17.12.1965
Neðri deild: 37. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2829 í B-deild Alþingistíðinda. (2232)
Þingsetning
forseti (SB):
Þar sem þetta verður væntanlega síðasti fundur hv. þd., áður en þinghlé verður gert, leyfi ég mér að óska öllum hv. þdm. og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og nýárs. Jafnframt þakka ég hv. þdm. ánægjulega samvinnu við mig sem forseta á þessu ári. Að lokum óska ég utanbæjarþingmönnum góðrar heimferðar og heimkomu og læt í ljós þá von, að vér megum allir heilir hittast á nýju ári.