30.11.1965
Efri deild: 22. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í B-deild Alþingistíðinda. (229)
51. mál, aukatekjur ríkissjóðs
Frsm. 1. minni hl. (Helgi Bergs):
Herra forseti. Ræða hæstv. fjmrh. gefur mér ekki tilefni til mikilla aths., en samt voru einhver atriði, sem mig langaði til að koma á framfæri.
Hæstv. fjmrh. leiddist að þurfa að valda mér vonbrigðum í viðbót, og ég vil nú biðja hann að hafa ekki svo miklar áhyggjur af því, vegna þess að við 1. umr. þessa máls var ég ánægður með eitt atriði í ræðu hans, en hitt voru vonbrigði. Nú hef ég orðið fyrir vonbrigðum, að vísu miklum, í einu atriði, en er tiltölulega sáttur við hann um ýmislegt annað.
Raunar var það í meira en einu atriði, sem hann olli mér vonbrigðum. Þau voru tvö. Annað var það, sem hann átti sjálfur við, að ég hefði ekki skilið hann rétt við 1. umr., að hann teldi breytta fjármálastefnu nauðsynlega, og skal ég aðeins koma að því aftur, en nefna hitt atriðið, sem olli mér líka vonbrigðum, og það var það, að hæstv. fjmrh. skyldi sjá ástæðu til þess núna að boða nýjar álögur, og ég gat ekki betur heyrt en hæstv. fjmrh. teldi líklegt að þurfa að koma með nýjar tekjuöflunartill. fyrir Alþ. innan skamms.
En ég er ekki viss um, að ég hafi misskilið hæstv. fjmrh. við 1. umr. þessa máls eins mikið og hann vill nú vera láta. Hann segir, að það sé ekki nauðsyn á að breyta stefnunni í fjármálum ríkisins, stefnan hafi verið, sé og verði hallalaus ríkisbúskapur. Ef þetta hefur verið og er stefnan, hefur eitthvað farið fram hjá mér, ef þeirri stefnu hefur verið fylgt. En stefna er lítils virði, nema henni sé fylgt. Og hallalaus ríkisbúskapur hefur ekki verið hér á árinu 1964, og hafi ég skilið hæstv. fjmrh. rétt, er þess ekki heldur að vænta, að það verði á árinu 1965.
Það er ekki stefnan, sem er í ólagi, sagði hæstv. fjmrh., heldur þróunin. Þróunin hefur verið ákaflega óhagstæð, sagði hann. En það er ekki góð stefna, ef hún hefur ekki áhrif á þróunina. Það er ekki stefna, sem mér líkar, ef hún hefur engin áhrif á þróunina. Þess vegna held ég, að þetta sé tengdara hvað öðru en hæstv. fjmrh. vill vera láta, og við séum kannske ekki, þegar allt kemur til alls, eins ósammála um, að það þurfi að breyta til frá því, sem verið hefur í ríkisbúskapnum. En það tjáir ekki að neita ríkisstj. um fé, það skapar bara öngþveiti, segir hæstv. fjmrh. Það þarf meira fé að koma til, ef á að jafna hallann. — Þetta eru heldur dapurlegar fullyrðingar. Það er hægt að jafna halla á tvennan hátt. En það er eins og það sé aldrei litið nema á aðra hliðina á því máli. Það þarf meira fé til að jafna hallann, segir hæstv. ráðh. Það er líka hægt að jafna hallann með minni útgjöldum. Við höfum m. a. í nál. okkar um þetta frv. lýst eftir marglofuðum sparnaðartillögum hæstv. ríkisstj. Hæstv. ráðh. segir, að þetta sé ósköp þægileg og að því er mér skilst heldur ómerkileg afstaða af okkur, því að við komum ekki með slíkar till. sjálfir. Fram að þessu hefur það verið venja og talið eðlilegt, að þeir, sem halda um stjórnvölinn, þeir, sem hafa undir sinni umsjá stjórnarapparatið í landinu, ráðuneytin, stofnanirnar allar, þeir hafi forustu um slík atriði. Við höfum beðið eftir því. Það getur vel komið að því, að við teljum ekki fært að bíða lengur, og það er svo sem alls ekki útilokað, ef svo heldur áfram sem horfir, að það þurfi aðrir að taka að sér ýmis hlutverk, sem fram að þessu hafa verið talin skylda stjórnarvaldanna.
En hæstv. fjmrh. mundi að mínum dómi vera maður að meiri, ef hann sæti ekki mjög lengi í sæti fjmrh. án þess að láta verða eitthvað úr því að jafna metin með öðru en því að bara heimta meira fé.