27.04.1966
Sameinað þing: 41. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2807 í B-deild Alþingistíðinda. (2156)

Strandferðaskip

Vilhjálmur Hjálmarsson:

Herra forseti. Ég hefði nú frekar kosið, að hæstv. ráðh. hefði verið búinn að svara fyrirspurnum hv. 1. þm. Austf., áður en ég tók til máls, en ég vil eigi að síður leyfa mér að þakka hæstv. ráðh. fyrir þau svör, sem hann hefur nú þegar gefið. Ég tel, að málið hafi, við þau svör, sem hann hefur þegar gefið, skýrzt allverulega og það komið fram, að því miður er sá orðrómur sannur, að ákveðið hafi verið að selja tvö af skipum Skipaútgerðarinnar, án þess að gera samtímis ráðstafanir til þess að fylla skarðið. Það er rétt, sem ráðh. segir, að það tekur oft langan tíma að selja skip, en ég ætla, að það taki þó enn lengri tíma að öllum jafnaði að undirbúa byggingu eða þá kaup á öðrum nýjum.

Ég skal ekki tefja hv. þing frekar á þessu máli, en ég tek undir það, sem hv. 1. þm. Austf. sagði áðan, að fólkið úti á ströndinni og við, sem erum þm. fyrir það hér á hv. Alþ., hljótum að mótmæla því eindregið, ef það kemur til greina að skerða strandferðaþjónustuna í nokkru frá því, sem hún hefur verið. Krafa okkar er vitanlega sú, að starfsemi Skipaútgerðarinnar verði endurskipulögð með hliðsjón af þeim geysilega öru breytingum, sem orðið hafa í samgöngumálum Íslendinga síðustu áratugi.