02.03.1966
Sameinað þing: 29. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2744 í B-deild Alþingistíðinda. (2119)

Almennur lífeyrissjóður

Utanrrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Hv. 3. þm. Norðurl. v., sem hér talaði áðan, lýsti sig í öllum aðalatriðum fylgjandi þessu máli og því meðmæltur, að því væri komið í höfn, og ber að fagna því. Hins vegar hafði hann ýmislegt að athuga við það, hvernig unnið hefði verið að málinu, og vítti þann drátt, sem orðið hefði á því að hrinda því í framkvæmd, og sagði, sem sjálfsagt er rétt, að ég ætti þar bróðurpartinn. Það var aðeins eitt, sem hann beindi til núverandi hæstv. félmrh., að hann hefði ekki getið nógu skýrt um það, að það voru framsóknarmenn, sem fluttu till. 1958, og það var náttúrlega mjög stór synd, það skal ég játa.

En ég skal með nokkrum orðum reyna að skýra það, af hverju það dróst, að málið fengi frekari afgreiðslu strax, eftir að n. hafði skilað sínu áliti 1960. Það var af því, að þá var þetta sama mál í deiglunni hjá öllum Norðurlöndunum þremur. Svíþjóð varð fyrst til að ríða á vaðið með þetta mál og setti um það löggjöf nokkru síðar. Norðmenn eru ekki komnir lengra en það í dag, að þeir hafa nýlega lagt fram frv. frá sér í Stórþinginu. Í Danmörku er það ekki komið lengra en það, að það er á umræðugrundvelli og ekkert opinberlega komið fram. Hvers vegna tekur þetta svona langan tíma? Það tekur svona langan tíma vegna þess, að málið er ákaflega vandasamt, og ég taldi 1960 og tel raunar enn, að það hefði verið óforsvaranlegt fyrir okkur að fara af stað með málið, áður en við vissum meira um, hvernig það mundi verða afgreitt hjá þessum nágrönnum okkar. Nú liggur það fyrir, og Haraldi Guðmundssyni var falið það tvöfaldaverkefni: Í fyrsta lagi að kynna sér, hvernig þeir hefðu staðið að þessu máli í Svíþjóð, Noregi og Danmörku, og í öðru lagi að leitast við að athuga, hvort sá fjárhagslegi grundvöllur, sem fyrir hendi væri, væri nægilega tryggur til þess að koma þessu á. En einmitt um það urðu heiftarlegar umr. í Svíþjóð, áður en málið var þar afgreitt með tiltölulega naumum meiri hluta. Það var vegna þess, að stjórnarandstaðan í því landi taldi, að það væri ekki, meira að segja ekki hjá þeim ríku Svíum, möguleiki fyrir hendi til að koma þessari viðbótartryggingu á. Nú hefur þetta verið gert þar og skýrsla um það mál mjög greinileg í skýrslu Haralds Guðmundssonar. Þar er líka greint frá því, hvernig málin standa í Noregi og hvernig þeir hafa að því staðið. Þar er enn fremur skýrsla frá Danmörku. Hann fór til þessara landa allra og kynnti sér málið eins náið og hægt var að gera, og hann hefur fengið þær upplýsingar, sem í skýrslunni eru, beint frá þeim mönnum, sem hafa staðið að því að setja þessar tryggingar á í þessum löndum og hafa framkvæmd þeirra með höndum í Svíþjóð. Þessir aðilar hafa allir veitt honum góðfúslega þá fyrirgreiðslu, sem hann hefur óskað eftir, og tel ég það mjög nauðsynlegan undirbúning undir íslenzka lagasetningu.

Ég tel þess vegna, að það hafi verið sízt vanrækt það, sem hér átti að gera, heldur hafi málið verið einmitt tekið í þessari röð af því, hversu vandasamt það er.

Þetta má segja kannske að skeri ekki úr, og ég er þeirrar skoðunar, að það skeri ekki úr, hvort málið kemur til framkvæmda einu ári fyrr eða seinna eða jafnvel tveim eða þremur, heldur miklu frekar hitt, að það sé traustur grundvöllur undir það lagður. Og það tel ég að hafi verið gert. Það var meiningin í upphafi, að þær athuganir, sem Haraldur hefur gert, væru gerðar, áður en n. yrði sett á rökstóla, því að reynslan er sú í öllu nefndarstarfi, að slíka upplýsingasöfnun eins og hér er um að ræða vinnur venjulegast einn maður bezt, en ekki heil n. Þar er ekki tekin bein afstaða til málsins, það er verk þingflokkanna, en gagnasöfnunin er nauðsynleg eigi að síður, og hún hvílir oftast bezt á eins manns herðum. Ég held þess vegna að að þessu máli hafi verið staðið eins og þurfti að gera með því einmitt að fara þá leið, sem hér hefur verið farin.

Um hlut Framsfl. í þessu máli skal ég ekki fjölyrða. Hann hefur sjálfsagt átt þátt í því að flytja og flutt þessar till. 1958, ég skal ekkert vefengja það, og sannast sagna hefur afstaða Framsfl. til tryggingalaga og breytinga á tryggingalögum hér verið slík, að hann má ekki vel við því, flokkurinn sá, að það verði dregið af honum það, sem hann á með réttu.