15.12.1965
Sameinað þing: 22. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2718 í B-deild Alþingistíðinda. (2111)
Aluminíumverksmiðja
Björn Jónsson:
Herra forseti. Hér er naumast aðstaða og kannske allra sízt fyrir okkur, sem skipum þmn., til þess að ræða ýtarlega um það örlagaríka stórmál, sem hér er á dagskrá og ég mun því takmarka mál mitt við fá málsatriði og það því fremur, sem tveir hv. síðustu ræðumenn hafa skýrt stefnu okkar Alþb.- manna í þessu máli mjög skilmerkilega. Því hefur verið mjög á loft haldið, að öll málsmeðferð hæstv. ríkisstj. hafi verið með miklum ágætum í sambandi við þetta mál og að í alla staði hafi verið haldið sérstaklega vel á málum af Íslendinga hálfu. Víst er um það, að málið hefur lengi verið á döfinni og margir sérfræðingar hafa verið til kvaddir. Það er líka vitað, að allur undirbúningur er orðinn ærið kostnaðarsamur og að til hans hefur verið varið stórkostlegum fjárupphæðum. Hitt er svo mín skoðun, að í öllum höfuðatriðum hafi verið haldið furðulega illa á spilunum af hálfu hæstv. ríkisstj. Ég vil þó í þessu sambandi undanskilja a.m.k. suma þá þætti samningamálanna, sem verið hafa til meðferðar síðustu mánuðina um þau minni háttar atriði, sem fjallað hefur verið um, eftir að aðalatriðin voru klöppuð og klár og öllum breytingum hafði verið markaður mjög þröngur bás. Sum þessara atriða og jafnvel nokkur, sem verulegu máli skipta, eru enn ekki frá gengin, svo að um þau verður ekki að fullu dæmt. En ég viðurkenni fúslega viðleitni íslenzku samningamannanna að svo miklu leyti, sem ég hef kynnzt þeim, við að færa til betri vegar ýmis samningsatriði undir lok samninganna. En þetta breytir í engu heildarmatinu á því, hvernig hér hefur verið haldið á málum. Sannleikurinn er sá að mínu viti, að íslenzku samningamennirnir hafa lengst af hinum langa samningatíma verið með vinnubrögðum hæstv. ríkisstj. sviptir allri aðstöðu til þess að geta haldið fast á íslenzka málstaðnum. Í því efni vil ég fyrst til nefna þá dæmalausu fásinnu, að ekki sé fastara að kveðið, að tengja stóriðjumálið á þann hátt, sem gert hefur verið, við lausnina á raforkumálum okkar. Viðsemjendunum hefur frá upphafi, þótt ótrúlegt sé, verið fengið það vopn í hendur, að við stæðum uppi svo að segja ráðalausir við að byggja nauðsynleg raforkuver, ef þeir kæmu ekki til sem kaupendur að stórum hluta þeirra orku, sem framleidd yrði.
Ef við hefðum viljað undirbyggja sæmilega samningsaðstöðu, átti það vitanlega að verða okkar fyrsta verk að tryggja fullnægjandi erlent fjármagn til þeirra raforkuframkvæmda, sem okkur er óhjákvæmileg nauðsyn að ráðast í til þess að mæta eigin þörfum. En staðreyndin er sú, að af hálfu ríkisstj. hefur aldrei, hvorki fyrr eða síðar á samningstímanum verið leitað eftir lánum til virkjunarframkvæmda eða lánsloforðum nema í sambandi við stóriðjuframkvæmdirnar. Allur tækniundirbúningur hefur einnig fyrst og fremst farið fram á þeirri forsendu, að samningar tækjust um byggingu alúminíumverksmiðjunnar. Í skýrslu stóriðjunefndar til ríkisstj. frá 14. nóv. 1964, bls. 23–28, er að nokkru rakið hvernig staðið hefur verið að umleitunum um lánsfé til virkjunarframkvæmda. Þar kemur m.a. fram, að fyrsti aðilinn, sem leitað er til um lán, er enginn annar en Swiss Aluminium, sem sjálfur svarar þeirri málaleitun svo, að hann tjáir sér það ekki fært, en býðst hins vegar til þess að útvega 1/3 nauðsynlegs lánsfjár hjá Credit Swiss, ef samningar tækjust um alúminíumverksmiðjuna. Síðan er leitað til Alþjóðabankans og þá á sömu forsendum fyrst og fremst eða eingöngu. Flestir geta sjálfsagt gert sér í hugarlund, hvort samningsaðstaða okkar hefði ekki verið hagstæðari og raunar allt önnur en reyndin hefur verið, ef Swiss Aluminium hefði verið frá upphafi ljóst, að okkur væru allir vegir færir án þeirra milligöngu um lánsfé til okkar virkjana. Ríkisstj. getur ekki fríað sig af þungri sök af því að hafa með þessu framferði sínu skaðað íslenzka hagsmuni jafnvel meira en með tölum verður talið, og sök hennar í þessum efnum er þó enn þyngri vegna þess, að allt bendir til þess, að hún hafi einmitt haldið þannig á málum til þess að eiga hægara með að blekkja Alþ. og þjóðina á því, að við yrðum, hvað sem það kostaði, að ná samningum um alúminíumverksmiðju strax af þeirri ástæðu, að raforkumál okkar væru óleysanleg að öðrum kosti.
Þegar þannig er til stofnað, sem hér hefur verið gert, er naumast von, að vel fari, enda hefur framhaldið í aðalatriðum verið í samræmi við upphafið og atburðarás samninganna ráðizt á hinn óhagstæðasta hátt fyrir Íslendinga. Áður heldur en nokkur heildarmynd verður ljós af samningum, samþykkir ríkisstj. að því er bezt verður séð tvö grundvallaratriði, sem vafalaust hefði verið miklum mun hagstæðara fyrir okkur að hafa óbundin allt til þess, að samningar um flest atriði önnur væru komnir að lokastigi. Raforkuverðið sjálft er ákveðið 10.75 aurar á kwst. og staðsetning verksmiðjunnar er ákveðin í þéttbýlinu hér við Faxaflóa. Hvorutveggja þessu er endanlega slegið föstu, áður en samningsdrög hafa tekið á sig nokkra heildarmynd. Næst eða e.t.v. nokkuð samtímis er skattagrundvöllurinn ákveðinn í aðalatriðum. Öll þessi meginatriði eru að mínu viti útkljáð á mjög óhagstæðan hátt fyrir Íslendinga og að því, er sum þessara atriða snertir, án nokkurrar sýnilegrar viðleitni til þess að halda fast á okkar hagsmunum. T.d. hefur það hvergi komið fram, að nokkur tilraun hafi verið gerð til þess að knýja viðsemjandann til þess að staðsetja verksmiðjuna á Norðurlandi, sem auðvitað hefði í alla staði verið hagstæðara fyrir okkur, eins og atvinnulífi okkar er nú háttað, ekki heldur til þess að knýja fram hækkað orkuverð á móti þeim sparnaði, sem viðsemjandinn fengi í sinn hlut með því að staðsetja verksmiðjuna við Hafnarfjörð í staðinn fyrir Norðurland. Öðruvísi höfðust Norðmenn að í þessum efnum með því að vísa hringnum til hálfgildings eyðistaðar í strjálbýli, sem þarfnaðist nýrra atvinnutækja, með sína verksmiðju. Þarf þó ekki að efast um, að Swiss Aluminium hefði talið sér hagstæðara að byggja sína norsku verksmiðju t.d. í Bergen eða nálægt Bergen í fjölbýlinu þar heldur en þar, sem hún er nú staðsett. En Norðmenn sögðu líka í þessu tilviki: Þarna eða ekki. Samt er það svo, að Norðmenn gera hringnum að greiða 20% hærra orkuverð heldur en hér er fyrirhugað og einnig er hann þar skyldaður til þess að koma upp hreinsitækjum vegna hinna eitruðu lofttegunda, sem alúminíumbræðslu eru samfara, tækjum, sem kosta á annað hundrað millj. kr. a.m.k. Þar í landi geta skattar fyrirtækisins líka orðið allt að 54% af hreinum tekjum, en hér er byggt á reglunni um 33% skatt. Þrátt fyrir þennan gífurlega mun á Husnes-samningunum og þeim, sem hér eru fyrirhugaðir, sættu svo norsku samningarnir gífurlegri gagnrýni og deilum þar í landi og þóttu af mörgum vera hreint stjórnmálalegt hneyksli. En hvað mætti þá hér segja?
Ég mun ekki ræða að sinni frekar um málsmeðferðina, en ég vil árétta það, hversu óhönduglega hefur hér verið á málum haldið, jafnvel þó að við gæfum okkur þá forsendu, að hér væri í sjálfu sér um þjóðþrifamál að ræða. Fyrir slíka frammistöðu ætti sú ríkisstj., sem hér hefur verið að verki, engu fyrr að týna heldur en völdunum.
Eins og hér hefur komið fram, hlýtur sú stefnubreyting, sem hefja á framkvæmd á með samningum um alúminíumverksmiðju, að hafa hin viðtækustu áhrif á vinnumarkaðinn í landinu. Svo stórt spor, sem ætlað er að stiga strax í upphafi á vegum hinnar nýju stefnu stjórnarflokkanna í okkar atvinnumálum, mun þeirra áhrifa gæta í ríkum mæli þegar í upphafi, þótt önnur kunni fyrst síðar að koma í ljós. Þessi áhrif eru að ýmsu leyti þess eðlis, að það verður að telja nauðsynlegt að gera sér þegar í upphafi sem gleggsta grein fyrir þeim og þeim vandamálum, sem þau hljóta að skapa. Fyrstu áhrif þess að semja um byggingu 60 þús. tonna alúminíumverksmiðju samhliða stórvirkjun, verða vafalaust gífurleg spenna á vinnumarkaðinum, stóraukin eftirspurn eftir vinnuafli verkamanna og iðnaðarmanna. Stórkostlegur toppur mundi skapast í eftirspurninni, sem síðar mundi lækka, þegar byggingartímanum lyki og starfræksla verksmiðjunnar yrði eina viðfangsefnið í þessu sambandi. Ef ekki yrði að gert, mundu afleiðingarnar verða þær, að hundruð og aftur hundruð af verkafólki mundu skilja við íslenzk atvinnutæki, fyrst og fremst í sjávarútvegi og fiskiðnaði, þar sem opinberar framkvæmdir mega nú teljast í lágmarki í landinu. Meðan á byggingartímanum stæði a.m.k., yrði gjaldeyrisöflun þessa fólks margfalt minni en í hinum yfirgefnu atvinnugreinum og því stórfellt þjóðhagslegt tjón af breytingunni. Það tjón mundi með ýmsum hætti bitna á kjörum íslenzkra vinnustétta. Hitt yrði þó sýnu alvarlegra, að þær atvinnugreinar, sem sérstaklega yrðu fyrir barðinu á vinnuaflsskortinum, mundu ekki eflast og þróast eins og þær ella mundu gera og ekki verða jafnhæfar á eftir til þess að standa undir góðri og batnandi afkomu síns fólks. Verðbólguhjólið mundi snúast með vaxandi hraða og afleiðing þess yrði hvort tveggja, erfiðari aðstaða verkalýðssamtakanna til þess að bæta launakjör sín og versnandi hagur útflutningsatvinnuveganna. Það er því rík ástæða til þess að spyrja, hvernig hæstv. ríkisstj. hyggst snúast við þessum vanda, því að örugglega munu hinir erlendu viðsemjendur vilja búa svo um hnútana, að hvorki framkvæmdir þeirra né virkjun Búrfells verði fyrir nokkrum töfum eða óþægindum af vinnuaflsskorti. Tvennt virðist mér vera fræðilega mögulegt, annað það, að okkar atvinnuvegir verði yfirbugaðir í samkeppninni í villtu verðbólgukapphlaupi og hitt að opna gáttir fyrir innflutning erlends vinnuafls til þess að halda einhverju jafnvægi á vinnumarkaðinum. Hvorugt virðist mér fýsilegt frá sjónarmiði íslenzkra hagsmuna.
Nú er því haldið fast fram, að fyrir því verði séð, að sjávarútvegurinn verði ekki fyrir neinum búsifjum af þessum sökum. Annaðhvort er sú fullyrðing fram sett gegn betri vitund eða þá að uppi eru á bak við tjöldin fyrirætlanir um stórfelldan innflutning erlendra verkamanna og iðnaðarmanna. Öruggt er, að um þetta hlýtur að hafa verið ýtarlega rætt í samningaviðræðunum við Swiss Aluminium. Og það er ekki ólíklegt, að því fyrirtæki, sem í sjálfu föðurlandi sínu leysir mannaflaþörf sína að verulegu leyti með innflutningi verkamanna úr fátækrahverfum Suður-Ítalíu, þyki sú lausn fullgóð hér á Íslandi. Ég tel, að hér sé um svo mikilvægt mál að ræða fyrir verkalýðshreyfinguna í landinu og raunar þjóðina alla, að það sé eðlilegt að krefjast þess að fá um það skýr svör, hver afstaða ríkisstj. er varðandi þetta efni, hvort hugmyndin er sú, að samhliða erlendum atvinnurekstri í landinu komi einnig til erlent vinnuafl, erlend fyrirtæki og erlent verkafólk samtímis í okkar atvinnulífi. Er hugmyndin hér að stofna til algers tvíbýlis á vinnumarkaðinum, bæði hvað snertir yfirráð atvinnutækja, fjármagn og vinnuafl? Og hverjar skorður verða við slíkri þróun reistar? Við því álít ég tímabært að fá svör nú.
Það er ljóst, að dótturfyrirtæki Swiss Aluminium, sem hugmyndin er, að hér rísi, á að njóta hér á landi allra venjulegra réttinda sem íslenzkt atvinnufyrirtæki væri, íslenzkt hlutafélag væri, auk allra sinna mörgu og stóru sérréttinda, nema þá annað verði sérstaklega tekið fram í þeim aðalsamningi, sem fyrirhugað er, að öðlist lagagildi. Þ. á m. mundi það, ef ekki væri annað fram tekið í þeim samningi, njóta þeirra réttinda að verða virkur þátttakandi í samtökum atvinnurekenda í landinu. Ég vona, að ég bregðist engum trúnaði, þótt ég segi, að ég hef vel rökstuddan grun um það, að það sé ekki ætlun ríkisstj. að leggja hömlur á þátttöku þessa dótturfyrirtækis Swiss Aluminium í atvinnurekendasamtökunum hér á landi. Ef því býður svo við að horfa, getur það orðið fullgildur aðili í Vinnuveitendasambandi Íslands t.d. eða Félagi ísl. iðnrekenda eða jafnvel báðum þessum samtökum. Ef fyrirtækið tæki þennan kost fyrr eða síðar, er það á samri stundu orðið langsamlega stærsti og um leið áhrifamesti mótaðili verkalýðshreyfingarinnar í þessum samtökum. Það yrði fjárhagslega sterkasti bakhjarl atvinnurekendasamtakanna, sem árlega mundi greiða þeim stórfé i iðgjöldum, sennilega varla undir 1 millj. kr. á ári til að byrja með. Jafnframt yrði þetta erlenda fyrirtæki einn stærsti, ef ekki stærsti ákvörðunaraðilinn, ekki aðeins um kjör þess fólks, sem við verksmiðjuna vinnur, heldur einnig við almenna samninga milli samtaka vinnumarkaðarins um kaup og kjör. Áhrif þess á almenna kjarasamninga yrðu ótvíræð og mikil. Þannig hefði hið erlenda fjármagn þegar í fyrstu lotu náð sterkum ítökum til að hafa áhrif á einn mikilvægasta og jafnframt viðkvæmasta þátt okkar innanlandsmála. Skipting okkar þjóðartekna milli fjármagns, íslenzks fjármagns og íslenzks vinnuafls, væri ekki lengur algerlega okkar innra mál, sem við værum frjálsir um að leiða til lykta, óháðir erlendu valdi. Það má svo gera sér í hugarlund, hvernig um erlend áhrif i þessum þætti okkar þjóðmála færi, þegar fram í sækti og hinum erlendu þátttakendum í atvinnurekstrinum í landinu færi fjölgandi í samræmi við þá stefnubreytingu, sem hér er verið að gera.
Spurningin, sem hér hlýtur að vakna og krefst svars, er sú, hvort hér er ætlunin að opna fyrir þá þróun okkar vinnumála, að erlend áhrif vaði uppi í atvinnurekendasamtökunum í landinu og hafi þar jafnvel. úrslitaáhrif, að atvinnurekendasamtökin verði í vaxandi mæli gerð að leppum fyrir erlent fjármagn og erlent vald. Þær hættur, sem hér blasa við, eru svo aðeins eitt dæmi þess, hvernig áhrif hins erlenda fjármagns hljóta að þrýsta sér út í hverja grein þjóðlífs okkar af annarri og verða ákvarðandi um þau málefni, sem við allir höfum fram til þessa verið sammála um, að okkur bæri einum að fjalla um. Það er þannig vissulega engin óraleið frá áhrifum í atvinnurekendasamtökunum og til beinna eða óbeinna áhrifa á íslenzk stjórnmál, svo mjög sem þau eru tengd hagsmunabaráttu stéttanna og hagsmunasamtökum þeirra, og hver óskar eftir því, að svo fari?