15.03.1966
Neðri deild: 55. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í C-deild Alþingistíðinda. (2298)

81. mál, loðdýrarækt

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Till. hv. meiri hl. landbn. um að samþykkja loðdýrafrv., ekki einu sinni óbreytt, heldur jafnvel lakara en það var frá upphafi af hendi hv. flm., sannar hið forna máltæki, að lengi geti vont versnað. Í hv. landbn. er einn af flm. frv., og er augljóst, að hann hefur ásamt nokkrum félögum sínum farið fremur spillandi hendi en bætandi um frv., þótt furðulegt megi raunar telja, þar sem öll n. hafði fyrir sér umsögn athugulla og sérfróðra manna um slík mál sem þetta og allir nema einn vöruðu fastlega við, að Alþ. samþykkti frv. Þessi eini maður, sem ekki lagðist beinlínis gegn frv., virðist hafa þá skoðun, að þar sem raunverulega sé aðeins farið fram á leyfi fyrir innflutningi á minkum, sem séu þegar fyrir í villtu ástandi í landinu, sé ekki ástæða til að leggjast gegn frv. eins og það er nú. Um þetta má náttúrlega deila, en það virðist ljóst, að þessi maður, sem hér er um að ræða og hv. þm. geta kynnt sér, hver er, í sambandi við þær upplýsingar, sem hv. minni hl. landbn. birtir með sínum till., virðist þó ekki mæla, ef á að skoða umsögn hans sem meðmæli, nema með innflutningi eins loðdýrs, þ.e. minksins. Hann virðist sem sagt alls ekki taka afstöðu til annars loðdýrainnflutnings, og er það e.t.v. von, því að hv. flm. hafa í ræðu og riti hér breitt vandlega yfir, að fyrir þeim vekti annað en að fá minkinn, og raunar reynt að fela þann tilgang líka. Hv. nefndarmeirihl. skýrir frá því, að dr. Finnur Guðmundsson hafi gert það að till. sinni, að aðeins eitt minkabú, tilraunabú, verði stofnað og það verði til öryggis staðsett í Vestmannaeyjum. Hv. nefndarmeirihl. telur þessa till. dr. Finns fráleita, segir, að í Vestmannaeyjum sé loftslag svo rakt, að þar séu loðdýr ólíkleg til þess að skila af sér góðum skinnum, en það sé eitt af meginskilyrðunum, að slíkt geti átt sér stað, og þess vegna þurfi loðdýrabúin fyrst og fremst að vera þar, sem loftslag er ekki rakt, heldur þurrt og svalt.

Mér varð nú á að hugsa sem svo, þegar ég sá þessa röksemd, að þá virðist Suðurland og Suðvesturland vera dæmt úr leik að njóta sælunnar af fyrirhuguðum tilraunabúum. Mætti segja mér, að sumir af hinum áhugasömu loðdýramönnum utan þings í Reykjavík og nágrenni yrðu ekki mjög glaðir yfir þessum úrskurði nefndarmeirihl. Virðist þar með, að öll rök hnigi að því, að Norðlingar geti hlotið happið, eins og sumir þeirra munu óska í þeirri von, að þessi dýr geti bætt úr atvinnuástandinu í fjórðungnum.

Meiri hl. landbn. gerir nokkrar brtt. við frv., og vil ég lítils háttar víkja að þeim.

Lagt er til, að síðasta mgr. 6. gr. falli niður, en þar er ákvæði um, að ekki megi leyfa dýraeldi í þeim sveitarfélögum, þar sem villiminkurinn hefur ekki náð öruggri fótfestu að dómi veiðistjóra. Það mun mörgum utan þings og innan finnast nokkur óhæfa í því af loðdýramönnum að leyfa sér að leggja til að afnema þetta ákvæði, sem getur þó veitt hlutaðeigandi byggðarlögum nokkra vernd, a.m.k. í bili, fyrir ágengni loðdýramanna og þeim villidýrum, sem þeir hyggjast hafa undir höndum. Þetta ákvæði var á síðasta Alþ. sett inn í frv. samkv. till. gætins manns, sem vildi þó reyna að fá verstu agnúa frv. af sniðna. Ég vil því ekki trúa því, að hv. þd. vilji ekki halda þessu ákvæði, eins og meiri hl. hennar samþykkti s.l. vetur. Hvað í stað þessa ákvæðis á að koma samkv. till. meiri hl., kem ég að síðar. Þá vill hv. meiri hl. fella niður 8. gr. frv., en hún var einnig á s.l. vetri samþ. inn í frv. Hv. frsm. meiri hl. vék að þessari brtt. þeirra og gat þess, að ég hefði snúizt mjög gegn þessum skatti, sem um ræðir í 8. gr., en það er, að aukaálag eða aukatollur sé lagður á útflutt skinn, 4.2%, minnir mig, af fob: verði. Hv. frsm. meiri hl. gerði sér von um og lét þess getið, að hann vænti þess, að nokkuð mundi saman draga með okkur í sambandi við frv., vegna þess að þeir hefðu tekið þessa aths. mína til greina.

Þetta er nú ekki alls kostar rétt eftir haft. Ég gerði vissulega aths. við 8. gr. og benti á, að þar væri hugsað að nota það fé, sem inn kæmi, m.a. í sambandi við vísindalega rannsókn á eðli dýranna og þar fram eftir götunum. Ég gerði svo létt grín, ef ég má orða það svo, að þessu ákvæði, en ég hefði óskað þess, að hv. nefndarmeirihl. hefði tekið tillit til einhvers frekar af því, sem ég hef bent á og fann að, heldur en þessa ákvæðis. Ég benti þá á, að ég tryði ekki á gildi þessarar rannsóknar og teldi hana óþarfa. En ég lagðist ekki á móti skattinum í sambandi við það eina, sem ég taldi nokkurs virði í 8. gr., og það væri það, að aflað væri eftir þeirri leið fjár til þess að efla þá vinnu og draga úr þeim opinbera kostnaði, sem þyrfti til að reyna að eyða villiminknum. Og ég verð að segja, að mér finnst það heldur lágkúrulegt af hv. nefndarmeirihl. að reyna að smeygja sér undan þessum skatti með tilliti til þess, að hann mætti verða til þess að stuðla að því, að enn meira yrði gert til útrýmingar þessu villidýri en hægt er með þeim fjárveitingum, sem fyrir liggja frá því opinbera hverju sinni. Því lágkúrulegra er þetta, að frv.-mennirnir hafa haldið því mjög á lofti, hve hér sé um mikilvægan og arðsaman atvinnuveg að ræða, og hafa gefið í skyn, að þeim mönnum, sem ynnu að þessum málum og hæfu ræktun þessara dýra, mundu berast strax í hendurnar gull og grænir skógar. Ef þeir hafa trú á þessu, hv. flm. og nefndarmeirihl., þá endurtek ég það, að mér finnst það lágkúrulegt að reyna að smeygja þessum aðilum undan því að leggja fram svolítið fé til þess að útrýma villiminknum og kannske til þess að hjálpa til að drepa þá uppvaxandi villiminkakynslóð, sem kemur frá þeim minkamönnum í framtíðinni.

Þessar tvær brtt. ásamt brtt. við bráðabirgðaákvæði frv. eru í raun og veru ógeðfelld tilraun til að fella burt þau litlu ákvæði, sem hv. þd. tókst á síðasta þingi að koma til bóta inn í frv.

Ég ætla þá lítils háttar að víkja að því bráðabirgðaákvæði, sem meiri hl. gerir till. um að breyta frá því, sem er f frv. sjálfu. Fyrst er nú það, að ákvæði í frv. um tveggja ára reynslutíma með 5 loðdýrabú er vitanlega lítið annað en sýndarmennska. Allir, sem til þekkja, vita, að það fæst ekki reynsla um eitt eða neitt á tveimur árum, frá því að minkabúin eru stofnuð. Og ég mun þess vegna mjög styðja till. hv. minni hl. landbn. um að færa bráðabirgðaákvæðið um reynslutímann upp, — ég ætla, að sá nefndarhluti sé með 10 ár í staðinn fyrir 2, sem eru nú í frv., og eins mun ég styðja þá brtt. sama nefndarhluta, sem hann ber fram varðandi 6. gr.

Hv. meiri hl. landbn. flytur tvær brtt. við bráðabirgðaákvæði frv. Annað þeirra er nánast broslegt. Það er um, að eitt af þessum 5 tilrauna-loðdýrabúum megi staðsetja í Vestmannaeyjum. Þessi till. kemur nú raunar eins og fjandinn úr sauðarleggnum, eftir að þessi nefndarhluti hefur á grundvelli óhagstæðs loftslags í Vestmannaeyjum hafnað till. dr. Finns Guðmundssonar að stofna þar, eins og hann lagði til, eitt tilraunabú, og var vitanlega hugsun og er rökstudd af dr. Finni þannig, að með því að hafa eitt tilraunabú og það staðsett í Vestmannaeyjum, sé ekki eins mikil hætta af tjóni almennt talað, þótt einhver dýr sleppi, heldur en hafa þau á meginlandinu fleiri eða færri samtímis. Ég veit raunar ekki, hvað fyrir hv. meiri hl. landbn. vakir í þessu efni. Er þetta það, sem kallað er á lélegu máli eiga vera sniðugt bragð, tilraun til að blekkja fólkið um það, að það vanti svo sem ekki, að nefndarmeirihluti hafi viljað taka tillit til till. þessa merka fræðimanns, dr. Finns Guðmundssonar — eða hvað? En ekki er hægt að hugsa sér meiri afskræmingu á till. dr. Finns Guðmundssonar en hafa 4 bú í landi og 1 í Vestmannaeyjum.

Önnur brtt. þessa nefndarhluta er stórum alvarlegri. Hann leggur til, að í staðinn fyrir síðustu mgr. 6. gr. varðandi bann við því, að menn stofni til loðdýrabúa í héruðum, þar sem villiminkur hefur ekki náð öruggri fótfestu að dómi veiðistjóra, komi líka til breyting, ákvæði til bráðabirgða, þannig:

„Leyfi þessi (að sjálfsögðu átt við loðdýraræktarleyfi) má þó aðeins veita í byggðarlögum, þar sem villiminks hefur orðið vart.“

Ég vil spyrja, hvers vegna ákvæðið um takmörkun á leyfi til loðdýraræktar eigi fyrst og fremst að vera í bráðabirgðaákvæði. Telur meiri hl., að ákvæði þetta falli þá niður eftir 2 ár, eins og önnur bráðabirgðaákvæði frv., eða vakir fyrir hv. flm. og meiri hl. n., að það sé þá auðveldara að afnema þetta ákvæði með t.d. reglugerðarákvæði? Mér er enn ríkara í huga hin furðulega mikla efnisbreyting, sem nefndarmeirihlutinn vill að gerð sé á ákvæðinu um skilyrði um stofnun loðdýragarða, og ég vil leyfa mér að biðja hv. þdm. að íhuga, hver er efnismunurinn á að heimila loðdýrarækt í þeim sveitarfélögum, þar sem villiminks hefur orðið vart, — ég endurtek: hefur orðið vart, — eða heimila það sama, þar sem villiminkur hefur náð öruggri fótfestu að dómi veiðistjóra. Sú heimild virðist bundin við, að ekki dugi flækingsminkur, sem kann að verða vart í byggðarlagi eða nágrenni þess, eða jafnvel þótt fleiri minkar væru, til þess að veitt yrði leyfi, öðruvísi en veiðistjóri teldi, að villidýrin væru orðin það mörg í þessu byggðarlagi, að vafasamt eða ómögulegt að hans dómi væri að útrýma honum. Ég hafði satt að segja ekki fyrr athugað það, sem kemur fram í skýrslu, sem fylgir nál. minni hl. landbn., að Múlasýslur eru þær einu að undanskildum Vestmannaeyjum, þar sem hefur ekki enn orðið vart eða ekki verið veiddir villiminkar. Það þrengist því frísvæðið, þannig að mér finnst, að t.d. hv. 3. þm. Austf. sé vorkunnarlaust að sýna þá biðlund um stofnun loðdýrabús, sem ákvæði 6. gr. segir fyrir um, og því sé það óafsakanlegt að reyna að afnema þetta ákvæði 6. gr., ef menn ætla sér að lauma inn í staðinn gagnslausu ákvæði í þessu efni. Og þetta ákvæði, sem flm. vilja að verði samþ. eða meiri hl. landbn., er þannig sem sagt í aðalatriðum og efnislega, að ef villiminks verður vart, er allt opið fyrir loðdýramönnum, hvað sem hver segir, það á sem sagt ekki að þurfa að vera um að ræða nema flækingsmink, sem reikar um heiðalöndin, til þess að það sé hægt að sleppa öllu lausu í hlutaðeigandi byggðarlagi. En ég geri samt ráð fyrir, að hv. meiri hl. landbn. muni geta látið sér detta í hug, að fólkið muni a.m.k. krefjast þess, að meiri sannanir liggi fyrir í sambandi við það að leyfa loðdýrarækt á hlutaðeigandi landssvæði.

Það mun varla verða nóg, að t.d. hv. 3. þm. Austf. segi mönnum, að trúverðugur maður hafi sagt mér, að hann hafi séð mink. Segjum svo, að sögumaður haldi því fram, að hann hefði orðið var við villimink í nágrenni eða á Fljótsdalshéraði, en samt mundi sennilega frekari sannana verða krafizt. Það mætti því vel hugsa sér, að sannana yrði leitað á þá lund, að áhugamaður um loðdýrarækt, t.d. eins og hv. 3. þm. Austf., bjóðist til að safna leitarmönnum og vera formaður leitarflokksins. Síðan væri haldið af stað, leitað um heimalönd og heiðar Fljótsdalshéraðs. (Gripið fram í.) Já, ég veit það, ég efa það ekki, að hv. 3. þm. Austf. sé hlaupamaður til margra hluta nytsamlegur. Og eftir mikla leit fyndist t.d. eitt flækingsdýr, aðeins eitt, en eitt er betra en ekki neitt. Ég geri ráð fyrir, að hv. leitarforingi hefði ekkert rætt um það við lið sitt, hver viðbrögð skyldu viðhöfð, ef dýr fyndust, og því mundi veiðihugurinn ná tökum á þeim, sem kæmust í návigi við dýrið, og dræpu það.

En sagan er nú ekki þar með öll. Þá geri ég ráð fyrir, að flokkurinn að lokinni leit flytti líkið með sér til byggða og krefðist verðlauna fyrir að hafa unnið skepnuna. En ég spyr: Hver verða svör hlutaðeigandi ráðamanna á Héraði, ef hv. 3. þm. Austf. framvísar síðan hræinu og segir: „Hér er sönnun fyrir því, að villiminks hafi orðið vart á Fljótsdalshéraði, og ég krefst heimildar til þess að mega stofna loðdýragarð í krafti bráðabirgðaákvæðisins?“ Ég verð að vænta þess, að hv. frsm. meiri hl. gefi greinagóð svör varðandi fsp. mínar og aths.

Við 1. umr. þessa máls benti ég á, hversu þetta frv. væri ónákvæmt og laust í reipunum og hve hættuleg fjarstæða það væri að ætla sér með því að skapa almenna lagaheimild fyrir innflutningi hvers konar loðdýra. Nóg væri, ef aftur ætti að heimila mink og minkaeldi, þótt ekki fylgdu í kjölfarið hvers konar önnur meindýr af loðdýrakyni. Það hefur verið vikið að því hér í umr. af meðhaldsmönnum, hvort sem það var hv. frsm. eða ekki, að hér væri aðeins um að ræða minkinn. Ég geri ráð fyrir, að hv. þdm. hafi lesið frv. og séð, að þar er alls ekki verið að ræða um minkinn. Hann er bannorð í frv. Það er verið að ræða um loðdýr og 1. gr. frv. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta: „Loðdýr nefnast í lögum þessum öll þau dýr, sem ræktuð eru eða alin vegna verðmætis skinna eingöngu eða aðallega“ o.s.frv. Þar er gert ráð fyrir, að það sé hæstv. landbrh., sem, eins og ég gat um við 1. umr., ætti að fara höndum um feld dýranna og úrskurða, hvort þetta væri loðdýr. Ég sé ekki, að hans hlutverk sé annað en þetta. Ég geri nú ekki ráð fyrir, að þeir komi með holdanaut eða eitthvað slíkt dýr til þess að láta hann skoða, en loðinn er nú feldurinn fyrir því.

Nei, þetta ónáttúrlega orðalag frv. alls virðist stefna að því að opna almenna lagaheimild fyrir innflutningi hvers konar loðdýra. Í grg. með frv. og raunar að nokkru leyti í bráðabirgðaákvæði frv., eins og það er núna, í grg. og öllum málflutningi, eins og ég hef sagt, verður maður að skilja það svo, bæði mál manna og það, sem prentað er, að hér sé um almenna heimild að ræða til innflutnings á hvers konar loðdýrum. Ég held, að það muni aldrei hafa átt sér stað, að hv. Alþ. hafi samþ. lög um dýrainnflutning nema um eina ákveðna dýrategund í senn, að innflutningsheimild sem þessi muni varla einu sinni hafa verið lögð nokkurn tíma fyrir hv. Alþ., hvað þá að slíkt hafi verið samþ. þar. Ég tel, að það væri fróðlegt, ef hv. frsm. meiri hl. gæti eða vildi upplýsa það, hvað í raun og veru vakir fyrir mönnunum, og segði hreinskilnislega til um það, hvort hér er eingöngu um minkinn að ræða eða önnur fleiri loðdýr. Ég tel þetta orðalag frv. vera hreinan skollaleik og það þýði ekki fyrir hv. flm. og nefndarmeirihl. að afneita efni frv., segja, að það sé allt annað en þar er fram tekið.

Ég skal ekki ræða um minkinn nánar, en í sambandi við loðdýr yfirleitt er það vitað, að okkar einu kynni af loðdýrum eru minkurinn, og ættum við að þekkja hann nokkuð. En það er líka vitað, að aðrar loðdýrategundir yrðu sízt hættuminni íslenzku dýralífi en minkurinn.

Það hefur auðvitað ekki farið fram hjá neinum hv. alþm., hversu flm. þessa frv. og þá um leið meiri hl. landbn., sem mælir með frv., hafa fullyrt mikið og ábyrgðarlítið og borið á loft hvers konar gyllingar til framdráttar sínu máli, hafa m.a. heitið þeim stórgróða í sambandi við loðdýrarækt, sem við þau mál fengjust, og fullyrt, að ekki ætti að þurfa að óttast, að dýrin slyppu úr gæzlu. Þeir eru nú svolítið farnir að draga inn fullyrðingar sínar í þessu efni, sbr. það, sem hv. frsm. nefndi, að það vissi í raun og veru enginn, þegar til kastanna kemur, hvað væri fram undan í þessu efni. Þessir hv. minka og loðdýramenn ættu þó að vita, og það mun hv. 3. þm. Austf. vita nú a.m.k., það benda hans óvanalega hógværu ummæli á, að hann a.m.k. muni vita, hver er reynslan m.a. á Norðurlöndum, sem þeir vitna þó mjög til, í sambandi við villiminkinn. Er talið, að þar sé að vaxa upp villtur stofn, sem gerir mikið tjón, stofn, sem vaxinn er upp af þeim minkum, sem hlaupið hafa úr búrum.

En hver er svo reynsla ýmissa annarra þjóða en Norðurlandaþjóða í þessu efni, í sambandi við mink og eldi minka og annarra loðdýra? Um þetta atriði er ritað í blaðinu Observer frá 6. febr. s.l. Fyrst er þar skýrt frá því, að minkurinn og önnur loðdýrategund hafi fyrir allmörgum árum verið flutt inn til Bretlands og alin þar vegna verðmætis skinnanna. Ég vil nú –með leyfi hæstv. forseta — skýra lauslega frá því, sem blaðið hefur að segja um reynslu Breta í þessu efni. Fyrirsögn blaðsins um minkinn hljóðar þannig í hinu brezka blaði: „Minkurinn er að verða plága í Bretlandi.“ Síðan segir: „Sívaxandi böl af völdum villiminksins víða í Bretlandi er mestmegnis að kenna mönnum, sem haldnir voru hugmyndum um skjótan gróða af minkaeldinu.“ Síðan hefur blað þetta m.a. eftir meindýraveiðistjórum brezka landbrn.: „Þegar minkaræktarmennirnir sáu, að framleiðsla minkaskinna var ekki eins auðveld né arðsöm og þeir héldu í fyrstu, misstu þeir áhugann á starfseminni og gæzlu dýranna.“ Það væri hugsanlegt, að einhverjum dytti í hug, hvort slíkar sögur hefðu ekki átt sér stað á minkaöldinni hér fyrrum. Lýsing brezka blaðsins á eðli og hátterni minksins er auðvitað hin sama og reynsla er fengin fyrir hér á landi. Það er sagt, að kvikindin séu talin óvenjulega blóðþyrst, drepi miklu meira sér til ánægju en fóðurþörfin krefur, leggist mjög á fugla og nytjafiska í ám og vötnum, og fullyrt er, að ef dýrið er hungrað, leggist það á unglömb. Hitt loðdýrið, sem blaðið ræðir um, kann ég varla að nefna, og þekki ég það ekki að neinu, en mér skilst þó, að það muni e.t.v. af þessu fræga rottukyni, sem menn ætla nú að bjarga landinu með á næstunni. En hvað sem um það er, skiptir það ekki máli, heldur hitt, að blaðið telur, að það dýr valdi álíka miklu tjóni í villtu ástandi og minkurinn. Það er skýrt frá því, að reynt hafi verið með ærnum kostnaði að útrýma þessum meindýrum, en með mjög takmörkuðum árangri.

Ég geri ekki ráð fyrir, að þessi reynsla Bretanna né annarra þjóða hafi mikil áhrif á minkaeða loðdýramennina hér. En íhugunarverðar mættu þessar upplýsingar ásamt upplýsingum og umsögnum íslenzkra fræðimanna verða fyrir okkur þdm., þegar við tökum ákvörðun um afgreiðslu þessa máls. Ég höfða þar ekki til minkamannanna, því að ég veit það og það sýnir sig enn, m.a. í nál. meiri hl. landbn., að þeir virðast lifa glaðir í sinni trú. Og í lokaorðum þess nefndarhluta stendur klausa, þar sem niðurlagið minnir mig mjög skemmtilega á sjálfsánægju Jóns sterka í Skugga-Sveini, og ég get þess vegna ekki neitað mér um að lesa upp svolitinn kafla, með leyfi hæstv. forseta. Hann hljóðar þannig:

„Vér trúum því einnig, að framtak og dugur okkar sjálfra bregðist ekki fremur í þessu efni en á öðrum atvinnusviðum, sem framfarasaga okkar síðustu áratugina vitnar svo vel um.“

Dugir nú þetta sjálfshól og þetta grobb, sem þarna kemur fram? En með þessu er ljóst, að í raun og fyrir löngu reyndar er augljóst, að minka- eða loðdýraræktarmennirnir lifa í trú, en ekki skoðun, fyrst og fremst í þessu máli. Þeir eru eins og aðrir heittrúarmenn, sem ekki virðast vilja hirða um rólega íhugun og mat á málavöxtum né reynslu annarra. Er nú hægt fyrir hv. Alþ. að afgreiða jákvætt slíkt mál sem þetta á grundvelli þess, að trú þessara manna nægi til að verða öruggur varnargarður til að afstýra hugsanlegu tjóni og óhöppum af völdum fyrirhugaðs innflutnings fleiri eða færri villidýra? Getur trú þessara manna slegið ósýnilegan varnargarð um hvert eldisbúr, sem upp á að setja, til varnar gegn því, að dýr sleppi? Og getur þessi trú verið sem hulinn verndarkraftur, sem varðveitir okkar fátæklega, en verðmikla dýralíf fyrir drápskjöftum og klóm þessara villidýra, sem inn á að flytja og vitað er, að verða þessari villtu náttúru okkar, ef má orða það svo, til óbætanlegs tjóns, eins og verið hefur raunar fram að þessu, en þó eingöngu enn þá aðeins af völdum villiminksins. Málflutning þessara loðdýramanna er ekki hægt að taka gildan að mínum dómi, því að trú þeirra stangast gegn allri reynslu og þekktum lögmálum hinnar villtu náttúru. Ég hefði óskað, eins og áður, að þetta frv. væri fellt. En ég get eftir atvikum vel sætt mig við að fá það hæstv. ríkisstj. til frekari varðveizlu.