27.04.1966
Sameinað þing: 41. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2805 í B-deild Alþingistíðinda. (2155)
Strandferðaskip
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Ég vil í tilefni af þessu, sem hér hefur verið upplýst, segja, að mér þykja það tíðindi, sem nú kemur fram, að búið sé að ákveða að selja tvö af strandferðaskipum ríkisins. Fyrirspyrjandi spurði um leið, hvort gerðar hefðu verið ráðstafanir til að kaupa önnur skip í staðinn. Hæstv. ráðh. svaraði því ekki, og er því auðlesið, hvernig ástatt er í dag og það er þá sem sé þannig, að það hefur verið ákveðið að selja tvö af strandferðaskipum ríkisins, Esju og Skjaldbreið, en engin ákvörðun tekin um að kaupa skip í staðinn og líklega ekki aðrar ráðstafanir. Ég verð þá að spyrja, hvort það hafi þá verið gerðar aðrar ráðstafanir til þess að setja skip inn á strandferðarúturnar þannig, að ekki verði dregið neitt úr strandferðunum frá því, sem verið hefur.
Við vitum vel, að Esjan og Skjaldbreið henta ekki vel fyrir strandferðirnar og ekki þau strandferðaskip, sem nú eru, og hefði fyrir nokkru þurft að vera búið að skipta um og fá önnur betri skip, en það hefur enga áheyrn fengið, þó að því hafi verið hreyft hér á Alþ., að því yrði hrundið í framkvæmd.
Ég man ekki til þess, að það hafi neinar heimildir verið samþykktar hér á Alþ. til að selja strandferðaskipin, og ég verð að mótmæla því, að gerðar séu ráðstafanir til að selja strandferðaskip nema í samráði við Alþingi. Ég álít, að það sé með öllu óviðeigandi að selja skip úr strandferðaflotanum án samráðs við Alþ. og án þess, að jafnframt séu gerðar ráðstafanir til að fá ný skip , svo að ekki verði neitt lát á strandferðunum.
Ég hygg, að hæstv. ráðh. hljóti að vera það kunnugt, a.m.k. er okkur ýmsum alþm. mjög vel kunnugt, að strandferðir eru nú af svo skornum skammti, einkanlega að því er varðar vöruflutninga yfir sumarið, að það veldur stórerfiðleikum fyrir atvinnurekstur úti á landi, hversu erfitt er að fá vörur fluttar yfir annatímann með skipum Skipaútgerðarinnar. Og þá má nærri geta, hvernig verður, ef dregið er úr strandferðunum frá því, sem nú er. Það verður algert öngþveiti víða í atvinnurekstrinum. Á Austurlandi t.d., þar sem nú er orðinn stórfelldur atvinnurekstur, eins og allir þekkja, veldur það nú þegar stórvandræðum, hversu erfitt er að fá fluttar vörur, hvað þá, ef dregið yrði úr strandferðunum.
Ég vil því leyfa mér að spyrja, og vona, að hæstv. ráðh. svari ljóst, því það er spurning, sem við eigum heimtingu á að fá svarað skýrt: Kemur til greina, að dregið verði úr strandferðunum frá því, sem þær hafa verið — kemur það til greina?
Ég hef heyrt orðróm um, að það gæti komið til greina að leggja annaðhvort Skjaldbreið eða Herðubreið í vor, og ég spyr: Er nokkuð til í þeim orðrómi, að það gæti komið til greina að gera það, jafnvel þó að Skjaldbreið yrði ekki seld? Ég spyr: Getur slíkt komið til greina? Kemur yfirleitt til greina, að það verði dregið úr strandferðunum frá því sem verið hefur? Ef það er ætlunin, eru það einhver alvarlegustu tíðindi fyrir landsbyggðina, sem orðið geta.
Auðvitað er halli á strandferðunum, en sá halli er tiltölulega minni núna en hann var oft áður. Það er tiltölulega minna, sem lagt er í strandferðaþjónustu, en oft hefur verið áður, miðað við peningagildi og ríkisrekstur, og það er hinn mesti misskilningur, ef ríkisstj. heldur, að þáð sé orðið óhætt að minnka strandferðirnar eða kannske leggja þær smátt og smátt nálega niður. Það er stórkostleg þörf fyrir strandferðirnar, engu minni en verið hefur.
Ég vil svo, fyrst ég er kominn hér enn einu sinni, mótmæla því sem fyrr, að það skuli hafa verið sett upp n. til að endurskoða strandferðamál, án þess að þar væri nokkur maður, sem er kunnugur á Austurlandi. Ég vil nota tækifærið til að mótmæla þessu enn einu sinni. En aðalatriðið er nú þetta, að það komi skýrt fram frá hæstv. ráðh., hvort það kemur til greina, að það verði dregið úr strandferðunum frá því, sem verið hefur.