01.03.1966
Efri deild: 44. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 245 í C-deild Alþingistíðinda. (2373)

121. mál, Listlaunasjóður Íslands

Flm. (Karl Kristjánsson):

Herra forseti. Alla tíð síðan íslenzka þjóðin fór að sýna lit á því að veita listamönnum sínum fjárhæðir úr sjóði landsins í launaskyni fyrir listsköpun og seinna einnig fyrir listtúlkun, hafa allmiklir gallar verið á þeim gjöfum Njarðar, ekki aðeins af því, að fjárveitingarnar hafa verið af skornum skammti, heldur vegna þess, að hið stjórnmálalega vald hefur gert sig um of að listdómanda og skipt laununum eftir sínu höfði. Tilviljun ræður því vitanlega, hvort þeir menn, sem til þess veljast að fara með hið pólitíska vald, eru til þess hæfir að meta gildi lista, hvort gáfnafar þeirra er þannig og þekking nægileg á þeim sviðum. Af þeim ástæðum einum saman, þótt ekki kæmi fleira til, er löggjafarþing fráleitur aðili til að deila launum milli listamanna. Í öðru lagi er svo tilhneiging flokkspólitískra valdhafa til þess að vilja sveigja listir til þjónustu við sína stefnu og láta iðkendur lista njóta þess og gjalda, hvernig afstaða þeirra í þeim efnum er eða lítur út fyrir að vera. Þar af leiðir, að það er óskapleg og óverjandi ónærgætni gagnvart listum að hafa þá skipan, sem við höfum, að kjósa menn eftir flokkspólitískum línum til þess að skipta milli listamanna því fé, sem Alþ. veitir á ári hverju til listlauna. Þetta er óviturlegt gagnvart listunum og hlýtur að hefna sín á menningu þjóðarinnar, þegar til lengdar lætur. Listin á ekki að þurfa að lúta öðrum lögmálum en sínum eigin. Hún á að vera frjáls. Listamenn eiga ekki að vera málaliðar. Þeir eiga ekki að þurfa í sköpun listar eða túlkun listar að gæta hagsmuna gagnvart ríkisvaldi. Það samrýmist ekki hlutverkum þeirra og köllun.

Shakespeare sagði: „Valdið setur tunguhaft á listina.“ Þetta er sígildur sannleikur. Valdið gerir þetta, þegar það getur. Þorsteinn Erlingsson fékk fyrst skáldastyrk á árinu 1895, og nam sá styrkur 600 kr. Dr. Sigurður Nordal segir frá því í ritgerð um ljóðmæli Þorsteins Erlingssonar, að ýmsum þm. hafi á þeirri tíð þótt óviðurkvæmilegt að launa hið „vantrúaða byltingarskáld“ af landsfé. Enn fremur segir Sigurður Nordal: „Seinna voru það einkum andstæðingar hans í stjórnmálum, sem úr töldu. Um þessa afstöðu til Þorsteins var kveðið í orðastað valdhafanna:

Og þó að við vildum nú leggja honum lið

og láta ekki tóna hans deyja,

syngur hann eitthvað, sem sízt ætti við,

og svo er hann vís til að þegja.“

Þarna er valdinu rétt lýst. Það vildi geta ráðið því, hvað listamaðurinn gerði, ráðið bæði söng hans og þögnum.

Í bók þeirri, sem Matthías Jochumsson ritaði og ber heitið „Sögukaflar af sjálfum mér“, segir hinn mikli skáldjöfur frá því, að hann varð að segja af sér sem prestur á Akureyri til þess að fá 2000 kr. í skáldlaun. Kveðst hann þó heldur hefði viljað hafa bara 800 kr. skáldlaun, eins og hann hafði haft að undanförnu, og vera prestur áfram. En landshöfðingi réð honum fastlega frá því að hafna 2000 kr. og neita að segja af sér, því að óvíst væri þá, að Alþ. veitti honum nokkurn skáldstyrk. Og skáldjöfurinn beygði sig fyrir valdinu.

Ég minnist á þessi löngu liðnu atvik, af því að þarna eru atvik, sem tala skýru máli og eru komin í nægilega fjarlægð til þess að blandast ekki nútímadeilum. Þorsteinn Erlingsson og Matthías Jochumsson eru ekki lengur umdeildir menn. Halldór Laxness væri auðvitað líka hægt að tala um í þessu sambandi og afstöðu valdsins til hans fyrir nokkru sem listamanns, en hann er enn á meðal okkar og ekki alveg kominn út af deilusviðinu, þótt hann hafi sigrað valdið, og þess vegna minni ég bara á hann með því að nefna nafn hans og tel þar í felast þungvæg, óhrekjandi rök fyrir máli mínu um, að við hér á Íslandi höfum ekki gætt þess, að valdið á ekki að setja eða leitast við að setja tunguhaft á listina. Það á ekki að láta hið pólitíska vald, sem ræður ríkjum í landinu hverju sinni, skipta eftir sínu höfði fjárhagsstuðningi þeim, sem samfélagið í heild veitir listamönnum sínum, veitir þeim það auðvitað til þess, að þeir geti betur en ella sinnt köllun sinni, og af því að þjóðin á þeim skuldir að gjalda.

E.t.v. skuldar engin þjóð listum meira en Íslendingar. Eða vill nokkur rengja sannleikskjarna þeirra orða Davíðs frá Fagraskógi, að

því lifði þjóðin,

að þraut ei ljóðin?

Frá öllum hliðum séð eru listlaunamálin stórmál, sem ekki má vanrækja, ekki má láta fara um sem verkast vill eða vera í norna höndum. En það tel ég, að þau séu, þegar flokkspólitík fer með þau. Þjóðin á andlega gæfu sína of mikið undir listum komna til þess, að hún megi misbjóða listunum.

Eftir því sem kunnátta og tækni gera tekjuöflun til lífsframfæris auðveldari, verður af meiru að taka til listlauna, og jafnframt styttingu vinnudagsins til tekjuöflunar fjölgar tómstundum til listsköpunar hjá þeim, sem hafa hæfileika til hennar, og ekki sízt tómstundum almennings til að njóta listanna. Og hvað á fólk frekar að gera með tómstundir en að nota þær t.d. til að iðka íþróttir og til að auðga lif sitt á vegum listanna, hrífast með listum og hefjast í geði. Miklir fjármunir verða fyrst og fremst æskilegir, þegar þeim er varið til þess að efla mannlega farsæld, og stytting vinnudags verður fyrst og fremst til ávinnings, ef tómstundir, sem þannig fást, veita mönnum frjóa lífsnautn.

Á þessu ári eru á fjárl. ætlaðar 3.4 millj. til listlauna. Þetta er of naumt skorin fjárhæð. Hún er ekki einu sinni einn þúsundasti af tekjum ríkissjóðs. Hitt er þó enn verra, að fyrir úthlutun fjárhæðarinnar er hraparlega illa séð. Hægt er að færa talsvert áheyrileg rök að því, að ríkissjóður megi ekki við meiru en á hann er lagt. En hitt er ekki með nokkru móti hægt að réttlæta, svo að sæmilega fari á, að hafa úthlutunina ár eftir ár og áratug eftir áratug í álögum flokkspólitíkurinnar.

Þrjú seinustu árin hefur 7 manna n. skipt fjárfúlgu þeirri, sem Alþ. hefur veitt til listlauna. N. hefur verið kosin hlutfallskosningu af sameinuðu þingi og er flokkslega í sömu styrkleikahlutföllum og þingið. Þar hefur hæstv. ríkisstj. sinn meiri hl. Og ekki hefur það legið í láginni, að stjórnarmeirihl. í n. hagar sér líkt og meiri hl. á Alþ., rétt eins og verið sé þar að vinna að pólitískum ákvörðunum. Svört messa yfir ríkjandi þjóðlífsstefnu fær ekki neina viðurkenningu hjá meiri hl. n. Þar kemur ekki til greina að launa neinu lýsingu af óheilbrigðu borgarlífi samtíðarinnar.

Ég er ekki með þessu beinlínis að deila á mennina í n. persónulega, þótt vitanlega séu þeir nokkurrar ásökunar verðir, en þeir eru í álögum pólitíkurinnar. Ég er að deila á það fyrirkomulag, sem veldur þessum álögum. Það er glapræði að velja listdómara á þennan hátt. Pólitík er nauðsynleg á sinum stað. Flokkaskipting í pólitík er oft og einatt eðlileg vinnubrögð á Alþ., þó að stundum sé þar of langt gengið. En við úthlutun listamannalauna á pólitíkin ekki við. Þar er hún hrein og bein norn. Mennirnir, sem í n. hafa starfað, gera sér líka grein fyrir þessu, meirihlutamennirnir einnig. Þeir finna til álagahamsins, þó að þeir hafi ekki undir kringumstæðunum getað losað sig við hann. Þeir hafa kvartað og beðið um úthlutunarreglur og löggjöf.

Nú verða vitanlega aldrei fundnir lagastafir eða reglur, sem leysa allan vanda við úthlutun listamannalauna. Það þarf alltaf lifandi skilning og þekkingu við hvern listdóm. En reglur og löggjöf geta mikið hjálpað. Umfram allt þurfa þeir, sem úthluta, að vera óháðir annarlegum öflum og valdi þeirra afla.

Reglur þurfa að tryggja, svo sem unnt er, að til að úthluta listlaunum séu kvaddir eingöngu menn, sem hafa áhuga á listum, þekkingu á þeim og næman smekk, og val á mönnum í úthlutunarnefndir þarf að miðast við allar listgreinar. Það þarf hver listgrein að eiga dómbæra fulltrúa, en fjarri fer því, að svo hafi verið, enda ekki hægt, eins og kjöri í n. hefur verið háttað.

Á þskj. 242 hef ég leyft mér að leggja fram frv. til l. um Listlaunasjóð Íslands. Eru í frv. þær reglur, sem mér hafa hugkvæmzt líklegastar til þess að koma listlaunamálunum úr þeirri úlfakreppu, sem þau hafa verið í til vanvirðu og tjóns og að mér virðist betri manni hvers manns til ömunar. Þær hafa verið betri manni hvers manns til ömunar, líka þeim, sem hafa úthlutað.

Árið 1960 flutti ég svipað frv. Því var alls ekki illa tekið. Ég tel, að því hafi verið vel tekið meðal ýmissa listamanna. En það sofnaði í n., enda var þá jafnframt frammi frv. um nokkurs konar akademíu, og það var eins og ekki kominn tími til þess, að löggjafarnir gætu haft sig í það að leysa málið úr þeirri ánauð pólitíkurinnar, sem það hefur verið.

Ég legg til f frv. mínu, að stofnaður verði sjóður, er beri heitið Listlaunasjóður Íslands, og hafi það eitt verkefni að fara með listlaunaféð. Ég legg til, að stofnaður sé sjóður og verkefni sjóðsins sé að veita viðtöku fé, sem Alþ. ákveður í fjárl., að varið skuli úr ríkissjóði til listlauna, og öðru því fé, sem honum kann að berast í sama skyni, svo sem gjafafé. Mér þætti einmitt ekki ólíklegt, þegar slík skipan væri komin á, að þessi sjóður kynni að njóta tillaga og gjafa frá þeim, sem eru eigendur mikilla fjármuna, og þeir eru nú að verða býsna margir í okkar landi, sem betur fer. Mér finnst ekki ólíklegt, að ýmsir, sem listum unna, kynnu að vilja á þennan hátt gefa fyrir sálu sinni. Verkefnin eru einnig að greiða laun til listamanna ár hvert og svo að ávaxta listlaunafé, sem biður úthlutunar, með því að geyma það í banka.

Á fjárl. legg ég til að verði árlega veittar úr ríkissjóði 5 millj. kr. í Listlaunasjóð Íslands. Það er auðvitað sérstakt umræðuefni, hver upphæðin á að vera, enda líklegt, að breyta þurfi fljótlega þeirri tölu, sem þannig yrði ákveðin, hver sem hún væri. 5 millj. kr. til listlauna á ári er ekki há fjárhæð, þegar litið er á heildartekjur ríkissjóðs. Hins vegar er þetta 1.6 millj. kr. meira eða nálega þriðjungi meira en fjárhæð sú, sem nú er á fjárl. til listlauna, og því verulega í framfaraátt. Hins vegar tel ég þetta mjög laust við öfgar og hef yfirleitt viljað forðast öfgar með frv. þessu.

Ég legg til, að Alþ. skipti þessari fjárveitingu milli fjögurra listgreina, þ.e.: til skálda og rithöfunda, myndlistarmanna, tónlistarmanna, leiklistarmanna. Ég hygg, að þessi flokkun listgreina nái yfir það svið, sem starfað er að listum á hjá þjóðinni. Ég vil taka fram, þó að ég telji, að pólitík Alþingis eigi ekki að ráða listlaunum til einstakra manna, þá sé ég ekki betur en Alþ. sé vel trúandi til þess að skipta á milli listgreinanna og mjög eðlilegt, að þingið geri það, auðvitað að mjög vel athuguðu máli og þegar fram í sækir eftir því, sem reynslan sýnir, að þörf er í hverri listgrein.

Ég tel eitt af því, sem er leiðinlegt við úthlutun listlauna að undanförnu, hafa verið, hvað listamenn eru flokkaðir í marga flokka, og tel, að það líkist allt of mikið einkunnagjöf. Það er varla á valdi slíkrar n. að gefa slíkar einkunnir, enda ekki ástæða til þess að skipta mönnum þannig í flokka. Hitt er réttara, að hafa nokkuð bundið eftir föstum reglum, hvernig menn skiptast í flokka. Og ég legg til, að flokkarnir verði þrír og þó í raun og veru mætti segja tveir aðalflokkar.

Fyrsti flokkurinn sé heiðurslaunaflokkur og fái þeir, sem hann skipa, fjárhæð, sem samsvarar hálfum hámarkslaunum í 20. launaflokki starfsmanna ríkisins. Ég tel heppilegra að miða þannig við laun hjá starfsmönnum ríkisins, sem breytast eftir því, sem verðlag og launagreiðslur breytast hjá ríkinu, og 20. launaflokkurinn svarar til þess, að þeir, sem væru nú í heiðurslaunaflokknum eða 1. flokknum, fengju, ef þeir fengju hálf launin, 100 þús. í staðinn fyrir 75 þús., sem þeim eru ætluð nú.

Svo er annar flokkur. Þar skulu vera menn, er fái árlega laun, nema þeir hætti um 5 ára skeið eða lengur að stunda list sína. Laun í þessum flokki skulu vera eins og þriðjungur hámarkslauna í 20. launaflokki starfsmanna ríkisins. En sú fjárhæð, sem svarar til þriðjungsins, er um 66 1/2 þús. kr. En í öðrum flokki eftir úthlutun listamannalauna nú eiga að greiðast 50 þús. Þess vegna er þarna um allverulega hækkun að ræða.

Í þriðja flokki skulu laun vera greidd mönnum í viðurkenningarskyni fyrir einstök unnin verk eða vegna viðfangsefnis, sem þeir hafa með höndum og ástæða þykir til að veita þeim fjárhagslegan stuðning fyrir fram til að fást við, og í þessum flokki er ætlazt til líka, að nýgræðingi séu veitt laun til uppörvunar, og fjárhæðir eru frjálsar að því er þennan flokk snertir. Ég tel, að það væri við hæfi, að þeir, sem með þessi mál fara, veittu mönnum laun til þess að vinna sérstök verk, sem þeir tækju að sér, og máske bindu það þá til fleiri en eins árs. Yfirleitt væri frjáls veiting í þessum flokki og komið þannig á móti þeim, sem skipa sér í þessar raðir, annaðhvort sem byrjendur eða menn, sem eru að leysa einhver sérstök verkefni af hendi, sem tilheyra listsköpun.

Þá legg ég til, að laun úr Listlaunasjóði verði skattfrjáls. Mér sýnist hins vegar, að verið sé að veita mönnum viðurkenningar úr þessum sjóði og taka af þeim aftur eftir því, hvaða tekjur þeir hafa að öðru leyti, — taka til baka það, sem borgað hefur verið.

Þá er það, að þessi sjóður þarf að hafa sína stjórn, og þá legg ég til, að hver deild hafi sína stjórn eða sína menn til að úthluta fjárveitingum. Og þær reglur, sem mér hafa dottið í hug í þessu sambandi, eru á þá leið, að t.d. úthlutunarnefnd skálda- og rithöfundalauna skuli þannig skipuð, að menntamálaráð kýs einn mann og er hann formaður n., heimspekideild háskólans tilnefni tvo menn og Rithöfundasamband Íslands tvo menn. Ég legg til, að það verði þá 5 manna n., sem fari með fjármál þessarar deildar, sem er nú, eins og sakir standa, líklega fjölmennust í listamannahópnum. Og yfirleitt legg ég til, að menntamálaráð leggi til formann í allar fjórar nefndirnar. Mér virðist það sá eðlilegasti aðili, sem völ er á, eins og sakir standa, til þess, og er ráðið þá um leið nokkurs konar fulltrúi ríkisvaldsins. Úthlutunarnefnd myndlistarlauna skal — auk manns frá menntamálaráði — þannig skipuð, að Félag ísl. myndlistarmanna tilnefnir einn mann og Myndlistarfélagið annan. Þetta eru félög, sem myndlistarmenn skipa sér nú í. Úthlutunarnefnd tónlistarmanna þannig, að fulltrúi menntamálaráðs er formaður, en Tónskáldafélag Íslands, Einsöngvarafélag Íslands og Félag ísl. tónlistarmanna skulu öll í félagi tilnefna tvo menn. Vel má vera, að við athugun komi í ljós, að heppilegra sé að hafa mennina fleiri, þegar þessir aðilar þrír standa að, og svo má vera kannske um hinar nefndirnar, en það er allt til athugunar. Úthlutunarnefnd leiklistarlauna sé þannig skipuð, að formaðurinn sé frá menntamálaráði, en Bandalag ísl. leikara tilnefnir einn mann og Félag ísl. leikdómenda einn mann.

Með þessum hætti, að listamannasamtökin eða félög þeirra nefni menn í dóma, er nokkuð fyrir því séð, að þekking sé til staðar á þeirri listgrein, sem á að launa. Gert er ráð fyrir því í frv., að jafnmargir varamenn séu kosnir og á sama hátt, og enn fremur er tekið fram i frv., að ekki megi skipa í þessar n. menn, sem eiga hagsmuna að gæta sjálfir við úthlutun listamannalauna, enda er ekkert sjálfsagt, að þessi samtök listamannanna taki endilega menn úr sínum hópi, heldur velji þá fulltrúa, sem þau treysta bezt til að fara með þessi vandasömu málefni og vera fulltrúar listanna. Vilji einhver þessi aðili ekki taka þátt í að skipa menn í nefndir, svo að það vanti mann í n., er gert ráð fyrir því, að menntmrh. skipi mann f staðinn, og eiga þá samtökin um það að velja að leggja það í hendur mennmtrh., ef þau skorast sjálf undan að tilnefna menn.

Hér er tekið fram um það, á hvern hátt megi færa á milli flokkanna, og reglur um það, því að vitanlega þurfa að vera um það einhverjar reglur. Þær takmarka töluvert vald n. og koma í veg fyrir það, að ofboðið verði þá þeirri rausn, sem Alþ. þarf að sýna hverju sinni með till. sínum til listlaunasjóðs.

Ég sé ekki þörf á því að fara frekar út í skilgreiningu á þessu frv. við þessa umr. En ég hygg, að ef þetta frv. yrði gert að lögum, mundu þeir, sem úthluta listlaunum, að mestu losaðir við þá hvimleiðu einkunnargjafaóánægju, sem nefndirnar hafa steypt yfir sig með hinum mörgu flokkum, sem þær hafa raðað listamönnum í. Mér er vel ljóst, að það er mikill vandi að skipa listlaunamálum, og það verður aldrei gert, svo að öllum líki, eða alveg á gallalausan hátt.

Ég vil fyrir mitt leyti taka til athugunar allar bendingar um lagfæringar á þessu frv. og óska eftir því, að allir þeir, sem telja sig hafa skynsamlegt til málsins að leggja, láti það koma fram við n. þá, sem fær málið til meðferðar. Stefna sú, sem ég vil láta frv. þjóna og ætlast til að það þjóni, eins og það er úr garði gert frá mér, er: Að leysa listlaunareglurnar úr þeim viðjum annarlegra og óskyldra sjónarmiða, sem þær hafa verið í, og þá fyrst og fremst undan valdi flokkspólitíkur og klíkuskapar í þessu landi kunningsskaparins. Að tryggja það, svo sem unnt er, að þeir einir hafi úthlutun á hendi, sem séu sæmilega dómbærir í hverri listgrein og hafi tiltrú launþeganna sjálfra og vinni verk sín á ábyrgð þeirra. Að skipulagið sé lifandi og lýðræðislegt og stirðni hvorki né storkni í akademíu eða embættislegu formi. Að úthlutun listlauna sé út af fyrir sig og ekki ofin saman við annan stuðning og framlög, sem ríkið á að sjálfsögðu að veita til listastarfsemi og hljóta mjög að taka breytingum, jafnvel frá ári til árs. Að reglurnar segi sjálfar til, þegar auka þarf fé til listlauna. Að á listlaunum verði enginn ölmusublær, heldur votti þau þann skilning, að listirnar eru, eins og Einar Benediktsson komst að orði, lífinu langferðarnesti. Hann sagði nefnilega um gildi ljóðlistarinnar :

Hve oft varð ein hending svalandi skál

og lífinu langferðarnesti.

Og hið sama má segja um aðrar listgreinar, því að

eilíf ráða listarlög,

litum, svip og hljómi,

eins og Einar sagði líka.

Við, sem nú erum uppi og komnir til vits og ára, viljum vernda íslenzkt þjóðerni og þjóðmenningu. Við viljum gera allt, sem við getum, til þess að þjóðin geti orðið langlíf í landinu og vinnuþjökun hverfi og efnahagurinn verði sterkur. En við verðum jafnframt að leitast við að búa svo í haginn, að listirnar geti orðið þjóðinni langferðarnesti. Ef hún hefur ekki þær í nesti, nýtur hún ekki lífsins og þrýtur þá fyrr en varir langferðarþrótturinn. Svo mikils verð eru þessi málefni.

Herra forseti. Ég legg til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og til hv. menntmn.