12.04.1966
Neðri deild: 68. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í C-deild Alþingistíðinda. (2280)
98. mál, áfengislög
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég verð að segja, að það ábyrgðarleysi, sem mér finnst koma fram í þeirri till., sem hér liggur fyrir, hryggir mig. Ég hélt, að flestir hv. þm. hefðu gert sér ljóst, að drykkjuskapur er mikið þjóðfélagslegt böl hjá okkur Íslendingum og hefur verið og hvílíka baráttu þjóðfélagið þarf að heyja gegn þessu böli. Það kann vel að vera, að það séu, og er svo, að það eru margir menn í okkar þjóðfélagi, sem geta notið áfengra drykkja, án þess að af því verði mein. En þeim hinum sömu ber að taka tillit til þess, að fyrir mjög mikinn þorra af þegnum okkar lands er áfengið beinlínis stórhættulegt, og hver sá, sem þekkir, hvað bjórinn er heppilegur til þess að leiða einmitt til drykkjuskapar, þekkir það af reynslu, — fyrir alla slíka hlýtur það að vera höfuðatriði að hindra, að sterki bjórinn sé innleiddur í okkar landi. Það þýðir ekkert að prédika í því sambandi yfir mönnum, að mönnum geti þótt bjórinn góður, það sé skemmtilegt að geta verið saman og drukkið hann. Það verður að taka tillit til hins, að þetta mundi stórbreyta öllu því ástandi, sem er nægilega erfitt nú fyrir.
Það er svo, a.m.k. víðast hvar í okkar þjóðfélagi, að það er tiltölulega lítið um það, að t.d. verkamenn drekki við sína vinnu eða séu undir áhrifum áfengis. Það er engum efa bundið, að strax og bjór væri almennt fáanlegur, leiðir það af sjálfu sér, að hann verður drukkinn m.a. af verkamönnum við vinnu. Reynslan sýnir okkur það hjá þjóðum, sem voru þó vanari bjór en Íslendingar eru, og það þarf ekki að leita lengra en til frændþjóða okkar, eins og Dana, til þess að sjá, hvaða vandræði hafa hlotizt af slíku þar. Og með þeirri áráttu, sem er hjá öllum þorra Íslendinga, þegar þeir hafa einu sinni byrjað á að smakka eitthvað, sem áfengt er, að halda áfram, er alveg gefið mál, að það að byrja á því að leyfa að brugga bjórinn hér til sölu þýðir að auka drykkjuskapinn í landinu.
Við skulum ekki fara í neinar grafgötur um, að þó að til að byrja með ætti að selja bjórinn einvörðungu frá útsölustöðvum Áfengisverzlunar ríkisins, yrði það náttúrlega ekki lengi. Ef það á í nafni frelsisins að fara að innleiða bjórbruggun og bjórdrykkju í stórum stíl í landinu, verður auðvitað ekki látið við það sitja, að það verði aðeins hægt að kaupa það í heilum kössum hjá áfengisverzluninni, heldur verður farið að selja það eftir nokkur ár, eftir að svona lög væru komin í gegn, í hverri einustu búð. Við skulum alveg gera okkur ljóst, hvaða gáttir við erum að opna, svo framarlega sem farið er út í að breyta þarna um.
Ég held, að það böl, sem fyrir er í þessum efnum hér á Íslandi, sé nógu slæmt, þó að ekki yrðu gerðar beinlínis ráðstafanir til þess að stórauka það, svo að ég tali alls ekki í því sambandi um þá auknu hættu, sem í sambandi við þetta yrði með slysin, með þeirri bílamergð, sem hér er hjá okkur, og með þeirri ógætilegu meðferð, sem yfirleitt er á bílunum, og með því, hve mikil hætta er á, að einmitt sérstaklega unglingar, sem oft og tíðum fara allógætilega með bíla til þess að njóta hraðans án þess að vera undir áhrifum áfengis, hvernig það yrði, þegar byrjað væri á því að drekka sterkan bjór í sambandi við akstur. Ég held, að það séu allt aðrar ráðstafanir en þessar, að leyfa bjórinn, sem við þurfum að gera hér, og fyrst og fremst er það unga fólkið, sem við verðum að hugsa um í þessu sambandi. Núna er það þannig, að af hálfu þess opinbera er beinlínis verið að reyna að gera ráðstafanir til þess að knýja ungt fólk til að drekka áfengi. Sem stendur er það svo, að t.d. á flestum veitingastöðum hér í Reykjavík, þar sem dansað er, þar sem ungt fólk gjarnan mundi koma og þar sem er lögum samkv. bannað að veita þeim áfengi eða annað slíkt, er ekki hægt núna fyrir ungt fólk að koma á aðalveitingastaðina, vegna þess að það fær varla afgreiðslu, þegar það pantar einhverja gosdrykki eða annað slíkt. Gróðahugsunarhátturinn er búinn að gagnsýra þjóðfélagið þannig, að ef ungt fólk sezt hér inn á veitingastaði og ætlar að sitja þar og dansa og ekki neyta víns, er það látið finna, að það séu slæmir gestir. Það þýðir m.ö.o., að það er verið að reyna að knýja unga fólkið til þess helzt sumt af því að brjóta lög, þar sem það er undir 21 árs, og þá hitt fólkið, sem eldra er orðið og má fá vín samkv. lögum, til þess helzt að drekka vínið, ef það á að koma á slíka staði. Það er verið að reyna að gera þá menn útlæga úr vínveitingastöðunum, sem ekki kaupa vín. Og þetta er ástand, sem þjóðfélagið getur ekki verið þekkt fyrir. Menn eru teknir, ef menn eru drukknir, og menn eru dæmdir og annað slíkt, en það opinbera otar raunverulega að þeim áfenginu.
Þetta ástand getur ekki gengið. Það er eðlilegt ástand fyrir unglinga og ungt fólk að vilja fara út og mega dansa og annað slíkt, og ef þjóðfélagið getur ekki séð um, að þetta unga fólk geti farið út og dansað og skemmt sér, án þess að það þurfi endilega að drekka vín, er þjóðfélaginu illan stjórnað. Það að gera allan veitingahúsarekstur að gróðalind fyrir einstaka menn, nær ekki nokkurri átt, svo framarlega sem þetta á að fylgja því, og ég held, að áður en við förum að ræða um að fara að hleypa bjórnum þarna alls staðar inn til þess að gera mönnum þannig auðveldara að drekka, skuli menn fyrst taka fyrir, hvað okkur beri skylda til að gera gagnvart unga fólkinu.
Það hefur verið svo, t.d. hér í Reykjavík, þar sem upp undir helmingur þjóðarinnar býr, að það var reynt að sjá til þess, að í einu einasta húsi í Reykjavík, — og eru nú orðin mörg og fögur samkomuhús hér, þar sem dansað er, — þar var reynt að sjá til þess, að ungt fólk gæti fengið að vera í einu slíku húsi með sæmilegu móti, þannig að það þyrfti ekki að drekka vín þar, heldur gæti fengið gosdrykki, kaffi eða annað og gæti dansað. Og nú gerist það alveg nýlega, að þessu eina húsi er lokað, og það er ákveðið, að þar skuli verða vínveitingaleyfi, þaðan skuli unga fólkið gert útlægt og ef það eigi að komast þangað, skuli það fyrst og fremst verða að drekka vín, ef það á að láta líta á sig sem mann með mönnum þar. Svona getur eitt þjóðfélag ekki hagað sér. Það væri nær að taka áfengið af þessu veitingahúsi og láta ríkið reka það og engan mann græða neitt á því að skapa þá aðstöðu, að enginn hefði hagsmuni af því, að það væri frekar veitt vín heldur en einhver gosdrykkur, og láta þá slag standa um það, hvort slíkt borgar sig eða borgar sig ekki. Það mundi kannske ekki borga sig frá neinu fjárhagslegu sjónarmiði, en það mundi borga sig frá siðferðilegu sjónarmiði, og ef það opinbera, sem rekur hér skóla og reynir í þeim skólum að innræta unglingum, að m.a. skuli þeir varast áfenga drykki, — ef það opinbera getur ekki séð um, að þetta unga fólk geti farið út og skemmt sér eins og það hefur löngun til með því að dansa og annað slíkt, er orðin slík hrópandi mótsögn á milli þeirrar kennslu, sem fram fer, og þess ástands, sem ríkir í þjóðfélaginu ella, að það er algerlega óviðunandi. Ég vil þess vegna leyfa mér að gera þá brtt. við þetta frv., við 1. gr. þess, að 1. gr. orðist á þennan hátt, með leyfi hæstv. forseta:
„Á eftir 20. gr. komi ný gr., svo hljóðandi: Fjmrh. er heimilt að nota allt að 0.5% af tekjum Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins til þess að tryggja á þann hátt, er hann telur hentugast, að hægt sé að halda uppi góðum skemmtistöðum fyrir unglinga, þar sem eigi væru vínveitingar. Þá er fjmrh. og heimilt að ákveða, að þeir skemmtistaðir, sem hafa vínveitingaleyfi, skuli hafa opið til dansskemmtana fyrir unglinga einu sinni í viku og séu þá eigi vínveitingar, en veitingar seldar á verði, er rn. ákveður.“
Í fyrsta lagi, í staðinn fyrir, að samþ. sé gr., þar sem áfenga bjórnum skuli hleypt inn, skuli fjmrh. heimilað að nota allt að 0.5%, allt að 1/2 % af tekjum Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins til þess að tryggja á þann hátt, er hann telur hentugast, að halda uppi góðum skemmtistöðum fyrir unglinga, þar sem eigi væru vínveitingar. Þetta mundi þýða, að fjmrh. gæti veitt — ég held allt að 2 millj. kr. á ári til þess að koma upp eða sjá um, að haldið væri uppi slíkum skemmtistöðum, og ég býst við, að það væri fyllilega hægt að tryggja slíkt með slíkri fjárupphæð. Víða úti um land eru félagsheimili og aðrir slíkir staðir, þar sem hægt væri að semja um slíkt gegn nokkrum styrk, og hér í Reykjavík er enginn efi á því, að það væri hægt að komast að samkomulagi við ákveðin veitingahús hér, ef fjármálahliðin væri þarna í lagi, þannig að ég efast ekki um, að þetta gæti fyllilega orðið til þess að tryggja æskunni aðgang að skemmtistöðum, og með því að heimila fjmrh. þetta sérstaklega, veit ég, að hvort tveggja mundi vera haft í huga. Annars vegar veit ég og treysti honum alveg sérstaklega hvað það snertir að hafa áhuga fyrir því að beita þessu ákvæði í því skyni að tryggja unglingum aðgang að skemmtistöðum, án þess að þeir þurfi að drekka vín, og hins vegar mundi hann vafalaust sem fjmrh. sjá um það að verja þessum fjármunum sem skynsamlegast frá ríkisins hálfu. Enn fremur væri honum og heimilt eftir þessari gr. — og það mundi þá sérstaklega koma að gagni hér í Reykjavík — að leggja þá kvöð á þau veitingahús, sem nú hafa fengið vínveitingaleyfi frá því opinbera, að þau skyldu hafa opið eitt kvöld í viku, einn dag í viku, einu sinni í viku, og það skyldi vera þá eins og ella hljóðfærasláttur og það skyldu vera veitingar með slíku verði, þó aðrar en vínveitingar, að fyrir unglinga væri það eðlilegt og mögulegt að koma, og hér eru það margir staðir, t.d. í Reykjavik, sem hafa slík vínveitingaleyfi, að ef svona kvöð er lögð á, væri áreiðanlega hægt að hafa opið á 4—5 stöðum í viku, ef skipzt væri á um það, þannig að þeir unglingar, sem í dag eru annaðhvort reknir út á götuna eða neyddir svo að segja til þess að fara inn á vínveitingastaði og jafnvel fara að drekka þar vín, hefðu þá aðgang að skemmtilegum og fögrum veitingastöðum flest kvöld vikunnar. Og sannarlega er þetta ekki nein stór kvöð á slíkum veitingastöðum. Ég efast ekki um, að fjmrh. mundi haga þessu þannig, að hafa það mismunandi kvöld í hverju húsi, þannig að það fólk, sem vill gjarnan fara út og fá sér mat og drekka vín með og annað slíkt, hefði alltaf nóg hús til þess að fara í. Ég held þess vegna, að þetta mundi setja meiri menningarbrag á þessi hús sjálf og gera æskulýðnum mögulegt að koma í þessi hús einmitt á þessum dögum, þegar hann þyrfti ekki að drekka þar vín.
Ég verð að segja það, að þegar menn eru að óskapast út af æskunni, tala um Þjórsárdalshneyksli og annað slíkt, verður þetta í mjög ríkum mæli hræsni, svo fremi sem þjóðfélagið sjálft og þess höfuðstofnun, Alþingi, gerir ekki róttækari ráðstafanir en fram að þessu hafa verið gerðar til þess að búa þannig að þessari æsku, að henni sé ekki beinlínis hrundið út í ósómann. Það er ekki hægt að óskapast yfir spillingunni í einu orðinu og láta síðan vera að gera þær ráðstafanir, sem meira að segja æskulýðurinn sjálfur óskar eftir, til þess að hann geti fengið aðgang að skemmtistöðum, án þess að vera sérstaklega leiddur í freistinguna hvað vínið snertir. Það er hart, að það skuli vera svo, að meira að segja æskumenn, sem verið er að tala um, hvað séu ósköp spilltir, skuli meira að segja ganga hér eftir götunum í kröfugöngu til þess að heimta Lídó, á sama tíma sem þeir, sem geta þarna ráðið, gera ekki ráðstafanir til þess að útvega þeim aðgang að skemmtistöðum. Ég álít, að það hvíli sú ábyrgð á okkur, sem getum þarna haft áhrif á um, hvað gerist, að við eigum að taka í taumana.
Ég vil þess vegna leggja þessa brtt. fram. Hún er skrifleg og of seint fram komin, og ég vil biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir henni. Ég vil um leið taka það alveg sérstaklega fram, að ég treysti hæstv. fjmrh. alveg sérstaklega til þess að hagnýta þá heimild, sem í þessu felst, á réttan hátt, ef hv. þd. samþykkir hana. Og ég vildi gjarnan óska eftir því, fyrst hann er ekki viðstaddur nú, að hæstv. forseti vildi fresta þessari umr. nú, þannig að við getum heyrt skoðun hæstv. fjmrh. á henni.