25.04.1966
Sameinað þing: 40. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2817 í B-deild Alþingistíðinda. (2187)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 25. apríl 1966.

Sigurður Ingimundarson, 1. landsk. þm., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. I. um kosningar til Alþ., að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Alþfl., Unnar Stefánsson viðskiptafræðingur, taki sæti mitt á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Sigurður Bjarnason,

forseti Nd.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Unnar Stefánsson viðskiptafræðingur hefur áður tekið sæti á þingi á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans verið rannsakað. Þarf því ekki að rannsaka það að þessu sinni, og býð ég hann velkominn til þingstarfa. Þá hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 25. apríl 1966.

Björn Jónsson, 4. þm. Norðurl. e., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna anna heima fyrir, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ., að óska þess, að vegna forfalla 1. og 2. varamanns taki 3. varamaður Alþb. í Norðurl. e., Hjalti Haraldsson bóndi í Garðshorni í Svarfaðardal, sæti mitt á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Ó. Ólafsson,

forseti Ed.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Fyrir liggja svo hljóðandi tilkynningar frá 1. og 2. varamanni:

„Ég undirritaður get ekki um sinn mætt á Alþ. í forföllum Björns Jónssonar, 4. þm. Norðurl. e., þar sem ég er rúmliggjandi í sjúkrahúsi.

Reykjavík, 22. apríl 1966

Arnór Sigurjónsson.“ Og svo hljóðandi símskeyti:

„Ég undirritaður get ekki mætt á þingi í forföllum Björns Jónssonar vegna skyldustarfa heima.

Páll Kristjánsson.“ Það þarf að fara fram rannsókn á kjörbréfi Hjalta Haraldssonar, þar sem hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþ. á þessu kjörtímabili, og vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. —