyrst að gera sér grein fyrir því, hvað menn hafa orðið sammála um í umr. þessum. Viðurkennt hefur verið af öllum, að þjóðarframleiðsla og þjóðartekjur hafa orðið meiri og vaxið meir síðustu 3 árin en nokkru sinni áður í sögu þjóðarinnar. Því er jafnframt ómótmælt, að efnahagur og almenn velmegun hefur aldrei verið svo góð. Stjórnarandstæðingar segja þetta að vísu ekki stjórnarstefnunni að þakka, heldur góðu árferði og aukinni tækni. Enginn vanmetur þýðingu hins góða árferðis, en án trausts efnahagskerfis hefði ekki verið hægt að endurnýja í jafn stórum stíl skipakost og bæta nýtingaraðstöðu aflans. Hefur fjármunamyndun í skipum, vélum og tækjum verið sérstaklega mikil síðustu árin og í fiskiskipum langmest árið 1964. En þá nam innflutningur skipa og flugvéla alls 938 millj. kr. þá má benda á þá staðreynd, sem er glöggt einkenni heilbrigðrar efnahagsþróunar, að síðasta ár varð raunverulegur sparnaður þjóðarbúsins í fjármunamyndun, útflutningsvörubirgðum og viðskiptajöfnuði 6 milljarðar 150 millj. kr. eða rúm 30% af þjóðarframleiðslunni og er það með því hæsta, sem þekkist nokkurs staðar. Stjórnarandstæðingar hafa staðhæft, að illa hafi verið haldið á hinum miklu þjóðartekjum og skipting þeirra verið ójöfn og verðbólgan orðið þóknanleg stjórnarvöldunum, eins og form. Framsfl. komst að orði og vinnustéttir aðeins getað framfleytt sér með meiri vinnuþrælkun. Var þó eftirtektarvert, að forseti A.S.Í. hélt ekki fram þeirri kenningu, enda vissi hann betur. Það er nefnilega sannleikur málsins, að hinir tiltölulega skynsamlegu kjarasamningar tveggja síðustu ára og aðrar hliðarráðstafanir hafa aukið rauntekjur verkamanna, sjómanna og iðnaðarmanna mun meira en hinar óhóflegu kaupkröfur áður gerðu. Benda þannig bráðabirgðaathuganir Efnahagsstofnunarinnar, er styðjast við helztu kjarasamninga ársins, athuganir kjararannsóknarnefndar og fleiri heimildir til þess, að raunverulegar atvinnutekjur þessara stétta hafi á s.l. ári aukizt um nálega 10% frá árinu áður. Ráðstöfunartekjur þessara stétta eftir álagningu beinna skatta og greiðslu fjölskyldubóta hafa þó aukizt enn meir eða samtals um 12% hjá fjölskyldufólki í þessum stéttum. Er þetta mun meira en aukning raunverulegra þjóðartekna á mann, sem er áætluð 6–7%. Aukningin er að vísu ekki hin sama hjá öllum þessum stéttum. Það er svo til viðbótar fróðlegt að gera sér grein fyrir því, að á árunum 1960–1965 hafa raunverulegar þjóðartekjur vaxið um 32% á mann, en raunverulegar ráðstöfunartekjur verka-, sjó- og iðnaðarmanna hafa á sama tímabili aukizt um 33%. Er því ljóst, að þessar stéttir hafa fyllilega haldið sínum hlut í aukningu þjóðarteknanna og er það vel. Er vonandi, að allir aðilar beri gæfu til þess að draga rétta niðurstöðu af kjaraþróun síðustu ára við þá samninga um launamál, sem nú standa fyrir dyrum. Um vinnuþrælkunina er það að segja, að vissulega vinna margir mjög mikið, bæði af brýnni nauðsyn, en þó einnig vegna þess, að margir hafa aldrei svo háar tekjur, að þeir ekki gjarnan vilji bæta þar við, þótt það kosti aukið álag. Athuganir kjararannsóknarnefndar benda þó til þess, að meðalársvinnutími verkamanna í Reykjavík hafi ekki aukizt á árinu 1964, heldur hafi dregið úr lengd vinnutímans í fyrra og einnig á líðandi ári, jafnvel svo að gera megi ráð fyrir, að í ár verði vinnutími verkamanna rúmlega 100 stundum styttri en árin 1963 og 1964. Mun stytting samningsbundins dagvinnutíma eiga nokkurn þátt í þessu.

Hannibal Valdimarsson viðurkenndi í ræðu sinni í gær þau miklu átök, sem gerð hafa verið síðustu tvö árin til úrbóta í lánamálum húsbyggjenda, og Ragnar Arnalds viðurkenndi hina mikilvægu aðstoð við útveginn fyrir Norðurlandi vegna aflabrests þar. Sagði hinn síðarnefndi að vísu, að verkalýðssamtökin nyrðra hefðu keypt þá aðstoð því verði að slá af launakröfum sínum. Ég læt ósagt, hvað slíkar fullyrðingar falla verkalýðsleiðtogum nyrðra vel í geð, en vitanlega voru hvorar tveggja þessar ráðstafanir gerðar til þess að greiða fyrir skynsamlegum kjarasamningum og voru vissulega ekki nein nauðung fyrir samningsaðila, heldur af öllum metið sem skynsamlegar aðgerðir og raunhæfar. Fræðileg og hlutlaus rannsókn á eðli efnahagsvandamálanna er forsenda skynsamlegrar úrlausnar þeirra.

Með tilkomu Efnahagsstofnunarinnar, auknu starfi Hagstofunnar og Seðlabankans, stofnun kjararannsóknarnefndar, vinnutímanefndar og fleiri hagfræðilegum skýrslugerðum, hefur mjög þokazt í rétta átt, ef menn vilja af raunsæi og alvöru skoða málin niður í kjölinn. Sífelldar staðhæfingar um óðaverðbólgu, sem stafi fyrst og fremst af aðgerðum ríkisstj., án þess að nokkurn tíma fáist skilgreint nánar, í hverju þær aðgerðir séu fólgnar, gera óumflýjanlegt að reyna að gera sér hlutlæga grein fyrir eðli og orsökum þessa vanda, sem vissulega er mikill enn í dag og ógnar heillavænlegri efnahagsþróun. Vitanlega er frumorsök þess vanda víxlhækkun kaupgjalds og verðlags. Því var það fyrsta verk vinstri stjórnarinnar að skerða vísitöluuppbót á laun og síðasta verk hennar að biðja verkalýðsfélögin af fúsum vilja að gefa enn eftir 17 vísitölustiga launahækkun. Þetta segi ég vinstri stjórninni ekki til lasts, heldur til áminningar þeim máttarstólpum þeirrar ríkisstj., sem nú halda í dag allt öðru fram um orsakir verðbólgunnar.

Það var næstum átakanlegt að heyra hinn greinda formann Framsfl. enn í gærkvöldi gera tilraun til að skilgreina „hina leiðina“. Enn var helzti kjarninn röðun framkvæmda, en þó án fjárfestingareftirlits, því að það mun ekki þykja vænlegt til vinsælda. Eysteinn Jónsson veit þó mæta vel, að það er fyrst núv. ríkisstj., sem með framkvæmdaáætlunum sínum, fjáröflunarráðstöfunum fyrir stofnsjóði atvinnuveganna og aðgerðum í peningamálum hefur skipulega raðað framkvæmdum eftir nytsemi þeirra innan marka eðlilegs athafnafrelsis. Er nú einmitt verið að vinna að enn ýtarlegri og skipulegri framkvæmdaáætlun fyrir næstu 4 ár. Það var þó enn vandræðalegra, þegar form. Framsfl. taldi „hina leiðina“ í samræmi við stefnu nálægra þjóða. Allar nálægar þjóðir eiga nú við verðbólguvandamál að glíma og allar beita þær sömu hagstjórnartækjum og ríkisstj. hér hefur beitt, takmörkun bankaútlána, hækkun vaxta, hækkun skatta eða bindingu innlánsfjár. Þessar þjóðir hafa hins vegar flestar búið við hógværari kauphækkanir en hér hafa átt sér stað, þar til nú allra síðustu árin, að ekki má á milli sjá. Fullyrðingar Þórarins Þórarinssonar hér í kvöld, að síðustu 3 árin hafi verið mesta dýrtíðaraukning, sem hér hafi þekkzt, og gert sé gys að verðlagsþróun hér á Norðurlöndum, eru alrangar. Verðlagshækkanir hafa verið minni hér síðustu 2 ár en oft áður og s.l. ár hækkaði verðlag meir í Danmörku en á Íslandi.

Af hálfu stjórnarandstæðinga hefur því verið haldið fram, að ríkisstj. vildi stóriðju vegna vantrúar á núverandi atvinnuvegi, sem haldið væri í fjárkreppu. Þessu fer víðs fjarri. Aldrei hafa viðtækari ráðstafanir verið gerðar með eflingu stofnlánasjóða atvinnuveganna og öflun erlendra lána, til þess að tryggja núverandi atvinnuvegum eðlileg vaxtarskilyrði. Og þrátt fyrir sparifjárbindingu hafa útlán bankakerfisins til atvinnuveganna aukizt miklu meir á síðasta ári en nokkurt ár áður. Ríkisstj. er hins vegar ljóst, að henni er skylt að horfa til framtíðarinnar og hún verður að reyna að tryggja uppvaxandi kynslóð örugga lífsafkomu. Á áratugnum 1950–1960 fjölgaði aðeins um rúmlega 300 manns samtals í landbúnaði, fiskveiðum og fiskiðnaði. En gera má ráð fyrir, að vinnandi fólki fjölgi um 16–17

þús. manns næstu áratugi. Það gegnir því furðu, þegar flokkar skírskota sérstaklega til ungu kynslóðarinnar og hagsmuna verkalýðsins og berjast með þau orð í munni gegn uppbyggingu nýrra atvinnugreina í landinu, ekki aðeins gegn álbræðslu, heldur jafnvel gegn kísilgúrvinnslu við Mývatn og telja, að þúsundir manna muni yfirgefa landsbyggðina og streyma til Reykjavíkur til að vinna í verksmiðju, sem ekki þarf nema lítinn hluta vinnuaflsaukningarinnar innan sjálfs Reykjanessvæðisins. Nei, slík afstaða hefði einhvern tíma verið nefnd afturhald og það með réttu.

Íslenzk æska, vísindamenn og tæknimenn, sem eiga að byggja upp Ísland framtíðarinnar, eiga enga samleið með mönnum með slíkan hugsunarhátt. Það þarf svo meira en lítinn kjark hjá form. Framsfl. til þess, eins og allt er í pottinn búið, að tala um flokksvald í sambandi við afstöðu til álmálsins. Einn stjórnarandstæðinga sagði með kvíðarödd í gærkvöldi, að álbræðslan og kísilgúrverksmiðjan væri aðeins byrjunin hjá núv. ríkisstj. og því þyrfti að koma henni sem fyrst frá völdum. Vitanlega er þetta byrjun, en ekki endir á eflingu nýrra atvinnugreina á Íslandi. Með tilkomu þessara tveggja fyrirtækja, einkum álbræðslunnar, skapast skilyrði fyrir margháttaðan nýjan iðnað í landinu og þá möguleika þarf að hagnýta. Það þarf einnig að kanna aðstöðu til nýtingar annarra verðmæta á iðnaðarsviðinu, svo sem sjóefna, biksteins, brennisteins og annarra jarðefna. Samhliða verður svo að skoða allar tiltækar leiðir til eflingar og framleiðniaukningar í núverandi atvinnugreinum til sjávar og sveita.

Stórvirkjun við Búrfell er upphaf frekari virkjana í stórám landsins og hin nýja stóriðja mun síðar auðvelda framkvæmd Dettifossvirkjunar, þótt Laxá væri fyrst virkjuð fyrir Norðurland og jafnvel Austurland. Álbræðslan mun rísa við Straumsvík og innan fárra ára munu andróðursmennirnir óska þess heitast, að afstaða þeirra til þessa merkilega átaks til eflingar íslenzku atvinnulífi gleymist. Mun áreiðanlega ekki sízt Ólafur Jóhannesson harma það að hafa lagt fræðimannsheiður sinn í það að rangtúlka gerðardómsákvæði samningsins. Afturhaldsmennirnir reyna nú að gera iðnmrh. Jóhann Hafstein tortryggilegan fyrir forystu hans í álbræðslumálinu. En hann á sannarlega skilið þakkir alþjóðar fyrir festu og ötula forystu í löngum og erfiðum samningum. Stjórnarandstæðingar hafa reynt að gera lítið úr atvinnujöfnunarsjóði og þætti álbræðslunnar í uppbyggingu hans. Samhliða er því þó haldið fram af framsóknarmönnum, að hér hafi verið gengið inn á till. þeirra, sem þeir þing eftir þing hafi flutt fyrir daufum eyrum stjórnarliðsins. Karp um fortíðina skiptir ekki máli, en það verður þó ekki hjá því komizt að minna á, að framsóknarmenn fengu þá fyrst áhuga á þessu máli, er þeir voru farnir úr stjórn og þá vantaði ekki till. um stórar fúlgur úr ríkissj., þótt fimm þing í röð væri búið að flytja árangurslaust af okkur sjálfstæðismönnum frv. um stofnun jafnvægissjóðs með hóflegum fjárframlögum, en þá var munurinn að vísu sá, að núv. form. Framsfl. gætti ríkiskassans. Það er raunar að vissu leyti ánægjulegt, hversu trú Framsóknar á getu ríkisstj. og þanþol efnahagskerfisins hefur stórkostlega vaxið, eftir að þeir hurfu úr ríkisstj.

Á vettvangi fjármálastjórnar ríkisins er endurskoðun tollakerfisins brýnasta viðfangsefnið. Stórhætta vofir yfir útflutningsframleiðslu okkar, ef tollabandalögin hlaða um sig tollmúrum samhliða því að afnema innbyrðis tolla. Á þessum málum þarf að halda með fullri varúð vegna hagsmuna iðnaðarins og gera þarf jafnframt ráðstafanir til að afla ríkissjóði tekna í stað aðflutningsgjaldanna. Unnið er nú að athugunum og endurskipulagningu á ýmsum þáttum opinbers reksturs og er stofnun hagsýsludeildar í fjmrn. mikilvægur þáttur þeirra nauðsynlegu ráðstafana. Það verður að tryggja skattgreiðendum, að fé þeirra sé hagnýtt af ráðdeild og hagsýni. Þá er eigi síður nauðsynlegt að gera allar tiltækar ráðstafanir til að tryggja það, að skattheimta gangi jafnt yfir alla. Fastareglur hafa verið settar um tollmeðferð varnings ferðamanna og farmanna. Þær reglur eru ekki settar neinum til höfuðs, en eiga að koma í stað áratuga skipulagsleysis í þessum efnum. Hefur verið reynt að taka tillit til allra sanngjarnra sjónarmiða og treysti ég því, að allir aðilar við nánari athugun skilji nauðsyn þessara ráðstafana, þótt óumflýjanlegt hafi orðið að þrengja fyrri venjur á sumum sviðum. Beinir ríkisskattar hér á landi eru hóflegir miðað við flest nálæg lönd og skattgrundvöllur félagamyndunar við atvinnurekstur mjög viðunandi. Skattstigar og persónufrádráttur breytast nú eftir skattvísitölu, sem hefur verið ákveðin 12.5% við skattaálagningu í ár. Má til samanburðar geta þess, að framfærsluvísitalan hækkaði um 8% á s.l. ári. Allar ríkisstj. verða að gera ráðstafanir, sem oft koma í bili illa við fólk. Það er vandalítið, en ekki eftir því þjóðnýtt viðfangsefni að reyna að ala á óánægju vegna slíkra aðgerða, þegar gagnrýnendurnir hafa engan jákvæðan boðskap að flytja um það, hvernig á annan heppilegri hátt hefði átt að mæta vandanum. Stjórnarandstæðingar hafa gagnrýnt ríkisstj. fyrir greiðsluhalla s.l. tvö ár. En þegar jafna á hallann, snúast þeir öndverðir gegn öllum þeim ráðstöfunum. Þannig er með grátklökkum rómi lýst samúð með húsmæðrum vegna þeirrar einstæðu óhæfu að hætta framlögum úr ríkissjóði til þess að greiða niður verð á smjörlíki og fiski, þótt þessum sömu mönnum sé vitanlegt, að ríkissjóður varð með einhverjum ráðum að afla fjár til þess að standa undir skuldbindingum vegna hækkunar fiskverðs um síðustu áramót. Vegna verðtryggingar kaupgjaldsins koma þessar ráðstafanir að vísu fram í hækkuðu kaupgjaldi, en hvað sem því líður, hafa stjórnarandstæðingar ekki gert minnstu tilraun til að sýna fram á, hvernig á heppilegri hátt hefði verið auðið að afla þess fjár. Það er svo að auki fróðlegt íhugunarefni fyrir launþega, ef það væri rétt, sem Einar Olgeirsson sagði hér í kvöld, að 60 millj. kr. lækkun niðurgreiðslna hækki launatekjur um 200 millj. Hvernig getur þá þessi ráðstöfun verið árás á launþega? Stjórnarandstæðingar hafa í þessum umr. mjög skírskotað til kjósenda að sýna í sveitarstjórnarkosningunum hug sinn til ríkisstj. Stjórnarflokkarnir geta vitanlega tekið undir þær áskoranir, að svo miklu leyti sem sérstaða til sveitarmála ekki ræður afstöðu manna. Okkur er það vel ljóst, að við höfum ekki leyst öll þau vandamál, sem að steðja. En við staðhæfum, að við höfum í öllum meginefnum gert það, sem við töldum heppilegast miðað við aðstæður hverju sinni. Það hefur orðið okkur hvatning, að alþjóðlegar fjármálastofnanir, sem við erum aðilar að, hafa talið okkur vera á réttri leið. Við viljum vinna að úrlausn vandamálanna á grundvelli stéttafriðar og samstarfs, en við munum þó ekki kaupa þann frið því verði að hverfa af þeirri braut, er við teljum rétta og leiða þjóðina til aukinnar farsældar og velmegunar. Hinum lýðræðislega dómi verðum við svo á sínum tíma að hlíta.

Ég óska landsmönnum öllum hamingju og velgengni á nýbyrjuðu sumri og vona, að það verði gjöfult við sjó og í sveit. — Góða nótt.