17.12.1965
Sameinað þing: 24. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2830 í B-deild Alþingistíðinda. (2238)
Þingsetning
Forsrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svo hljóðandi bréf:
„Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 86. löggjafarþings, frá 18. des. 1965 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til funda á ný ekki síðar en 7. febrúar 1966.
Gjört í Reykjavík, 15. des. 1965.
Ásgeir Ásgeirsson.
Bjarni Benediktsson.
Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“
Samkv. þessu umboði og með tilvísun til samþykktar Alþingis lýsi ég hér með yfir því, að fundum þessa Alþingis er frestað frá hinum 18. des., enda verði þing kvatt til fundar á ný eigi síðar en hinn 7. febr. 1966.
Leyfi ég mér að árna hv. alþm. og starfsmönnum þingsins og landslýð öllum gleðilegra jóla og farsæls nýárs.