27.04.1966
Sameinað þing: 41. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2805 í B-deild Alþingistíðinda. (2154)

Strandferðaskip

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Fsp. þessa ber nú að með dálítið óvenjulegum hætti og ekki með þinglegum hætti, en ég skal samt sem áður, þar sem mér bárust nú rétt fyrir hádegið skilaboð frá hv. fyrirspyrjanda um það, að hann mundi bera fram þessa fsp., reyna að svara henni svo sem kostur er á.

Það er rétt, að ákveðið hefur verið að selja tvö af skipum Skipaútgerðarinnar, þ.e. Skjaldbreið og Esju, ef viðunandi tilboð fást í skipin, og hafa þau með hliðsjón af því verið sett á söluskrá, en það er vitað, að það tekur oft langan tíma að afla viðunandi tilboða og kanna þau. Þess vegna er hér fyrst og fremst um könnun að ræða á þessu atriði. Þessi skip, eins og reyndar flest skip Skipaútgerðarinnar, eru nú orðin gömul og fullnægja á engan hátt þeim kröfum, sem gerðar eru til strandferðaskipa nú á dögum. Um nokkurn tíma hafa verið uppi raddir um að skipuleggja rekstur Skipaútgerðarinnar að nýju, m.a. verið skrifaðar um það langar og ýtarlegar greinar í dagblöðum bæjarins, og endurskipuleggja þar af leiðandi um leið allan rekstur Skipaútgerðarinnar, en verulegur halli hefur verið á rekstrinum á s.l. árum, sem hv. alþm. er kunnugt um frá umr. um fjárlög. Ríkissjóður greiddi t.d. á annað þús. kr. með hverju tonni, sem flutt var með skipum útgerðarinnar á s.l. ári, án þess þó að tekið sé tillit til vaxta og afskrifta.

Fyrir um það bil einu ári var skipuð n. til að gera till. um breytingar á rekstri útgerðarinnar og framtíðarskipan þeirrar þjónustu, sem Skipaútgerðin veitir. Mun álits og till. þessarar n. að vænta mjög bráðlega. Í s.l. mánuði voru 2 menn skipaðir í stjórnarnefnd Skipaútgerðar ríkisins ásamt forstjóra hennar, en þessir menn eru Gunnar Vagnsson fulltrúi í samgmrn. og Höskuldur Jónsson fulltrúi í fjmrn., en þessi tvö rn. hafa mjög náin samskipti við Skipaútgerðina af eðlilegum ástæðum. Stefna ríkisstj. er sú, að framtíðarrekstri Skipaútgerðar ríkisins verði hagað á þann veg, að unnt verði að veita fullnægjandi þjónustu við landsbyggðina með mun minni tilkostnaði en unnt hefur verið hin síðustu ár.

Ég ætla, að með þessum orðum hafi ég svarað fsp. hv. fyrirspyrjanda á þann veg, sem mögulegt er og fullnægjandi yrði að teljast, eins og á stendur.