16.02.1966
Sameinað þing: 27. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2813 í B-deild Alþingistíðinda. (2176)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 15. febr. 1966.

Matthías Bjarnason, 11. landsk. þm., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna veikinda, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ., að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Sjálfstfl., Ragnar Jónsson skrifstofustjóri, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Benedikt Gröndal, forseti Nd.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Ragnar Jónsson hefur áður tekið sæti á þinginu í forföllum aðalmanna og kjörbréf hans verið rannsakað. Hann er mættur til þingstarfa og býð ég hann velkominn.