04.11.1965
Efri deild: 11. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 416 í B-deild Alþingistíðinda. (220)
51. mál, aukatekjur ríkissjóðs
Ólafur Jóhannesson:
Herra forseti. Það var aðeins eitt atriði í ræðu hæstv. fjmrh., sem ég vildi ekki láta standa, án þess að gera aths. við. Hann sagði, ef ég skildi hann rétt, að ég hefði haldið því fram, að hæstv. ríkisstj. vildi viðhalda mikilli dýrtíð. Ég þarf að tala oft miður vingjarnlega um ríkisstj., og ég vil þess vegna ekki láta þessi orð standa, því að ég hef aldrei haldið því fram, að ríkisstj. vildi halda uppi dýrtíð. Hitt er staðreynd, að ríkisstj. hafði það að sínu höfuðmarkmiði að halda dýrtíð í skefjum og vinna á móti verðbólgu. Það er hins vegar aftur staðreynd, að það hefur ríkisstj. ekki tekizt, af því að verðbólgan og dýrtíðin hefur aldrei verið meiri en einmitt nú.
Það er einnig önnur staðreynd, sem ég aðeins vildi minna á í þessu sambandi vegna þess tóns, sem var í ræðu hæstv. fjmrh., að á þeim árum, sem núv. hæstv. ríkisstj. hefur setið hér að völdum, hefur verið meira góðæri í þessu landi en nokkru sinni fyrr, og lengi vel var okkur sagt það hér á Alþingi, að allt væri í lagi með fjármálastjórn ríkisins. Nú fyrst kemur það fram, að það sé ekki í lagi og það sé greiðsluhalli og það þurfi að leggja á nýja og nýja skatta til þess að koma í veg fyrir greiðsluhalla.
Ég held, að það fari ekki á milli mála, að það hljóti að vera eitthvað meira en lítið bogið við þá fjármálastjórn, sem þannig hefur farið fyrir í mesta góðæri, sem hér hefur heyrzt getið um. Og það er af þeim ástæðum, sem við teljum, að það sé ekki hægt að halda áfram á þessari braut, sem gengin hefur verið, heldur verði að taka upp nýja stefnu í þessum efnum, og í því var raunar hæstv. fjmrh. mér samþykkur, þó að hann léti ýmislegt fylgja með til bragðbætis í málflutningnum.