08.12.1965
Sameinað þing: 17. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2761 í B-deild Alþingistíðinda. (2134)

Framkvæmd vegáætlunar 1965

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Á síðasta þingi var samþ. vegáætlun fyrir árin 1965–1968. Þar var ákveðin fjárveiting til hverrar einstakrar framkvæmdar við vega- og brúagerðir á því tímabili. Þannig hefur Alþ. ætíð á liðnum árum ákveðið fjárveitingar til einstakra framkvæmda á þessu sviði og svo á þetta að vera samkv. gildandi vegal. En skömmu eftir að Alþ. hafði samþ. vegáætlunina s.l. vor, tók ríkisstj. sér fyrir hendur að umturna því verki Alþ. að verulegu leyti. Hún lækkaði margar fjárveitingar til vega og nokkrum þeirra kippti hún alveg burtu á því ári. Með þessu hrifsaði hún í sínar hendur það vald til skiptingar á vegagerðarfé, sem á að vera í höndum Alþ., og með því að nema algerlega burt fjárveitingar til einstakra vega, misnotaði hún þá heimild til frestunar á framkvæmdum, sem hún hafði í fjárl. fyrir árið 1965. En stjórnin hafði gefið út yfirlýsingu um, að hún mundi nota heimildina þannig að lækka fjárveitingar til verklegra framkvæmda um 20%. Um fjárlagaheimildina er það m.a. að segja, að ég tel ákaflega hæpið, að samkv. henni hafi verið heimilt að fresta greiðslum, sem ákveðnar voru í sérstökum l. eins og vegal., en vegáætlunin er byggð á þeim. Áður var þetta þannig, að skipting á fé til vega- og brúagerða var eingöngu í fjárl. ár hvert, en ekki í sérstökum I. Ríkisstj. er ámælisverð fyrir að fella alveg niður fjárveitingar til einstakra vega, sem Alþ. hafði samþ. Þetta ætti að kenna Alþ. að veita ríkisstj. ekki oftar slíka heimild, sem henni var veitt í fjárl. fyrir árið 1965.