08.12.1965
Sameinað þing: 17. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2766 í B-deild Alþingistíðinda. (2137)
Framkvæmd vegáætlunar 1965
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Hæstv. ráðh. svaraði mér ekki neinu út af því, sem ég minntist á 47 millj., sem oft er búið að tala um, en út af því vil ég — því máli, sem nú héfur orðið tilefni til nokkurra umr. — segja þessi orð.
47 millj. voru teknar inn á fjárlög, þegar samkomulag er gert og orð látin falla um, að það verði aldrei lægra á fjárl., það verði heldur meira. Ef bara þessi upphæð stóð á fjárl. áfram, gat enginn sagt neitt, þá var staðið við það, sem að lágmarki til hafði verið ákveðið, en nú voru þessar 47 millj. teknar út og gripið til nýrrar skattlagningar og sagt: Með því er verið að standa við gefin loforð. En þetta stenzt ekki. Við skulum stækka myndina og segja bara, að hæstv. ráðh. hafi verið stórtækari heldur en með 47 millj., hann hafi kippt í burtu öllum þeim tekjustofnum til framkvæmda í vegamálum, sem fyrir hendi voru, þegar loforðið var gefið og sagt: Þetta skal bætt að fullu, við bara tökum til nýrra tekjustofna, það koma ríflega þær upphæðir, sem við þá reiknuðum með til vegamála. Var þetta að standa við orð sín? Nei, það hefðu áreiðanlega komið mikil svikabrigzl, ef þetta hefði verið gert, því að það var ekki út frá því gengið, að það yrðu felldir niður verandi tekjustofnar og gripið til nýrra, til þess að geta staðið við þær framkvæmdir, sem fyrirhugaðar voru í vegamálum. Þó að þess vegna 47 millj. sé aflað með nýjum tekjustofni og 30 millj. í viðbót, er samt gefið tilefni til nýrra brigzla um svik, og það er það, sem hér hefur gerzt. Þess vegna hafa verið viðhöfð óvarleg og ógætileg vinnubrögð af hendi ráðh., þó að hann haldi í það hálmstrá, að sama upphæð komi eins og lofað hafi verið.
Hæstv. ráðh. svaraði alveg krókalaust spurningu minni um það, hvernig stæði á því, að til framkvæmda hefði komið vegagerð á Strandavegi, sem Alþ. hefði fellt í sambandi við afgreiðslu síðustu fjárl. og vegáætlunar. Hann sagði: Þetta var gert af því, að margir Vestfjarða þm. eða ýmsir Vestfjarða þm. sóttu fast á það, að í þessa framkvæmd yrði farið, af því að þeir höfðu þá kynnt sér, að það hefðu verið ísalög í Strandasýslu og önnur óáran steðjað þar að og neyðarástand, vandræðaástand, ef ekki neyðarástand ríkti þar. Og þegar þeir sannfærðust, komu þeir til sinna yfirboðara, ríkisstj., og sannfærðu hana líka. En hvernig var þetta ástand, þegar till. voru felldar, og hverjir voru það, sem báðu nú um, að þetta yrði gert? Það voru sömu þm. úr hópi Vestfjarða þm., sem felldu till. á Alþ. um, að Strandavegur fengi fjárveitingu, svo að vegurinn yrði tengdur saman á þessu ári. Og það voru ísalög í Strandasýslu, þegar þeir réttu upp puttana til þess að fella þessa till. Það var sama neyðarástandið þá og það áttu þeir að vita og það vissu þeir. En þeir sannfærðust, þegar þeir komu norður í Strandasýslu nokkrum vikum eða mánuðum seinna. Um hvað voru þeir sannfærðir þá? Ísinn var farinn þá. Það var það, sem sannfærði þá, að það var gengið svo rösklega í skrokk á þeim af þeirra fylgismönnum í Strandasýslu, að þeir þorðu ekki að standa frammi fyrir þeim verknaði sínum að hafa fellt þessar till. og það var þess vegna lýðræðislegur sigur, sem Strandamenn unnu á þm. sínum, þegar þessi nýja ákvörðun var tekin.
Það er alveg rétt hjá hæstv. ráðh., stjórnin sætir ekki ákúrum fyrir að hafa gert þetta. En hvað segir hv. Alþ. um svona framkvæmd? Það er látið vera að framkvæma það, sem Alþ. samþykkir, það liggur skjallega fyrir sannað á þessum fundi, og það er framkvæmt, sem Alþ. hefur fellt að gera. Þetta er ekki rétt meðferð framkvæmdavalds og hlýtur að sæta ámæli. Persónulega er ég samþykkur því, að Strandavegurinn var lagður og hafði lagt það til, að svo yrði gert, en það fékk ekki framgang í þinginu, hvorki stuðning meiri hl. Vestfjarða þm. né ríkisstj. eða meiri hl. Alþ. En þegar þeir urðu varir við ísalögin í Strandasýslu, þegar kom fram á sumar, þá virtu þeir að vettugi framkvæmdavald Alþingis.