02.03.1966
Sameinað þing: 29. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2738 í B-deild Alþingistíðinda. (2117)

Almennur lífeyrissjóður

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Hinn 31. maí 1957 var samþ. þál. á Alþ. um að skora á ríkisstj. að láta athuga, hvort tiltækilegt sé að stofna lífeyrissjóð fyrir sjómenn, verkamenn, bændur og útvegsmenn og aðra þá, sem ekki njóta lífeyristrygginga hjá sérstökum lífeyrissjóðum. Með bréfi, dags. 20. des. 1958, skipaði þáverandi hæstv. félmrh. 5 manna nefnd til að athuga, hvort tiltækilegt sé að stofna lífeyrissjóð fyrir sjómenn, verkamenn, bændur og útvegsmenn og aðra þá, sem ekki njóta lífeyristrygginga hjá sérstökum lífeyrissjóðum. Í n. áttu sæti þessir menn: Guðmundur J. Guðmundsson, Gunnar J. Möller, Hjálmar Vilhjálmsson, Ólafur Jóhannesson og Sverrir Þorbjörnsson. N. þessi skilaði áliti 22. nóv. 1960. Till. n. voru í höfuðatriðum þessar:

Sett verði löggjöf um almennan lífeyrissjóð, sem allir landsmenn eigi kost á að tryggja sig hjá. Í öðru lagi, slíkur almennur lífeyrissjóður veiti tryggingu, sem aðeins verði viðbótartrygging við almannatryggingarnar. Og í þriðja lagi, að unnið verði að breytingu á núverandi sérsjóðum, svo að þeir allir veiti framvegis aðeins viðbótartryggingu við almannatryggingarnar.

Með l. nr. 40 frá 1963, um almannatryggingar, verður að telja, að 3. liður till. n. hafi verið framkvæmdur, og 1. og 2. liður till. voru síðan alllengi í athugun í ráðuneytinu. Eftir að lokið var síðustu endurskoðun almannatryggingal., þótti tímabært að taka málið á ný til athugunar og meðferðar, og með bréfi, dags. 8. júní 1964, fól félmrh. Haraldi Guðmundssyni fyrrv. ráðh. að semja álitsgerð um, hvort ekki sé tímabært að setja löggjöf um almennan lífeyrissjóð, sem allir landsmenn, sem ekki eru nú þegar aðilar að lífeyrissjóðum, geti átt aðgang að.

Haraldur Guðmundsson skilaði síðan álitsgerð sinni til rn. um mánaðamótin ágúst –september 1965. Álitsgerð þessari hefur nú verið útbýtt hér á hv. Alþ. til allra alþm. og verður send dagblöðunum jafnframt. Niðurstaða Haralds Guðmundssonar í þessari álitsgerð er orðrétt þannig:

„Það er fullkomlega tímabært að setja löggjöf um eftirlaunasjóð og eftirlaunatryggingu fyrir allt vinnandi fólk til viðbótar við gildandi lífeyristryggingar. Eftirlaunin séu miðuð við fyrri vinnutekjur og starfstíma, kaupmáttur þeirra tryggður og upphæð þeirra ákveðin með það fyrir augum, að ellibæturnar, þ.e. lífeyrir og eftirlaun samtals, nægi til þess að afstýra tilfinnanlegri kjaraskerðingu að loknu ævistarfi.

Jafnframt lít ég svo á, að samtímis þessari lagasetningu þurfi að gera breytingar á gildandi lífeyristryggingum, svo að þær verði hæfilegur grundvöllur og undirstaða eftirlaunatryggingarinnar og lágmarksbætur við hæfi.“

Svo sem álitsgerð Haralds Guðmundssonar í heild ber með sér, kemst hann að framangreindri niðurstöðu sinni eftir mjög vandlega og nákvæma athugun bæði hér heima og erlendis, sér í lagi á Norðurlöndum, en þar hafa umr. um þessi mál verið ofarlega á dagskrá undanfarin ár. Eftir að Haraldur hefur gert samanburð á aðstöðu okkar til að hefja undirbúning að samningu frv. um lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn, segir hann enn fremur orðrétt í umræddri álitsgerð:

„Framangreindur samanburður virðist mér eindregið benda til þess, að Íslendingar séu þess engu síður megnugir fjárhagslega en margnefndar grannþjóðir að auka eftirlaunatryggingu við gildandi lífeyristryggingar. Efnahagsþróun síðustu ára bendir eindregið í þá átt, og greining þjóðarinnar í aldursflokka virðist mjög hagstæð í þessu tilliti. Miklir möguleikar virðast og vera til áframhaldandi framleiðsluaukningar. Þessir möguleikar mundu enn aukast, ef fyrir hendi væri öflugur sjóður, er veitt gæti undirstöðuatvinnuvegunum aðstoð til að efla framleiðslustarfsemina með bættum vélakosti, aukinni tækni og margháttaðri vinnuhagræðingu, svo að afköst hvers vinnandi manns fari enn vaxandi. Jafnframt virðist mér ljóst, að óhjákvæmilegt sé að tryggja þeim, sem óvinnufærir verða vegna örorku eða aldurs, betri lífskjör og sambærilegri við kjör almennings en gert er með gildandi löggjöf. Sé það látið ógert, verður hlutskipti þeirra stórum verra hér á landi en hjá grannþjóðum okkar og kjör allra þeirra, sem ekki hafa safnað í kornhlöðu til elliáranna, alls ósambærileg við kjör félaga þeirra á starfsaldri og vinnandi fólks yfirleitt. Enn fremur mundi þá enn aukast hið tilfinnanlega ósamræmi, sem nú er á ellibótum þeirra, sem rétt eiga til eftirlauna úr sérstökum lífeyrissjóðum, og hinna, sem aðeins fá lífeyri almannatrygginganna.“

Frá því að umrædd álitsgerð barst félmrh., hefur hún verið til gaumgæfilegrar athugunar hjá ríkisstj. Ríkisstj. telur að athugun sinni lokinni, að málið hafi nú hlotið svo góðan undirbúning og athugun, að unnt sé nú þegar að hefja samningu frv. um lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn. Í rökréttu framhaldi af þessari niðurstöðu ríkisstj. og yfirlýsingu forsrh. hér á hv. Alþ. nú við upphaf þess mun nú fram á það farið, að þingflokkarnir tilnefni fulltrúa í 5 manna n. til að vinna að samningu þessa frv. á grundvelli þeirra athugana, er fram hafa farið. Það er skoðun ríkisstj., að hér sé mjög mikilsverðu máli hrundið af stokkunum, máli, er varði alþjóð um ófyrirsjáanlega framtíð, og því nauðsyn á, að vel sé til frumvarpssmíði þessarar vandað. Hin mikla og nákvæma undirbúningsvinna í málinu, sem þegar hefur verið af hendi leyst, greiðir fyrir, að svo verði.

Þegar endanlega hefur verið lokið við samningu frv. um þetta efni og nauðsynleg athugun á því hefur farið fram, mun ríkisstj. leggja málið fyrir Alþ. til afgreiðslu. Þar sem um svo umfangsmikið mál er að ræða og því vandasama lagasetningu, verður þó að telja ólíklegt, að takast megi að koma málinu endanlega fram fyrr en í upphafi næsta kjörtímabils.